Tölvumál


Tölvumál - 01.04.1994, Blaðsíða 38

Tölvumál - 01.04.1994, Blaðsíða 38
Apríl 1994 Nýtt og fullkomið fluggagnakerfi fyrir íslenskt flugstjórnarsvæði eftir Reyni Sigurðsson og Ólaf Jóhann Ólafsson Inngangur Síðar á þessu ári er væntanlegt til landsins nýtt tölvukerfi í flug- stjórnarmiðstöðina á Reykja- víkurflugvelli, Fluggagnakerfið (e. Flight Data Processing Sy stem, FDPS). Hér er um að ræða eitt af stærri samstæðu tölvukerfum landsins sem byggja á gerð opinna kerfa og unix stýrikerfa. FDPS er ætlað að halda utan um alla þá fluguntferð sem fer urn stjórnað loftrými í íslenska flugstjórnar- svæðinu. Á hverju ári fara um það bil 60 - 70 þúsund flugvélar í gegnum íslenska flugstjórnarsvæðið sem spannar frá norðurpól meðfram ströndum Noregs, suður fyrir Færeyjar og yfir mestan hluta Grænlands. Meginhluti þessarar umferðar eru flugvélar á ferðum milli Evrópu og Ameríku og hefur þessi tala farið hækkandi með árunum. Vegna tímamismunar m.a. er þessi umferð rnikið til í álagspunktum, þannig geta verið allt að fOO vélar í svæðinu á sama tíma og allt að 300 - 400 flugvélar í stjórnuðu loftrými á einum sólahring. í farþegafjölda getum við verið að tala um 100 þúsund manns sem eru háð því að umferðin gangi rétt, sé á tíma og áfallalaust. Nánar skilgreint þá er veiga- mesta hlutverk kerfisins að sjá fyrir um árekstrar hættu, þ.e. auka öryggi flugvéla, ásamt því að auka sjálfvirkni í almennri vinnslu. Flugstjórnarmiðstöðin getur með þessari auknu sjálf- virkni annað meiri flugumferð og veitt betri þjónustu. Dæmi um það sem verður sjálfvirkt er sam- hæfing við aðrar flugstjórnar- miðstöðvar (Kanada, Skotlandi, Noregi) samskipti milli íslenskra svæða, móttaka veðurupplýsinga frá Veðurstofu, móttaka skeyta frá flugvélum (t.d. staðarákvarð- anir, flugáætlanir, o.s.frv.). Kerfisuppbygging Vélbúnaðurinn er nánast allur úr IBM RS/6000 fjölskyldunni, vinnustöðvar af gerð 320 og 360, Víðnet Bifreiðaskoðunar frh. ökutækjaskrá þegar litið er lengra fram í tímann. Ef við leyfum okkur að gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn má þó sjá fyrir sér að næsta róttæka endurnýjun á ökutækjaskrá hefjist um næstu aldamót. Kröfurnar til kerfisins gætu þá orðið eitthvað á þessa leið: Þegar slegið er inn númer öku- tækisins eiga ekki einungis allar tæknilegar upplýsingar að birtast á skjánum, heldur skal einnig koma fram mynd af ökutækinu. Á íslandskorti á skjánum verður einnig hægt að sjá nákvæma staðsetningu ökutækisins þessa stundina, á hvaða leið það er, hversu hratt því er ekið og hver situr undir stýri! Með ákveðnum aðgerðalykli verður hægt að komast í símasamband við öku- tækið og gefa ökumanninum nokkur góð ráð frá stóra bróður. Þótt tæknilega sé líklega hægt að uppfylla þessar ævintýralegu kröfur í dag, á nú trúlega ntikið vatn eftir að renna til sjávar áður en þetta verður að veruleika. Högni Eyjólfsson 38 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.