Tölvumál


Tölvumál - 01.04.1994, Blaðsíða 29

Tölvumál - 01.04.1994, Blaðsíða 29
Apríl 1994 Megintölvan Megintölva reiknistofunnar er af gerðinni IBM 400J. Færslu- fjöldi íkerfum reiknistofunnar er um 1.000.000 á dag þegar mest er. Heildarfjöldi notenda í banka- kerfinu er um 4000 og er fjöldi skilgreindra tækja, þ.e. skjáir og prentarar, tæplega 6000. Hefðbundnar SNA tengingar Línutölva RB er af gerðinni IBM 3745. Vélin er beintengd við megintölvuna, og er sam- skiptahraðinn 4,5 MB/s (36 Mb/ s). Frá línutölvunni liggja 111 SDLC línur og er samskiptahraði frá 9600 til 64000 b/s. Flestar línurnar eru leigulínur með mót- öldum á hvorum enda, en einnig fara nokkur háhraðasambönd um fjölsímatengingar (X.21). Af þessurn línum eru 24 utan- bæjarlínurog 18 háhraðalínur (64 kb/s). Þess má geta að RB leigir urn 1000 krn af símalínum innan- bæjar, og tæplega 8000 km utan- bæjar (langlínur) af Pósti og síma og er einn stærsti viðskiptavinur stofnunarinnar. Fjöldi stjórnstöðva, sem tengd- ar eru reiknistofunni, eru 219, þar af 78 utan höfuðborgarsvæðis- ins. Stjórnstöðvarnar, sem eru ein eða fleiri í hverju bankaútibúi, eru af ýmsum gerðum, svo sem AS/400, S/36 og Kienzle. Gáttir á staðarnetum eru af ýmsum gerð- unr, svo sem NetWare/SAA, DCA, Eicon, HP SNA+ o.fl. Flestar þessara stjórnstöðva og gátta tengjast RB sem fyrr segir unr SDLC leigulínur. Fyrir- komulag er þó nokkuð mismun- andi, og eru t.d. sameiginlegar gáttir fyrir rnörg af útibúum íslandsbanka staðsettar í höfuð- stöðvum bankans. Við 3745 línutölvuna eru enn- fremur tengd ýmis kerfi reikni- stofunnar, s.s. Þjónustusími banka og sparisjóða, hraðbankakerfið, heimildakerfi fyrirdebetkort, SNI sambönd o.fl. 3745 tengist einnig Gagnaneti Pósts og síma, fyrir nokkrar afgreiðslur banka og sparisjóða, fyrirtækjatengingar o.fl. Þessurn kerfum verða gerð nánari skil síðar í greininni. Skilgreiningtækja Öll tæki, sem tengjast 3745, eru skilgreind í ákveðnum töflum í megintölvunni. I þessum töflurn eru allar upplýsingar um línur, línuhraða, stjórnstöðvar, skjái, prentara og raunar allt sem við- kemur netinu. Hjá RB eru þessar töflur tvær og þar sem um er að ræða skilgreiningar netsins í heild, sem er gífurlegt magn upp- lýsinga, eru töflurnar stórar, eða samtals um 8500 línur. Mjög stífar reglur gilda um uppsetningu tafl- anna. Þegar gerðar eru breytingar á þessum töflum, t.d. ef verið er að fjölga skjáum í einhverri banka- afgreiðslu, þarf að villuleita og þýða töflurnar yfir á vélamál. Við það myndast keyranleg forrit sem hlaðið er niður í 3745 línutölvuna. Þessi forrit nefnast NCP (Network Control Program). Þegar skipt er um þau NCP forrit, sem keyra í línutölvunni, er netið óvirkt á meðan. Þó verkið taki ekki nerna fáeinar mínútur, þýðir það að ekki er hægt að skipta um NCP án þess að allt netkerfi reiknistofunnar sé óstarfhæft á rneðan. Því fara slíkar breytingar venjulega fram urn helgar. Þó er hægt að gera ákveðnar minniháttar breytingar á netinu ”á ilugi", en þær breyt- ingar eru ekki varanlegar. Eins og sjá má er því öll vinna við breytingar á hinu hefðbundna SNA neti fremurþunglamaleg og tímafrek. Tenging við staðarnet IBM 3172 er tölva sem tengir staðarnet við megintölvu. Tækið er beintengt við megintölvuna á sama hátt og 3745 línutölvan og er hraðinn sá sami: 4,5 MB/s. IBM 3172 er í raun IBM PS/2 Model 95 vél og eru í henni eitt tókakort og eitt ethernetkort. Gáttir og fleiri tæki, sem tengd eru tóka- eða etherneti, geta náð sambandi við megintölvuna í gegnum 3172. Samskiptahraðinn getur því verið mjög mikill, þar sem flutningsgeta er nú almennt 10 Mb/s á ethernetum og 16 Mb/ s á tókanetum. Með því að tengj- ast þessum staðarnetum RB um beina eða brýr má ná upp mun hraðari tengingum við RB en í gegnum 3745 línutölvuna. Gáttir á staðarnetum nota LLC (IEEE 802.2) samskiptahátt á tengingum við nethugbúnað í megintölvu RB. Séu gáttir stað- settar á staðarnetum utan RB má ná slíkri tengingu um beina eða brýrmeðt.d. "TokenRingSource Routing"eða"TransparentBridg- ing". Séu gáttir staðsettar á tóka- eða etherneti hjá RB má ná sam- bandi utan frá með t.d. IPX/SPX, NETBIOS, TCP/IP og DECnet samskiptaháttum, eftir því hvað viðkomandi gátt styður. Einnig má ná sambandi við megintölvu RB án þess að fara urn gátt, ef skjáhermir viðkomandi einmenn- ingstölvu styður LLC samskipta- hátt. Nokkuð er um slíka notkun innanhúss hjá RB, undir OS/2 og Windows. Fyrirhuguð er tenging við Háhraðanet Pósts og síma, og munu þá bankar, sparisjóðir og fyrirtæki tengd gagnanetinu, geta tengst reiknistofunni þannig. 29 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.