Tölvumál - 01.04.1994, Blaðsíða 9
Apríl 1994
ákveðnum rafölum. Það er
nokkuð flókið hvernig forritið
velur hverjum þeirra eigi að
stjórna, en í aðalatriðum tekur
það tillit til MW óskgildis, sem
hver rafali hefur. Hægt er að láta
vatnsbúskaparforrit gefa raf-
ölunum óskgildi með tilliti til
vatnsmagns í miðlunarlónum og
álagsspá.
Þjálfunarhermir
Það er hægt að tengja vara-
tölvuna við þriðja diskinn, sem
geymir hermilíkan af raforku-
kerfinu. Hægt er að nota hvaða
stjómborð sem er í stjórnstöðinni
í Reykjavík fyrir þjálfunar-
herminn. Bæði er hægt að flytja
raunverulegt ástand frá raun-
tínrakerfinu yfir á þjálfunar-
herminn og eins er hægt að búa
til dærni. Allar skjámyndir eru
eins og í rauntímakerfinu og allar
aðrar aðstæður eru eins. Þjálf-
unarhermirinn er notaður til
þjálfunarþeirra rnanna, sem sinna
stjórnun raforkukerfisins.
Stjórn raforkukerfisins
Tveir menn, sem sinna rekstri
raforkukerfisins, standa vaktir
allan sólarhringinn í stjórnstöð-
inni í Reykjavík. Stjómstöðin á
Akureyri er ekki rnönnuð að
staðaldri. Þeir, sem sinna fjar-
gæslunni, eru yfirleitt rafvirkjar
eða vélstjórar, senr hafa langa
starfsreynslu að baki hjá Lands-
virkjun. Aður fyrr voru staðnar
sólarhringsvaktir í öllum virkj-
unum Landsvirkjunar. Þær voru
lagðar af smám sarnan, eftir að
gamla fjarstýrikerfið á Geithálsi
var tekið í notkun. Avallt eru þó
menn til taks á hverju svæði,
enda eru veruleg verðmæti fólgin
í þeim búnaði, sem Landsvirkjun
rekur.
Ný kynslóð
fjarstýrikerfa
Miklar breytingar hafa orðið í
uppbyggingu fjarstýrikerfa fyrir
raforkufyrirtæki, síðan Lands-
virkjun samdi við Harris urn þetta
verk. Nú eru vinnslunni yfirleitt
dreift á nrargar tölvur, sem eru
nettengdar við öfluga stjórntölvu.
Tölvur í stjómborðum vaktmanna
geyma þá afrit af gagnagrunninum
ásamt skjámyndum. I stað þess
að fjölga skjám á stjórnborðum
vaktmanna, hefur verið tekið upp
gluggaumhverfi á grafískum
skjánr.
Það nýjasta er "intelligence
alarming", þar sem tölvan er látin
vinna úr miklurn fjölda viðvarana
og mælinga til að geta sett fram
skýr skilaboð til vaktmanna urn
hvað sé að í raforkukerfinu og
hvernig best sé að bregðast við
því.
Hörður Benediktsson er
yfirverkfrœðingur raf-
eindamála við stjórnstöð
Landsvirkjunar.
9 - Tölvumál