Tölvumál


Tölvumál - 01.04.1994, Blaðsíða 6

Tölvumál - 01.04.1994, Blaðsíða 6
Apríl 1994 Fjarstýrikerfi Landsvirkjunar Eftir Hörd Benediktsson Allt frá stofnun Landsvirkjunar til ársloka 1982, náði orkusölu- kerfi Landsvirkjunar aðeins yfir suðvesturhluta landsins. Það ár var gerður samningur milli rík- isstjórnar íslands og Landsvirkj- unar um virkjanamál, yfirtöku byggðalína o.fl. Þar með var orðið ljóst, að orkusölukerfi Landsvirkjunar myndi ná yfir allt landið. Frá árinu 1974 hafði verið starfrækt fjarstýrikerfi frá bandaríska fyrirtækinu Leeds & Northrup. Það var ljóst, að gamla fjarstýrikerfið myndi ekki full- nægja hinum auknu kröfum, sem gerðar yrðu til reksturs raforku- kerfisins. Á árinu 1982 var því byrjað á ítarlegum undirbúningi að endurnýjun fjarstýrikerfisins. Val á búnaði Verkið var boðið út árið 1986 og að loknum samanburði til- boða, var samið við bandaríska fyrirtækið Harris Corporation um verkið í ársbyrjun 1987. Ráðgjafi Landsvirkjunar í þessu máli var sænska ráðgjafafyrirtækið Swed- Power. Undirverktakar Harris voru Westronics í Kanada, sem framleiddu útstöðvar fyrir fjar- stýrikerfið, International Power Machines (IPM) sem framleiddu afriðla og áriðla og verkfræði- stofan Strengur, sem sá að hluta til um gerð vatnsbúskaparforrita. Einnig tók Tölvusalan að sér sam- setningu á flestum útstöðvunum í samstarfi við Westronic. Stjórnstöð Landsvirkjunar Nýja fjarstýrikerfið var tekið í notkun árið 1989. Stjórnstöð Landsvirkjunar, við Bústaðaveg 7, hýsir kerfið og þá starfsemi, sem því er tengd. I stjórnstöðinni er tölvubúnaður fyrir fjarstýri- kerfið, þrjú stjórnborð og fjarskiptakerfi. Þar er jafnframt UPS kerfi (afriðlar, rafgeymar og áriðlar) og vararafstöð. Tölvubúnaður frá Harris Stjórntölvurnar sjálfar eru af gerðinni Harris H800 með 6 Mb vinnsluminni og 474 Mb Win- chester diskurn auk segulbanda- stöðva. Auk þess er þriðji disk- urinn í tölvukerfinu með hermi- líkan af raforkukerfinu, sem nota má við þjálfun vaktmanna. Stýri- kerfi tölvanna er VOS stýrikerfi frá Harris. Tölvurnar eru sam- tengdar og geta haft samband við báða diskana og báðar segul- bandastöðvarnar. Raforkukerfinu er hægt að stjórna frá fimm stjórnborðum. Þrjú eru í stjórnstöðinni í Reykja- vík og tvö í stjórnstöð Lands- virkjunará Akureyri. Hvert stjórn- borð hefur þrjá litaskjái nema á Akureyri. Þar eru tveir skjáir á hverju stjórnborði. I báðum stjórnstöðvunum eru stórar vegg- töflur, sem sýna yfirlitsmynd af raforkukerfinu. Mynd 1 sýnir tölvubúnaðinn ásamt útstöðvum. Útstöðvar og fjarskiptakerfi Allseru lOvirkjanirog 17tengi- virki tengd fjarstýrikerfinu. Á hverjum stað eru ein eða fleiri útstöð, samtals 33 og eru þær tengdar tölvukerfinu með 10 sendiviðtækjum. Það er því hægt að safna inn upplýsingum frá 10 útstöðvum samtímis. Yfirleitt eru 2 óháðar fjarskiptaleiðir tengdar við hverja útstöð. Meginhluti fjarskiptakerfisins er í eigu Landsvirkjunar. Um er að ræða örbylgjusambönd, raf- línusíma, leigulínur og ljósleið- ara. Landsvirkjun rekurörbylgju- sambönd, sem ná til virkjananna á Suðurlandi og til Blöndu- virkjunar. Raflínulínusími ernot- aður til að flytja boð eftir há- spennulínunum á tíðnibandinu 50 kHz til 500 kHz. Raflínusíminn ræður ekki við meiri sendihraða en 1200baud.Þaðerþvísásendi- hraði, sem er notaður í samskipt- um á milli móðurtölvu og út- stöðva. 6 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.