Vísir - 08.12.1959, Blaðsíða 23

Vísir - 08.12.1959, Blaðsíða 23
JÓLÁBLAÍ) VÍSIS hremmum eina þeirra. Svo kem ég henni einhvern veginn yfir ána og skil hana eftir. Þú verður á méðan að ná í eitthvað af hrossunum þarna. Hérna er snæri til að hnýta upp í klár- inn. Og Nonni var þotinn af stað eftir rollúnum, því nú var ekk- ert hangs á hlutunum. Eg hljóp þegar í áttina til hestanna, sem voru að kroppa þarna skammt frá. Eg tók Blesa af gömlum vana, því hann var þægastur. Þegar Nonni kom með ærnar, •og rak þær inn í tóttina, varð ég að stilla mér upp andspæn- is dyrunum, því þar var skarð í veggnum. Og á mig ruddist all- ur rollufansinn, til að leita sér útgöngu. Eg greip í ullina á sinni, saup hveljur, því að ein þeirra rak klaufirnar ónotalega framan í mig er hún hljóp of- an af veggnum. Eg kútveltist með rolluna í fanginu, en ég sleppti ekki takinu, hékk ein- hvern veginn í henni. Svo kom Nonni mér til Hjálpar, náði í hornin á henni og settist á hana klofvega og hélt henni. Þetta var gömul, mórauð ær, sem kölluð var Móhyrna. Við drógum Myhyrnu gömlu að Blesa. Nonni fór á bak Blesa, seildist í annað hornið á Mó- hyrnu, en ég reyndi að ýta und- ir afturendann og þannig tos- uðum við henni með miklu erf- iði upp á herðakambinn á Blesa. Móhyrna jarmaði, ropaði og notaði hinn endann einnig að vild til að gefa frá sér hljóð, kvarta undan meðferðinni á sér. Að lokum hafðist þetta, en Móhyrna ætlaði alveg að verða vitlaus í faðmlögunum við Nonna, en ég reyndi eftir beztu getu að hjálpa honum að halda henni. Nonni hottaði á Blesa, ákveð- inn og hvergi hræddur, og svo gösluðum við allir út í ána, á hverju sem tautaði. Eg öslaði aftur til sama lands, þegar ég var orðinn blautur upp í klof; henti mér á meltuna á árbakk- ann og kastaði mæðinni. Nonni slampaðist yfir ána með Mó- hyrnu í fanginu, sleppti henni þegar yfir kom, og sneri þegar til baka. En Móhyrna rásaði fram og aftur á hinum árbakkanum með sáru jarmi. — Bara að hún setji sig nú ekki í ána, rollufjandinn, sagði Nonni. Svo slepptum við Blesa. Það var ekki sjón að sjá okkur eft- ir þetta ævintýri; hundblauta og skítuga. Þegar við komum heim, feng- um við líka að heyra það hjá Ásu gömlu, þjónustunni okk- ar, hvílíkir endemis, djöfulsins sóðar við værum. Það var svo sem auðséð, að við værum af karlkyninu. En þegar Nonni sagði, mjög alvarlegur í bragði, að ég hefði dottið í ána og það hefði sann- arlega ekki litið efnilega út um tíma, þá hætti Ása gamla' að þusa, en bað í þess stað góðan Jesú að hjálpa sér. Það höfðu svo sem drukknað menn í henni Dalsá, engu síður en öðrum vatnsföllum á íslandi. Svo vantaði Móhyrnu í kvi- arnar næsta dag. Mér var skip- að að svipast betur eftir henni. — Hún hefur sett sig yfir ána, sagði Nonni, við kvöld- matarborðið, þegar Móhyrna fannst ekki að heldur. — Hvaða bölvaður þvætting- ur er þetta, strákur, sagði Jó- hann höstugur. — Gömul, hag- vön ær, sem aldrei hefur hreyft sig frá bænum. Þetta er vit eða hitt þó helduf. Reynið að gleypa í ykkur matinn og leitið svo að henni Móhyrnu. Og ver- ið nú ekki með neinn slóða hátt eða óþarfa droll. Eftir matinn röltum við Nonni silalega af stað og eins luntalegir á svip og okkur var framast unnt. — Þarna brást okkur boga- listin, að lenda á gamalli rollu, sagði ég við Nonna, þegar við vorum komnir út fyrir tún. Það var auðvitað bölvaður klaufaskapur og fyrirhyggju- leysi að athuga þetta ekki fyr- ir. En það verður að vera sem komið er, svaraði Nonni. Svo töluðum við ekki meira um það. Þegar við vorum komnir hæfilega langt frá bænum og í hvarf við hann, hentum við okkur niður í grænan hvamm. Það var ekki amalegt að liggja þarna í kvöldskininu. Sólin var farin að roða fjöll- in og í andvara kvöldsins heyrðist aðeins í einstaka fugli og hægur niður Dalsár. Nonni tók upp munnhörpuna sína og spilaði á hana fjörug lög. Síðan var tekið til að tusk- ast á til að stytta sér tímann. Við vissum ekkert