Tölvumál - 01.04.1994, Blaðsíða 41
Apríl 1994
árekstrarhættu. Sásem vinnurvið
viðkonrandi vinnustöð getur
slegið inn upplýsingar handvirkt
og haldið áfram að stjórna þeim
vélum sem þegar voru í gagna-
grunni viðkomandi. Þegar kerfið
kemst í eðlilegt ástand að nýju
þá sameinar það þessar upp-
lýsingar við miðlæga gagna-
grunninn og kerfið vinnur á
eðlilegan hátt eftir það.
Ytri samskipti
Til að kerfið geti unnið í sam-
starfi við aðrar flugstjórnarmið-
stöðvar í kringum íslenska flug-
stjórnarsvæðið verða gögn að
geta flætt á milli kerfa. Þær upp-
lýsingar semfaraámilli íþessum
samskiptum eru flugáætlanir,
flugheimildir, upplýsingar um
staðarákvarðanir flugvéla, upp-
lýsingar um veður svo eitthvað
sé nefnt.
Kerfið tekur á móti þessum
upplýsingum, vinnur úr þeim,
gerir viðeigandi rástafanir og
sendir frá sér svipaðar upp-
lýsingar til annarra flugstjórnar-
miðstöðva.
Vinnsla þessara upplýsinga
geturfalist í sendingu upplýsingar
til þess flugumferðarstjóra sem
ber ábyrgð á viðkomandi flugvél,
reikna nýjan flugferil fyrir
viðkomandi vél miðað við nýja
staðarákvörðun, endurreikna
flugferla allra véla vegna nýn-a
upplýsinga um vind í háloftum.
Þessi samskipti fara frarn á
gagnaneti sem flugstjórnarmið-
stöðvar eru tengdar við og
nefndar voru í inngangi. Kerfið
er því tengt öðrurn kerfurn sem
starfa við sörnu verkefni í öðrurn
löndum og taka við upplýsingum
eða senda til okkar kerfis. Þar er
haldið áfram að meðhöndla
upplýsingar um flugvélar sem eru
á flugi og hverfa úr umsjón
íslenska kerfisins.
Niðurlag
Ljóst er að hið nýja FDPS
kerfi Flugmálastjórnar mun valda
byltingu í flugumferðarstjórn á
íslandi og sjálfvirkni í flugum-
ferðarstjórn á norður Atlandshafi
mun fleygja frarn með þessu kerfi.
Sjálfvirknivæðing á þessu sviði
setur miklar kröfur um rekstrar-
öryggi þessara kerfa sem rnunu
keyra allan sólarhringinn allt árið
um kring. Kostir þess að vera
með dreifða vinnslu koma ótví-
rætt í ljós í FDPS þar sem fyllsta
öryggis þarf að gæta. Það rnark-
mið næst með því að hægt er að
taka yfir þá hluta kerfisins sem
verða óvirkir og undir öllurn
kringumstæðum hægt að komast
í sama ástand og notast er við í
dag, þ.e. handvirk stjórnun.
Höfundar eru verkfrœð-
ingar hjá Flugmálasíjórn
Islands
Mynd 2. Myndin sýnir yfirlit yfir nettengingar í virka hluta
kerfisins og samskipti við önnur kerfi.
41 - Tölvumál