Vísir - 08.12.1959, Side 35
JÓLABLAÐ VÍSIS
35
Þegar Þjóðverjar skutu V-sprengjum sínum á London, keyptu
margir sér 1000 punda tryggingu gegn dauða af völdum þéirra
vopna. Iðgjaldið var eitt pund!
þegar mikilvaegar fregnir eru
birtar: einu höggi fyrir vond-
um fregnum; tveimur fyrir góð-
um fregnum. Þó margar tilraun-
ir hafa verið gerðar til aðbjarga
fjársjóðnum úr Lutine, hefur
aðeins náðst gull og silfur fyrir
sem svarar 250.000 dollurum á
þessum 160 árum, sem liðin eru
síðan skipið sökk.
Jafnvel nú á dögum getur leit
Lloyds að týndum fjársjóðum
verið ævintýri líkust. Árið 1943
hrapaði flugvél, sem flutti eðal-
steina, sem tryggðir voru hjá
Lloyds fyrir 200.000 dollara.
Það var ekki alllangt frá Khar-
toum, sem flugvélin týndist.
Lloyds sendi lögfræðing einn
frá London á vettvang. Settist
nú lögfræðingurinn niður og
reiknaði út hvað hraði flugvél-
arinnar mundi hafa verið mikill
þegar hún hrapaði, og afl höggs-
ins, þegar hún skall á jörðina
og sundraðist. Þegar hann hafði
lokið útreikningum sínum,
benti hann á stað einn og sagði,
að þar skyldi leita. Og svo sann-
arlega var þetta staðurinn. Þar
fannst 8 karata demant. Hann
hélt svo áfram á láta sía sand-
inn, og að lokum hafði hann
fundiö mestalla gimsteinana.
Sértryggingar
eru einkenni Lloyds.
Lloyds hóf fyrst allra að
tryggja gegn eldsvoða og inn-
brotsþjófnaði. Síðan bættust
hvirfilbyljatryggingar við og
síðan jarðskjálftatryggingar og'
loks svo að segja hvað sem er,
svo sem *„hestlausi vagninn",
flugvélarnar o. s. frv. T. d.
tryggja þeir flugmennina, sem
taka að sér reynsluflug, svo sem
þá, er rufu hljóðmúrinn.
Það eru sértryggingarnar,
sem eru einkenni Lloj^ds nú á
dögum, og Lloydsmenn hafa
komizt að raun um, að þó að,
hið versta komi fyrir við og
við, þá skeður það þó miklu
sjaldnar en menn almennt
halda.
Ef iðgjaldið er nógu hátt, eru
varla nokkur takmörk fyrir því
hvað Lloyds tryggir. Þó tryggir
Lloyds ekki líf þitt um óákveð-
inn tíma skilyrðislaust. Eru
önnur tryggingarfélög látin um
það. Lloyds telur sér ekki hag
í því að hafa svokallaðar lang-
ar líftryggingar, þ. e. trygging-
ar til lands tíma, og setur tak-
mörkin við 3 ár. Á hinn bóg-
inn tryggir Lloyds gegn dauðs-
föllum af slysum eða óhappi,
og er það ótímabundin trygg-
ing. Brezkur liðsforingi, sem
þjónaði í hernum í Indlandi var
aðvaraður af spámanni um að
hann mundi missa lífið af slys-
förum. Hann lét sér þessa að-
vörun að kenningu ver'ða og
sneri sér til Lloyds og keypti
þar tryggingarskírteini gegn
slysadauða. Tuttugu árum siðar
fór herdeildin heim til Bret-
lands og liðsforinginn fékk
lausn úr hernum og komst á
eftirlaun.' Svo var það einn
morgun, að liðsforinginn rann
til í sleipum stiganum heima
hjá sér og beið bana af fallinu.
Ættingjar hans fengu fulla
greiðslu samkvæmt vátrygging-
arskírteininu úr hendi Lloyds
og þarna hafði þá spádómur
Indverjans ræzt.
Þúsund pund
fyrir eitt.
Gott dæmi um það, hve
Lloyds eru skjótir að bregða
við, þegar nýjan vanda ber að
höndum, eru V-sprengjutrygg-
ingar svokölluðu. Þegar Þjóð-
verjar hófu að skjóta á London
með V-sprengjum sínum eða
eldflaugum, undir lok seinni
heimsstyrjaldarinar, reiknaðist
einum hagfræðingnum svo til,
að hættan á því að einstakling-
ur týndi lífinu af völdum þess-
ara eldflauga, væri miklu
minni en 1 á móti 1000. Hann
og félagar hans hófu þá sölu
á 1000 sterlingspunda trygg-
ingarskírteinum, sem þeir
seldu á 1 sterlingspund hvert.
Skírteini þessi runnu út og fé-
lagarnir græddu offjár á við-
skiptunum.
Sí og æ skapast ný vandamál
og menn taka á sig aukna á-
hættu. Hvex’ju sinni þarf að
gera sér grein fyrir því, hve
mikil áhættan gæti orðið og
setja upp nýtt reikningsdæmi
áður en ti’yggingarmaðurinn
ræðst í að láta ti’yggingu í té.
Þannig var t. d. þegar farið var
að bora eftir olíu á sjávarbotni
úti fyrir ströndum Louisana-
fylkis í Bandaríkjunum. Þeir,
sem hófu þessar boi’anir, lögðu
út í mikla áhættu, en Lloyds
var reiðubúið að tryggja gegn
þessari áhættu. Eitt slíkt fyrir-
tæki er tryggt íyrir 3 milljón-
um dollara hjá Lloyds.
Danastjórn
heimtaði meðlag.
Ekki alls fy-rir löngu réðist
kvikmyndafélag eitt í það að
taka kvikmynd á Gi’ænlandi, og
Lloyds tryggði leiðangurinn,
sem þangað vra gerður. Nokkr-
um mánuðum seinna gerði
danska stjórnin kröfu til þess
á hendur Bandaríkjastjói’nar,
að hún greiddi meðlag með
barni, sem einn leiðangurs-
xnanna hafði eignazt með græn-
lenzkri stúlku. Kvikmyndafé-
lagið vísað kröfunni til Lloyds.
Herrarnir í kaffihúsinu urðu
að taka að sér hinir föðui’legu
skyldur og það eru þeir, sem
nú standa undir kostnaðinum
af uppeldi hins unga, græn-
lenzka borgara.
Gleðikona ein í nætui’klúbb
í Boston ívai’ð fræg fyrir það,
a'ð hafa tryggt brjóstin á sér
hjá Lloyds fyi’ir 50.000 dollara.
Blöðin gáfu henni strax nafnið
„stúlkan með dýru brjóstin“.
Tryggingamennirnir telja þetta
yfii’leitt gróðavænleg viðskipti,
en þeim er ekkert um það gef-
ið, að mikið veður sé gert út
af þessu.
Georg & Co. h.f.
PAPPAUMBÚÐIR
Hverfisgötu 46. — Sími 11132.
Framleiðum alls konar pappaumbúðir
fyrir iðju og iðnað, t.d. fyrir.
Skóverksmiðjur
EfnagerSir
Smjörlíkisgerðir
Sælgætisverksmiðjur
Saumastoíur
Klæðskera
Bakara
Snyrtivörur o. fl. o. fl.
nmbádlr
eirm Ibezfi Meljarinn.