hvað tíman- um leið, því hvorugur okkar hafði úr. Þegar okkur fannst hæfilegur tími liðinn héldum við heim. Og ekki fannst Móhyrna. — Svo var beðið í ofvæni og spenningi hvað næst mundi gerast, — Og næstu dagar ætluðu aldrei að líða. 0—0 Það bar til tíðinda fjórum dögum síðar, að maður kom ríðandi troðningana frá Dalsá. Það var ókunnur maður, sem auðsjáanlega hafði komið vest- ur yfir ána. Þetta var sunnudagseftirmið- dagur. Nonni og ég vorum uppi í kirkjugarði i eltingaleik, þó við værum í beztu fötunum okkar. Við hentumst leiði af leiði og gripum í krossmörkin og legsteinana, og sviptum þeim næstum a f leiðunum í hamaganginum. Við máttum þakka hamingjunni fyrir að enginn heimamanna varð okk- ar var — þó sérstaklega Jó- hann. Þá hefðum við fengið orð í eyra og gott ef við hefð- um sloppið við refsingu. Fáir voru þeir staðir, fyrir utan kirkjuna náttúrlega, sem búið val- að áminna okkur um að vera ekki með nein ærsli, — minnugir þess, að þetta væru helgir staðir. En ekkert var okkur fjær á þessari frjálsu sólskinsstund sumarsins í glöð- um leik æskunnar en hugsunin um dauðann og þann helga rétt þeirra er þarna hvíldu, til að njóta kyrrðar og friðar. Slíkt hafði raunar hent okkur fyrr og samvizkan ekki íþyngt okk- ur svo mjög. En komið gat það" þó fyrir um það leyti, sem svefninn var að loka brár okk- ar kveldi, að hjartað sló ofur- litlu örara og að okkur hvarfl- aði grunur um, að ef til vill ætti einhver grafarbúinn við okkur erindi. Að morgni var allur beygur úr brjósti og eng- 23 inn staður jafn ákjósanlegur og kirkjugarðurinn, er stund gafst til leika. Nú var Nonna litið í áttina til Dalsár og sá hinn ókunna ferðalang er óðum nálgaðist bæinn. Hann snarstanzaði á hlaupunum og allur leikur var á samri stundu gleymdur. Hann glennti upp augun og varð all- ur að spurn í andlitinu. Nonni benti mér í áttina að Dalsá. Eg sá manninn sem nálg- aðist ríðandi á skjóttum. Það var ekki messudagur á staðn- um þenna dag, enda orðið það framorðið. Svo ekki gat þetta verið kirkjugestur. En hver var maðurinn? Hvaðan kom hann? Átti hann erindi hingað eða ætlaði hann lengra fram í dal? Eg leit á Nonna í spurn. Gat það verið, að þessi maður væri frá Árbakka? Á andliti Nonna mátti lesa sem á opna bók, að innra með honum hefði tendr- ast vonarljós um, að ráðabrugg hans ætlaði að ganga sam- kvæmt áætlun. Nonni var orðinn mjög al- varlegur í andlitinu, og ekkert minnti lengur á ærslafullan gleðigosa, sem réð sér ekki fyr- ir fjöri er vel lá á honum. Við gengum andagtugir út úr kirkjugarðinum og lokuðum sáluhliðinu vandlega á eftir okkur af mikilli kurteisi við þá sem bjuggu innan garðs. Þegar við vorum, komnir fram á bæjarhellurnar var gest- urinn að ríða í hlaðið. Þetta var Gísli bóndi á Áx-bakka. Hann sté af hestinum og heilsaði Jó- hanni með handabandi, sem kominn var út á hlað á skýrt- unni og strauk hökutoppinn BÚNAÐARBANKI ISLANDB ú N A Ð A R B A N K \ * I S L A N D S Austurstræti 5, Reykjavík. Sími 18200. Austurbæjarútibú, Laugavegi 114. Sími 14812, Miðbæjarútibú, Laugavegi 3. Sími 14810. ÚTIBÚ Á AKUREYM hK Bankinn er sjálfstœð stofnun, undir sérstakri stjóm, og er eign ríkisins. í aðalbankanum eru geymslu- hólf til leigu. — Trygging fyrir innstœðu er ábyrgð ríkisins, auk eigna bankans sjálfs. HK Slankiiin amtast öll innlend banka< viðskipii — tekur á móti té i spari* sjóð og Iilanpareikning. mer. SJÖKLÆÐAGERÐ ÍSLANDS hefur á boðstólum sjóklæði úr Galonefnum, síSstakka sjómanna og hálfsíðar kápur með hettu, sem hvorttveggja er rafsooið á saumum. ★ ★ Einnig gúmmístakka og margskonar önnur sjóklæði og regnfatnað úr gúmmí og plastefnum. ★ ★ Galonefnin eru froststyrkt. Haldast mjúk í allt að 40° frosti og stakkámir evu með sjálflýsandi efni á háls- máli. ★ ★ SjóklæSin úr sænsku galonefnunum era aSeins framleidd hjá okkur og hafa yfirleitt reynzt mjög vel. Li ólandá 'iítÍ!

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.