Tölvumál


Tölvumál - 01.10.1991, Qupperneq 25

Tölvumál - 01.10.1991, Qupperneq 25
Október 1991 Opinber stefna og aðgerðir Ákvæði um tölvunotkun í stærðfræðinámi í námskrá grunnskóla eru fremur veik og ekki mjög leiðbeinandi. Þau eru þó ákveðnari í stærðfræði en í nokkurri annarri námsgrein. En eitt og annað hefur gerst sem getur nýst í þeirri samræmdu stefnu sem þarf að móta um tölvunotkun í námi. Innan Reiknistofnunar Háskóla íslands hefur síðan 1988 verið unnið að þýðingum og aðlögun á hugbúnaði til kennslu. Verkið hefur verið unnið í samstarfi við menntamálaráðuneytið og Náms- gagnastofnun en einnig hafa verið gefin út forrit gerð hér á landi. Um myndarlegt átak hefur verið að ræða á sviði stærðfræði en þar eru 13 forrit skráð og auðveldlega má nýta 4 að auki á þessu sviði. Þá eru ónefnd forritunarmálin, einkum Lógó, en frumskipanir þess voru þýddar í samstarfi nokkurra aðila fyrir alllöngu síðan. Þau forrit sem þýdd hafa verið eru þó mjög ólík og vart unnt að fjalla um þau sam- eiginlega. Sum eru mjög auð- skiljanleg og gera litla kröfu til samspils en önnur byggjast á gjörólíkum hugmyndum og eiga að notast í nánu samhengi við aðra kennslu og að undangenginni kynningu á allri táknanotkun. Þetta verða menn að gera sér ljóst og haga notkun í samræmi við það. Hvað stendur í veginum? Hvað stendur í vegi fyrir því að þær tölvur, sem þegar eru til í skólunum, séu notaðar í stærð- ífæðinámi? Hverjir eru þröskuld- arnir? Ég hef glögglega orðið vör við að menn skilja betur með hverju ári að vélbúnaðarskortur er ekki meginþröskuldur. Sé litið til nágrannalanda og reyndar einnig í eigin barm sést að hugbúnaðarskortur er það heldur ekki. Meginþröskuldar eru líklega þær bundnu hugmyndir sem við gerum okkur um það hvernig nám eigi sér stað, hvaða áherslur séu mikilvægar og hvernig hvetjandi og styrkjandi náms- umhverfi líti út. Yfir þá þröskulda klífa kennarar ekki nema með því að endurskoða flest það sem fólk hefur talið sjálfgildi í áliti sínu á námsgreinum og kennslu þeirra. Margt lifir að sjálfsögðu þá endurskoðun af en öðru verður að kasta fyrir róða. Ég vil leggja áherslu á að það eru ekki stóru, glæstu forritin, sem menn fá glýju í augun af, sem skipta mestu máli. Það skiptir mestu máli að leggja áherslu á að nýta það sem við höfúm eðlilega inni í því námi sem á sér stað og láta það þannig hafa áhrif á það sem gerist, ýta hinu gagnslausa út og draga skýrar fram það sem skiptir máli í námsferlinu. Og þetta krefst þess að kennarar endurskoði afstöðu sína til þeirrar stærðfræði sem þeir eru að kenna og hvernig þeir fara að. Þetta er kannski ekki létt verk en það er brýnt. Lokaorð Það væri að sjálfsögðu gaman að halda nú lengra út á braut nauð- synlegrar endurskoðunar en of langt mál yrði úr því. Framtíðin mun leiða í ljós hvort Tölvumál verða vettvangur íyrir nánari um- ræðu um brýnar áherslubreytingar í kennslu einnar helstu undir- stöðugreinar almennrar fræðslu. En látum lokaorðin vera þessi: Börnin eru framtíðin. Allt sem við gerum er gert fyrir þau og allt sem gert verður mun gert af þeim.* * Clay Morgan í "Everybody Counts, a Report to the Nation on the Future of Mathematics Education", riti "National Re- search Council" í Bandaríkjunum. Höfundur stjórnar við Kennaraháskóla íslands rann- sókninni TOSKA (Tœkni og stærðfræðikennsla). Erindið er nokkuð breytt frá upprunalegum búningi, til þess að henta sem tímaritsgrein. 25 - Tölvumál

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.