Vísir - 08.12.1959, Blaðsíða 25

Vísir - 08.12.1959, Blaðsíða 25
JÖLÁBLAÐ VfsiS A. JVorðfirði — ★ BERNSKUMINNINGAR AÐ AUSTAN ★ -i— 25 Á myndinni sézt nökkur hluti Kelaskúranna gömlu. Frh. af bls. 14. Þegar við komum út að skip- inu, var þar kominn fjöldi ára- báta að skipshliðinni, þar sem stiginn. hékk. Við bundum skektuna okkar við aðra skektu og urðum svo að ganga yfir 2—3 báta til þess að ná í skipsstig- ann. Svo mikil var mergðin af bátunum. Á þilfari skipsins voru þegar margir sveitungar okkar að Þorkell Færeyingur. ráða til sín sjómenn og land- fólk. Sumt fólkið var ráðið, áður en það lagði af stað að heiman. Aðrir réðust á skips- fjöl, þegar austur kom. Sumir Sunnlendingarnir gerðu sjálfir út. Þeir töldu sér það arðvænlegra. Ég minnist einnar bátshafnar, sem leigði verbúð í Kelaskúrunum. Það voru engir sunnlenzkir aukvis- ar. Mér varð starsýnt á þá karla á þilfari skipsins. Augafullir voru þeir og þó að mestu sjálf- bjarga. Formaður þessarar skipshafnar var Stjáni blái, sá hinn sami, sem Örn Arnarson skáld kveður um hið fræga kvæði. Stjáni hafði dvalizt í kauptúninu fyrr við sjósókn, og var kunnur að dugnaði og sjó- mennsku. Einnig var hann kunnur að drykkjuskap og „láta hnefa semja sátt“, eins og segir í kvæði skáldsins, þegar hann var ölvaður. Hásetar Stjána bláa voru líka nafnkunnir menn. Annar var Sæmundur sífulli. Nafnið þótti, hann bera með rentu. Hinn há- setinn var Oddur sterki af Skag- anum. Einnig hann kafnaði ekki undir nafni. Hann þekkti ég per- sónulega, því að hann.hafði ró- ið áður með fóstra mínum eitt vor. Bezti karl, en dyntóttur, tortrygginn og skrítinn, enda heyrnardaufur og heyrði því ekki alltaf, hvað sagt var í kringum hann. Hann átti það til að fá æðisköst. Þá steytti hann stundum hnefa að okkur strákunum og froðufelldi. Þá vorum við fljótir að „missa nið- ur hjartáð“ og „hvérfa ofan í skóna okkar“. Þegar Oddur var fullur, var hann kunnur að snikjum sínum: „Gef mér 10 aura, greyið, ég ætla að kaupa mér brennivín fyrir þá.“ Lauga lausgirta var verbúð- arráðskona hjá þeim þremenn- ingunum. Ef til vill hét hún eitthvað annað, en viðurnefnið bar hún með sanni. Það sá ég oft og man. Við hittum þarna á skipsfjöl Vestmannaeyingana Sigurð og Einar. Allt stóð það heima. En fóstri minn gerði út fleiri báta en ,,Síldina“ og þurfti því að ráða til sín fleira fólk. Hann fór þess vegna um þilfar og lestir skipsins til þess að hafa tal af óráðnum sjómönnum, og svo kvenfólki til að verka fisk- inn. Þá var íslenzkt verkafólk til lands og sjávar flutt í skipa- lestum milli landsfjórðunga, eins og skepnur. Af þeim flutn- ingum höfðu útlendingar drjúg- ar tekjur. Niður í lest skipsins gengum við lausan stiga, eins konar ut- anhússstiga, sem var bundinn í efri endann með kaðli í járn- lykkju í lestarkarminum. Þegar niður í lestina kom, blasti við fremur ömurleg sjón. Sængurflet voru um allt lestar- gólfið milli súða. Koffort og kassar eða matarskrínur stóðu við flestar flatsængurnar. Víða voru koffortin og kassarnir lát- ið halda að sængurfötunum og móta legurúmið eða skilja á milli flatseenganna. Kvenfólk og karlar hafðist þarna við hvað innan um annað. Oft heyrði ég það haft á orði, að lestarlíf þetta einkenndist af sukki og ólifn- aði. Drykkjuskapur karlmanna mun oft hafa verið mikill á ferðum þessum. Af honum staf- aði mikið amstur, ónæði og ill- indi á stundum, eins og fyrr og- síðar. Um drykkjuskap kven- fólks heyrði ég ekki getið á ferðum þessum. Umhverfið allt fannst mér ömurlega fátæklegt, og blærinn yfir því bera þess vott, hversu íslenzka þjóðin var umkomulaus, lítils megnug og lítils virt. Ég mun hafa skilið þetta allt betur síðar, er ég elt- ist og óx að skilningi og vit- glóru. Úti í einu lestarhorninu rorr- aði ölvaður maður og kvað klámvísur við raust. Hann bölv- aði Hornafirði í sand og ösku. Kvaðst hann hata það sveitar- félag svo innilega, að hann færi ekki upp úr lestinni til þess að líta sjónum þá Satans öskutó. Og auðheyrt var, að þetta síð* asta orð minnti hann á Mjóa- fjörð, því að nú kvað hann við raust hina kunnu skammarvísu Jónasar Þorsteinssonar um Mjóafjörð: Hér við óar hugur manns, ■ harður þótt sé gjörður, öskustóin a..... { er hann Mjóifjörður. Frh. á s. 26 , Reglubnndnar siglingar milli íslands og Ðanmerkur, Stóra-Bretlands, Þýzkalands, Hollands, Belgíu og Bandaríkja Norður-Ameriku. Ennfremur siglingar til eftirfarandi landa, eftir því sem flutningur er fyrir hendi: Svíþjóðar, Noregs, Finnlands, Póllands, Sovétríkjanna, Irlands, Frakklands, Miðjarðarhafslanda og fleiri landa. H. F. EIVISKIPAFELAG ÍSLAIMOS, Reykfavík - Sínmefni: EIMSKÍP - Sími: 1-94-60 (15 línur)

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.