Tölvumál - 01.04.1994, Blaðsíða 11
Apríl 1994
QQQ9QQ
aaaQQa...
QQ
ISGATT
tölvupóstmiðstöð Skímu hf.
ISGATT
/ 7.
cc:Mail
MS Mail
Viðbætur: Lotus Notcs, MHS, SNADS o.fl.
SMTP
SKÍMA HF.
aaaaaa
hjá fyrirtækjum til þess að um-
breyta tölvupósti og tölvupóst-
gáttir krefjast sérþekkingar á þeim
tölvupóstkerfum sem tengja á
saman. Séu kerfin samtengd sam-
kvæmt X.400 tölvupóststaðli þarf
auk þess sérþekkingu á þeim
staðli. Tölvupóstkerfi og staðlar
taka smám saman breytingum og
þá þarf að endurnýja gáttarbúnað.
Rekstur tölvupósttenginga getur
orðið umfangsmikill. Það sama
gildir um þær og aðrar tölvu-
tengingar að rekja þarf og leið-
rétta bilanir sem upp koma auk
þess sem fylgjast þarf með að
allar tengingar séu í gangi. Alll
þetta er kostnaðarsamt fyrir fyrir-
tæki, bæði sérhæfður búnaður
og rekstur hans auk þess sem sér-
þjálfa þarf starfsfólk til að sinna
samtengingum af þessu tagi eða
kaupa að sérfræðiþekkingu.
Tölvupóstmiðstöðvar
Þau atriði sem hér hafa verið
rakin hafa leitt til þess að erlendis
hefur þróunin orðið sú að risið
hafa sérstakar tölvupóstmið-
stöðvar, ýmist á vegum fyrirtækja
sem þegar eru starfandi á fjar-
skipta- og upplýsingamarkaði
eða fyrirtækja sem stofnuð hafa
verið sérsaklega til að sinna verk-
efni af þessu tagi. Þessi fyrirtæki
eru yfirleitt í eigu einkaaðila, enda
um virðisaukandi þjónustu að
ræða sem víðast fellur utan einka-
réttar ríkisins.
Tölvupóstmiðstöð
Skímu
Hingað til hefur engin tölvu-
póstmiðstöð verið starfandi á
Islandi, enda þörfin ekki verið
fyrir hendi fyrr en á allra síðustu
misserum. Nú hefur fyrirtækið
Skíma hf. hins vegar hafið rekstur
slíkrar miðstöðvar. Um þá tölvu-
póstnriðstöð geta nú tengst
algengustu tölvupóstkerfin hér á
landi, þ.e. cc:Mail og MS Mail,
auk kerfa sem byggjast á SMPT
og X.400 samskiptum. Verið er
að athuga áhuga fyrirtækja á teng-
ingum fyrir önnur kerfi s.s. Lotus
Notes og MHS. Reynist nægur
áhugi á þessum eða öðrum teng-
ingum verða þær einnig settar
upp. í tölvupóstmiðstöð Skímu
er allur nauðsynlegur búnaður
til að tengja saman tölvupóstkerfi.
Fyrirtæki sem vilja komast í tölvu-
póstsamband við önnur fyrirtæki
þurfa því ekki sjálf að setja upp
slíkan búnað og ekki er þörf á að
setja upp beinar tengingar við
þau fyrirtæki sem ná þarf tölvu-
póstsambandi við. Þess í stað
þurfa fyrirtæki aðeins eina teng-
ingu við tölvupóstmiðstöðina
með þeim hætti sem eðlilegastur
er í tölvukerfi hlutaðeigandi
fyrirtækis. Um þá tengingu kom-
ast þau í samband við öll önnur
fyrirtæki sem einnig eru tengd
tölvupóstmiðstöðinni óháð því
hvaða tölvupóstkerfi þau nota.
Tölvupóstmiðstöðin sér um að
samræma notendaskilgreiningar
þannig að fyrirtæki þurfa ekki
að breyta nafngiftum í eigin
tölvupóstkerfum þótt þau komist
í tölvupóstsamband við önnur
fyrirtæki. I stuttu máli má segja
að fjárfesting í sérhæfðum sam-
skiptabúnaði og þjálfun og þekk-
ingu umsjónarmanna með teng-
ingum ásamt kostaði við rekstur
tenginganna flytjist frá fyrir-
tækjum til tölvupóstmiðstöðvar-
innar.
Uppbyggingtölvu-
póstmiðstöðvar
Skímu
Uppbygging tölvupóstmið-
stöðvar Skímu (ÍSGÁTT) er sýnd
á meðfylgjandi mynd. Þunga-
miðja tölvupóstmiðstöðvarinnar
er tölva með sérhæfðum hug-
búnaði til að umbreyta tölvu-
póstskeytum milli ólíkra tölvu-
póstkerfa. Sérstakurendabúnaður
þjónar tengingum af hverri teg-
und. Aðgangur að þjónustunni
er ýmist um upphringisamband,
fasta línu, X.25-eða "router"-
tengingu. Fljótlega verður boðið
upp á aðgang að Internet og verið
er að kanna tengingar við önnur
almenn tölvupóstnet. Boðið
verður upp á þjónustu við önnur
11 - Tölvumál