Tölvumál - 01.04.1994, Blaðsíða 33
Apríl 1994
Grjndo 1)orðui
Ólasyík
I Isl iss&nilCh
Að undanförnu hef-
ir verið unnið að upp-
setningu nýrri útgáfu
af NetView sem keyrir á
OS/2, NetView Graph-
ic Monitor Facility
(NGMF). Þetta kerfi
sýnir uppbyggingu
SNA netsins á mynd-
rænan hátt, og sýnir
jafnframt stöðu ein-
stakra hluta netsins.
NGMF er tengt Net-
View á megintölvu
með APPC tengingu
og fær samtímaupp-
lýsingar þaðan.
Þannig má t.d. sjá
stöðu allra lína og
stjórnstöðva á landsbyggðinni á
einni mynd, eða öll útibú
ákveðins banka eða sparisjóðs í
Reykjavík. Mynd 2 sýnir mynd
úr NGMF, en á henni rná sjá allar
línur RB út á land og þær
stjórnstöðvar sem þar eru.
Eftirlitskerfi fyrir
staðarnet
Þrátt fyrir að NetView sé afar
öflugt neteftirlitskerfi, hvað SNA
umhverfið varðar, nýtist það
ekki til eftirlits nreð staðarnetum,
sem þó eru víða orðinn stór hluti
af SNA netum. Ástæða þessa er
að samskipti á milli tækja á
staðarnetum fylgja ekki lögmál-
um SNA hugmyndafræðinnar.
Það eina sem sést í SNA netinu er
ástand hugbúnaðar, sem notaður
er til að herrna eftir eftir SNA
tækjum, eins og t.d. gáttarhug-
búnaður eða skjáhermar. Net-
View veit ekkert um ástand við-
komandi véla eða staðarneta, eða
t.d. beina, sem notaðir eru til að
tengja staðametin við staðarnet
RB. Á staðarnetunum og á rnilli
þeirra eru notaðir samskiptahættir
eins og TCP/IP og IPX sem
VTAM ekki þekkir.
Seyáisfjfcrður
Eylsstaðn ({^skcupsloóur
__ Jsítíipróur
^CyKeyðatlio-ðjr
/ I'] rác<rú(5cliö'ður
^yStCðvsrtlörður
Rrftiðrlslsv'k
Vestmsnnaeyjai
Til að fylgjast með þeim tækj-
um sem tengd eru staðarnetum
RB, og þannig urn 3172 er notað
NetView/6000 neteftirlitskerfi,
sem keyrir á AIX stýrikerfi á
PowerPC vél. NetView/6000
notar SNMP (Simple Network
Managenrent Protocol) sanr-
skiptahátt til að fylgjast með
staðarnetstengingum, en beinar
og brýr styðja flest SNMP. Á
þennan hátt má sjá ástand staðar-
netanna og þeirra tækja, sem
tengja þau saman.
Lokaorð
Ljóst er að þróunin í Gagnaneti
Reiknistofu bankanna er í þá átt
að bankakerfið færist æ rneira
yfir í samtengd staðarnet. Rekstur
afgreiðslukerfa og sameiginlegra
gagnagrunna fyrir bankakerfið
mun ekki breytast á næstu árum,
en breytingar gætu orðið á eftir-
litsþáttunr vegna SNA netsins.
Ljóst er að SNA netið mun ekki
hverfa og því verður áfram rekið
kerfi til eftirlits með því. Reikni-
stofan býr nú þegar yfir búnaði til
að annast eftirlit með staðar-
neturn bankakerfisins og er reikn-
að með að eftirlit nreð staðar-
netum verði stór þáttur í net-
eftirlitsþjónustu reiknistofunnar,
enda hagkvæmni þess augljós.
I Stefnumótun fyrirReiknistofu
bankannafrá 1992segirm.a.: "RB
skal tryggja, að viðskiptamenn
hennar fái aðgang að gögnunr
sínum í RB á stöðluðu fyrir-
spurnaformi og hægt sé að hafa
beint samband milli forrita í RB
og forrita í búnaði aðila." Enn-
fremur segir: "RB stefnir að því
að skapa það umhverfi, sem gerir
viðskiptamönnum RB kleift að
velja þann vélbúnað og/eða hug-
búnað, sem uppfyllir opinbera
og útbreidda staðla, sem náð hafa
almennri útbreiðslu og eignar-
aðilareru sammálaum." ITækni-
stefnu RB frá 1992 segir m.a.:
"Fyrirkomulag á tölvuneti RB
verði endurskoðað í ljósi tækni-
nýjunga og nýrra alþjóðlegra
staðla." Af þeirri lýsingu á net-
kerlinu, sem hér fer á undan, sést
að þessari stefnu hefir verið fylgt
vel eftir.
Ólafur Halldórsson er
rafmagnsverkfrœðingur
og starfar á Tæknisviði RB.
33 - Tölvumál