Tölvumál - 01.10.1991, Blaðsíða 37
Október 1991
Frá IMámsgagnastofnun
Sigríður Sigurðardóttir, tölvuráðgjafi
Starfsemi Námsgagnastofnunar
hvað varðar tölvunotkun f námi
greinist í stórum dráttum í tvö
höfuðverkefni. Annars vegar
starfsemi Kennslumiðstöðvar og
hins vegar útgáfu á kennslu-
forritum og bökum er þau snerta.
Kennslumiðstöð
í Kennslumiðstöð eru haldnir
kynningarfundir og dagskrár um
ýmislegt sem viðkemur skóla-
starfi; nýtt námsefni er kynnt,
dagskrár eru haldnar um stærri
viðfangsefni og umræðu- og
vinnufúndir haldnir þar sem tekin
eru fyrir ákveðin verkefni. Kynn-
ing á kennsluforritum og öðru
sem snertir tölvunotkun í skólum
hefúr verið fastur liður í þessari
starfsemi. Auk þess hefur
Kennslumiðstöð gengist fyrir
annars konar fúndum og sýn-
ingum sem tengjast tölvum í skóla-
starfi, oft f samvinnu við aðra.
Útgáfa
Samstarf menntamálaráðuneytis,
Námsgagnastofnunar og Reikni-
stofnunar Háskóla íslands um
útgáfu á kennsluforritum hófst
1988. Verkaskiptingin hefur
þróast íþá veru að Reiknistofnun
þýðir forritin en Námsgagna-
stofnun sér um útgáfuna. Um
það bil helmingur forritanna er
fenginn úr norrænu samstarfi á
vegum Norrænu ráðherra-
nefindarinnar. Þau henta oft bæði
fyrir grunnskóla og framhalds-
skóla, þar sem hvert forrit felur
ísér misþung verkefni. Áðuren
þetta samstarf hófst hafði
Námsgagnastofnun gefið út tvö
forrit í samvinnu við IBM á
íslandi og eitt íslenskt forrit.
Flest forrit sem Námsgagna-
stofnun gefur út eru nú á út-
hlutunarlista fyrir grunnskóla.
Starfslaunaverkefni
Árin 1989 og 1990 veitti Náms-
gagnastofnun starfslaun á sviði
námsefnisgerðar. Nú er unnið
að sex verkefnum sem tengjast
tölvunotkun í skólum. Á ráð-
stefnunni var hægt að skoða þessi:
Gagnagrunnur um lönd og þjóðir
eftir Jón Jónsson. Tölfræðilegar
upplýsingar um ríki jarðar. Unnið
á BBC-tölvu. Hentar grunn-
skólum og framhaldsskólum.
Verkefnabankinn Spurn eftir
Sólveigu Jakobsdóttur. Forrittil
verkefna- og prófagerðar þar sem
kennarar geta geymt verkefni og
valið úr eftir sínum óskum og
prentað út. Unnið á Macintosh-
tölvu (HyperCard). Sjávarlfffræði
eftir Salvöru Gissurardóttur.
Tekur fyrir Iffsskilyrði í sjónum
við ísland, þorskstofna o.fl.
Unnið í forritunarmálinu "Author
Ware Professional", fyrir Mac-
intosh-tölvur, og á að vera hægt
að flytja yfir á PC-vélar. Hentar
einkum efri bekkjum grunnskóla
og framhaldsskólum.
Könnun
Snemma á þessu ári gerðu
Námsgagnastofnun og fræðslu-
skrifstofurnar könnun á tölvueign
og notkun þeirra í þeim skólum
sem heyra undir fræðsluskrif-
stofurnar. Endanlegar niður-
stöður úr þessari könnun liggja
ekki fyrir enn, þar sem svör hafa
ekki borist frá öllum. í frum-
vinnslu þeirra gagna sem fyrir
liggja kemur m.a. fram að sam-
kvæmtsvörum 162skóla virðast
kennsluforrit vera notuð í 51
skóla (31,5%). Hins vegar eru
þau oftast notuð "takmarkað eða
óreglulega". Full ástæða er til
að hugleiða þessar niðurstöður
og velta því fyrir sér hvers vegna
kennsluforrit eru ekki meira notuð
en þessar upplýsingar gefa til
kynna.
Kennsluforrit sem
fáanleg eru hjá
Námsgagnastofnun
Alice PC, EGA eða VGA skjár
7.b. -frhsk. Enska
Ævintýraleikur, styðst lauslega
við ævintýrið um Lísu í Undra-
landi. Handbók er á íslensku.
Höf: Ingar Holm, RolfPalmberg
og Elisabeth Bang-Nielsen.
Dýraslóðir PC, litaskjár
frá 3.b. Þrautalausnir
Þjálfar nemendur í að leysa þrautir
og draga ályktanir. Hentar öllum
aldursflokkum. Höf. Thomas
O'Brian, K. Fraser.
Eftirlíking PC-vélar
lO.b. -frhsk. Stærðfræði
Kennsluforrit í líkindareikningi.
Innbyggt forritunarmál. íhand-
bók er fjöldi dæma fýrir nem-
endur. Höf. Viggo Sadolin.
Fjarvídd PC, EGA eða
VGA skjár
Myndmennt
Auðveldar skilning á fjarvíddar-
lögmáli. Síðanmáfylgjanotkun
forritsins eftir með því að sýna
hvernig þetta lögmál er notað í
myndlist. Forritið má tengja
teikniforriti. Höf. C. Sterup og
B. Belhage.
Flatarmyndir PC-vélar
7.b. -frhsk. Stærðfrœði
Hægt er að teikna punkta, línur,
37 - Tölvumál