Tölvumál - 01.10.1991, Blaðsíða 34
Október 1991
Skólar á Norðurlandi eystra geta
skilað skýrslum til fræðsluskrif-
stofu í tölvupósti og fræðslu-
skrifstofan sendir fundarboð og
tilkynningar til skólanna með
sama hætti. Mestu máli skiptir
þó að kennarar notfæri sér miðil-
inn til að auðga og dýpka skóla-
starfið, eftir sínu höfði, enda
hafa umbætur í menntakerfi aldrei
komist á með tilskipunum að
ofan.
En Imba er aðeins lítið skref í
rétta átt. í framtíðinni munu
hliðstæðar miðstöðvar verða á
fræðsluskrifstofum, framhalds-
skólum og stærri stofnunum
menntakerfísins. Allar stöðvamar
verða tengdar saman með há-
hraðalínum og gögn þeirra allra
verða aðgengileg hvaðan sem er
af netinu. Það á enginn að þurfa
að hringja langlínusamtal til að
ná sambandi við íslenskt upp-
lýsinganet framtíðarinnar. í dag
eru vinir okkar í vestrinu að
undirbúa net sem skutlar svo
sem einni Britannicu á sekúndu
milli stranda. Við erum að koma
einföldustu tegund tölvusam-
skipta á koppinn. Það á ekki að
vera ofverkið okkar.
Nánari upplýsingar veitir:
Imba
c/o Pétur Þorsteinsson
(petur@kopasker. is)
Ekrugötu 3
670 Kópasker
S: 96-52164
3F - Félag tölvukennara
Lára Stefánsdóttir, kennari fjölbrautaskólanum við Ármúla, formaður 3F
3F - Félag tölvukennara er félag
þeirra sem kenna á tölvur innan
fræðslukerfisins og annarra
áhugamanna um tölvukennslu.
Tilgangur félagsins er að:
- stuðla að aukinni menntun
tölvukennara
- vera vettvangur fyrir
skoðanaskipti um tölvu-
kennslu og stuðla að þróun
hennar
- standa vörð um réttindi
félagsmanna
Til að ná þessum markmiðum
hefur félagið staðið að,
annaðhvort eitt eða í samvinnu
við aðra, námskeiðum sem
tengjast tölvukennslu. Félagið
gefúr út fréttabréf þar sem
félagsmenn fjalla um málefni
tengd félaginu. IMBA á
Kópaskeri er notuð töluvert, þar
heftir skapast ákaflega góður
vettvangur til skoðanaskipta og
samstarf. Búseta félaga er þar
engin hindrun og því skiptir engu
máli hvort sá, sem þú vilt tala við
er í Villingaholti, á Raufarhöfn
eða Akranesi, allt er það jafn
einfalt. Stjórn félagsins heldur
aðallega fundi á IMBU og er í
stöðugu sambandi.
Til þess að standa vörð um réttindi
félagsmanna hefur félagið reynt
að beita sér fyrir því að félagsmenn
fái greitt fyrir störf tengd
tölvunotkun í skólastarfi. Margir
félagsmenn búa yfir þekkingu á
tölvum og hugbúnaði sem nýtist
skólastarfi og því mikilvægt að
nýta starfskrafta þeirra skólum
til hagsbóta. Þarna er einnig
hægt að spara talsvert fé sem eytt
hefúr verið í að kaupa útselda
vinnu af tölvufyrirtækjum. Sá
árangur sem hefúr náðst í þessum
efnum er helst fyrir framhalds-
skólakennara en þeir geta fengið
kennsluafslátt og greiðslur fyrir
tækjavörslu fyrir störf tengd
tölvunotkun f skólastarfi.
Grunnskólakennarar hafa hist og
rætt málin og vilja úrbætur í
sfnum málum.
Menntamálaráðuneytið hefúr gert
samkomulag við félagið um að
efla faglegt starf meðal
félagsmanna sem starfa á
framhaldsskólastigi. í samkomu-
laginu felst m.a. að félagið miðli
upplýsingum um námsefni,
kennslu og námsmat, taki saman
skrár yfir náms- og kennslugögn,
undirbúi fúndi og ráðstefnur ásamt
því að taka þátt í endurskoðun
námskrár.
Tvisvar á ári heldur félagið
félagsfúndi þar sem fengnir eru
fyrirlesarar.
Félagsmenn eru nú um 120 manns
og nokkuð fleiri fá fréttabréfíð
sent. Um helmingur félagsmanna
kennir á grunnskólastigi og hinn
á framhaldsskólastigi. Nokkrir
kenna í sérskólum og háskólum.
Það er einlæg von okkar í félaginu
að sem flestir finni sér þar rými
til að leita leiða til þess að nýta
tölvu til að örva nemendur til
náms og starfa.
34 - Tölvumál