Vísir - 08.12.1959, Blaðsíða 13

Vísir - 08.12.1959, Blaðsíða 13
JÓLABLAÐ VÍSIS 13 Einhvern veginn lagðist þjið í fóstra minn, að fiskur mundi ganga snemma þetta vor. Hann fór því árla vorsins að hugsa til róðra. Ég var naumast laus úr barnaskólanum um vorið, er hann lét mig dunda við það í sólskininu og veðurblíðunni að skafa bátinn sinn, „Síldina", þar sem hann hvolfdi á tveim gildum rekatrjám milli beitu- skúranna ofan við Strandveg- inn. „Síldin“ var þriggja manna far, fallegur „Færeyingur", sem fóstri minn hafði keypt af Fær- eyingunum haustið áður, þegar þeir héldu heim frá sumardvöl sinni í kauptúninu. Þar lágu margir þeirra við og höfðu út- ræði blíðustu sumarmánuðina. Ég skóf eftir getu gömlu tjör- una af bátnum með þrihyrndu bátasköfunni, svo að svitinn rann í sólarhitanum og logn- mollunni. Tilhlökkunin glæddi vinnuviljann og athafnagleðina eftir langan vetur, byljóttan og snjóþungan. Ég hafði lengi hlakkað til þess, þegar á vorið leið og ég fór að þreytast við stagl og nám, að mega taka til við sumarverkin og fram- íeiðslustörfin. Þegar farið var áð róa á vorin, breyttist öll tilvera okkar strákanna. Starf hvern dag með tilbrigðum og tilbreytingu. Nýtt líf færðist í kauptúnið, ef eitthvað aflaðist. Ég hygg líka, að löngunin í nýjan fisk og lifur eftir tros- og bútungsátið allan veturinn, hafi átt sinn þátt í að glæða vinnuviljann og athafnaþrána. Þegar ég hafði skafið „Síld- ina“ utan stafna á milli, tjarg- aði fóstri minn hana úr hrá- tjöru, nema efsta borðið og há- stokkinn, sem var málað. Næsta dag var svo bátnum hvolft upp, svo að ég gæti skafið hann innan og hreinsað. Fóstri minn hafði ráðið tvo nágranna sína til að róa með sér um vorið, þar til Vestmanna- eyingarnir kæmu austur, en hann hafði ráðið tvo kunna borgara í Eyjum til þess að róa á „Síldinni“ um sumarið. Annar þeirra var bróðir fóstra míns, Sigurður í Frydendal, og hinn Einar Jónsson frá Garðhúsum, bróðir Ólafs Jónssonar, sem enn er í Eyjum hjá okkur. Sigurður skyldi verða formaðurinn. Þriðja bátsverjanum hefi ég gleymt. Það er bezt að skjóta því hér inn, ef lesandi minn veit það ekki, að Sigurður í Frydendal og Einar frá Garð- húsum reru hér saman á v/b íslandinu og drukknuðu af skjöktbát sínum í Læknum 10. jan. 1912 í afspyrnu austanroki. Einnig minnist ég þeirra stunda á æskuheimili mínu, þegar sú sorgarfregn barst austur. Vel aflaðist á „Síldina“ þetta vor, áður en Vestmannaeying arnir komu austur, og fékk fóstri minn oft hálffermi og stundum meira í bátinn. Þegar hann kom að, hafði ég gaman af því að kasta upp úr bátnum kóðunum og stútungunum. Hin- ir stærri drættir voru mér ofur- efli á þessu aldursskeiði, sem ég var þá á. Er sjómennimir höfðu mat- aszt, tóku þeir að gera að afl- anum. Annar hásetinn hausaði fiskinn. Hinn risti á kviðinn og sleit innyflin út úr honum. Fóstri minn flatti. Oftast hjálp- aði fóstra mín til-við aðgerðina. ÞDRSTEINN Þ. VIGLUNDSSDN: Á ☆ NORDFIRD Kt*t'n sh u m in n in ffat' að anstan Flatti hún þá fyrst í stað með fóstra mínum, þar til hann tók til að salta fiskinn. Eftir það flatti hún ein. Allur stútungur eða undirmálsfiskur — styttri en 18 þumlungar eða um 45 cm — var flattur „í Vorð“. Það var þannig gert, að rist var til hliðar út úr miðri stirtlu, þeg- ar flatt var. Sá fiskur var lítið þurrkaður og aldrei himnudreg- inn. Þessi Vorð eða Vord var erlendur fiskkaupmaður, sem réði þessari flatningu og verk- un á fiskinum. Allur fiskur var pækilsaltað- ur. Algengustu ilátin til að pækilsalta í voru stórar eikar- tunnur, sem steinolía hafði flutzt á til landsins. Sumir áttu trékör ferhyrnd úr plægðum gólfborðum. Ég var látinn slíta lifrina frá ur. Einnig var stundum tekið fram, þegar rætt var um afla, hvað formaður árabátsins, en árabátur var næstum alltaf við hann kenndur, hefði fengið mörg rúm af fiski. í venjulegu þriggja manna-fari — þrjár ár- ar á borði — voru þessi rúm: Skutur, austurrúm (þar réri formaðurinn), miðrúm, fram- rúm (andófsrúm), kompa og barki eða stafn. Venjulega var fiskurinn fyrst látinn í miðrúm- ið. Með bjóðm í skut lá bátur- inn þá vel, þ. e. bátnum hallaði þá hæfilega aftur, svo að aust- ur rann til austurrúms, en þar var báturinn ausinn með svo kölluðu trogi, sem tók vel nið- ur í kjölsogið. Gæfist meiri fiskur en eitt rúm, var hann látinn í skutinn og svo kompu, þannig að bátur- ír»« InofTÍ t VíoIIoÍCÍ Irmívlorto höfðu snúizt um hann, og taka afbeituna af önglinum. Ekki var mér í fyrstu trúað fyrir því að skera slitna öngultauma af línu- ásnum af ótta við, að ég kynni í bernsku minni að særa ásinn sjálfan og skemma þannig lín- una, veikja hana. Það gat leitt til þess, að hún slitnaði frem- ur í stormi og straumi og tapað- ist gjörsamlega. Oft var langt á kvöld liðið, þegar öllu var lokið, svo að svefntími sjómannanna var ekki alltaf langur, því að róið var oftast upp úr lágnætti, þeg- ar góðar voru gæftir. Þó var það nokkuð háð sjávarföllum, flóði og fjöru, þ. e. sjávar- sti'aumum, meðan stundaður var sjór á árabátum. Meðan fóstri minn var ókom- inn að á morgnana eða daginn, var það starf mitt að fara með lifrina úr róðrinum daginn áð- Séð yfir Norðfjörð. Neskaupstaður fremst. 1. flokk, hversu mögur og ljót, sem hún annars var. Öll önn- ur lifur, svo sem ýsulifur, karfa lifur, ufsalifur o. s. frv. var lát- in í sérstakt ílát og fór í 2. flokk. Þannig var lifrin flutt flokkuð í bræðsluna og mæld í pottum. Svo var getið um potta- töluna úr róðri hverjum, þegar rætt var um aflamagnið hjá þessum og hinum bátnum eða formanninum. Það þótti góður róður að fá 40—50 potta af lií- töldust tvö rúm af fiski. Það var um það hálffermi. Þá var kompan og andófsrúmið eftir. í austurrúmið var auðvitað aldrei látinn afli, því að þar var ausið. Væri hvergi náð til austurs í bátnum, var dauði vís. Þegar aðgerð var lokið, hófst beiting línunnar. Þá reyndi fóstri minn að nota mig til þess að flýta fyrir sér og rekja upp hauginn, þ. e. linuásinn, vinda öngultaumana af ásnum, ef þeir ur. Oftast kaus ég heldur að flytja hana inn í bræðslu á skektunni heldur en að aka henni eftir Strandveginum á hjólbörum. Leiðin lá inn með fjarðarströndinni, inn fyrir Vík, þar sem bræðsluskúrinn stóð með gufukatli og pottum og risavöxnum trétrektum, að mér fannst, sem lifrin var sett í og brædd í með gufu. Allt fannst mér smita í grút og brækju. Gaman var að vera á sjón- Höfundur þessarar greinar cr Þorsteinn 1». Víglundsson, skólastjóri Gagnfræðaskólans í Vestmannacyjum. Þorsteinn liefur oft Iátið til sín taka á ritvellinum og varðveitt ýmsan fróðleik frá glötun. Hér skrifar hann m.a. inn persónur, sem flestir íslendingar kannast við, Odd á Skaganum, Stjána bláa og Sæmund sífulla og útróðra frá Austfjörðum. um og róa í sumarblíðunni. Það var líka ólíkt karlmannlegra starf en hjólböruakstur, fannst mér. Ég og bræðslumennirnir, Lár- us Waldorf og Jónas gamli Matthíasson, vorum góðir kunn- ingjar. Þeir voru báðir ná- grannar mínir. Margan lýsissop- ann drakk ég hjá þeim, þegar ég íærði þeim lifrina. Um ára- bil átti ég geymdan lijá þeim sérstakán bolla, sem ég drakk úr lýsið. Stundum var hann hálfur eða vel það, stundum var minna í honum, alveg eftir lyst minni hvei'ju sinni. Þetta blessað vor leið fljótt, því að blíðskapai'veður var hvern dag og afli nægur. Svo leið að því, að von var á „Botníu“ að sunnan með sunnlenzka fólkið og þar á með- al Vestmannaeyinganna, sem áttu að róa á „Síldinni11. Þetta var fagur sunudagur. Fi’étzt hafði, að „Botnía“ væri væntanleg um kvöldið. Ég fór í kirkju með fóstra mínum eftir hádegið, svona til þess að sýna mig og sjá aðra eins og gengur, — suma aðra. Allan þorra kirkjugestanna hafði ég engan sérstakan hug til að sjá, þó að ég þekkti þá alla, hvern einasta, smáa og stóra, unga og gamla. Hver þekkir brátt annan í fámenn- inu. Fóstri minn gei'ði það fyrir mig að sitja uppi á lofti í kirkj- unni innst við rimlana. Þar kaus ég mér helzt sæti, því að þaðan gat ég séð til dyranna, séð hitt kii'kjufólkið koma inn um dyi'nar, athugað fas þess og för. Þaðan gat ég líka séð hana Siggu litlu á Sæbóli, sem var á aldur við mig. En hún kom oft í kirkju með henni mömrnu sinni, sem var mikil kunningja- kona fóstru minnar, og þær kysstust alltaf, þegar þær hitt- ust, sem stundum var á hvei'j- um degi. Ekki vissi ég eiginlega, hvern- ig á því stóð, að ég hafði rnesta ánægju af að sjá hana Siggu af öllum telpunum í kauptúninu. Gat það verið, að ég væri ást-

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.