Tölvumál


Tölvumál - 01.04.1994, Síða 12

Tölvumál - 01.04.1994, Síða 12
Apríl 1994 tölvupóstkerfi, s.s. MHS, Da- Vinci, Lotus Notes og SNA, ef áhugi reynist á tengingum fyrir þessi kerfi. Pósthólfaþjónusta fyrir einstaklinga og smærri fyrirtæki Einstaklingunr og fyrirtækjum sem ekki eru með tölvupóstkerfi stendur til boða að fá tölvupóst- hólf í tölvumiðstöðinni. Með því móti geta þeir einnig nýtt sér kosti löl vupóstsamskipta og kom- ist í samband við alla aðra aðila í tölvupóstmiðstöðinni. Póst- hólfaþjónustan byggist á tölvu- póstkerfinu OpenMail og fá not- endur pósthólfanna OpenMail biðlara til tengingar við póst- hólfin hjá ÍSGÁTT. OpenMail biðlarar eru grafískir og eru til fyrir Windows, Mac og Unix. Notkun þeirra er hliðstæð notkun þróaðra tölvupóstkerfa hvað varðar viðmót og notkunar- möguleika. Niðurlag Það hefur verið áætlað að tölvupóstkerfum í höfuðstöðv- um og útibúum 2.000 stærstu fyrirtækja Bandaríkjanna hafi fjölgað úr 94.000 árið 1991 í 180.000 í fyrra og að notendum ljölgi unr 17-19% árlega. Sam- hliða aukinni notkun innan fyrir- tækja hefur eftirspurn eftir tölvu- póstsamskiptum milli fyrirtækja vaxið hröðum skrefum. Islensk fyrirtæki og stofnanir eru byrjuð að feta tölvupóstslóðina og þau sem þegar eru komin nokkuð áleiðis vita að ekki verður aftur snúið. Kostir tölvupóstsamkipta eru ótvíræðir og frekari fram- þróun á því sviði hér á landi mun án efa verða til mikilla hagsbóta og hagræðingar í fyrirtækjarekstri og starfsemi opinberra stofnana. Dagný Halldórsdóttir er rafmagn s v erkfrœ ðingur og framkvæmdastjóri Skímu hf. Punktar... Þjónustunúmer "Ég hef ýtt og ýtt á litla fót- stigið með hnappnum en ekkert gerist" sagði ringlaður lölvunotandi þegar hann hafði samband við þjónustu- deild tölvusalans. Það kom seinna í ljós að "fótstigið" varmúsin. Núnaþegartölvu- salar einmenningstölva eru farnir að leggja síaukna áherslu á að selja einstakling- um tölvur þá kemur í ljós að það getur verið erfitt að þjónusta notendur sem vita álíka rnikið um tölvur og kínversku. Alll upp í 70% þeirra sem nú hringja í þjónustunúmer eru nýir notendur. Því eru spurn- ingar eins og það hvar þessi "any" lykill sé, svo algengar að sumir framleiðendur velta fyrir sér að breyta textanum "Press Any Key" í "Press RetumKey". Músinereinnig vandamál. Einn viðskipta- vinur hringdi til tölvusalans og sagði að það væri svo erfitt að nota músina með rykhlífinni á. Rykhlífin reynd- ist vera plastið sem músinni var pakkað inn í. Annar beindi músinni að skjánum og þrýsti ítrekað á hnappinn án þess að nokkuð gerðist. Einn notandi gat ekki lesið gömludisklinganasína. Hann reyndist líma merkimiða á disklinginn, setja hann í rit- vélina og vélrita nafnið síðan á. Annar var beðinn um að senda afrit af disklingi sem hann gat ekki lesið, til frekari skoðunar. Stuttu seinna barst ljósrit af disklingnum. Enn annar gat ekki sent fax með tölvunni sinni. Hann reyndi að halda pappír framan við skjáinnogýtaásendilykilinn. Svo var það einn sem kvarl- aði undan því að lykla- borðið virkaði ekki lengur þó hann væri nýbúinn að þvo það. Hann hafði sett það í sápuvatn og látið það liggja yfir nóttina. Að síðustu var það sá sem kvartaði yfir því að tölvan héldi því fram að hann væri vitlaus og einskis nýtur. Þjónustumaðurinn sagði honum að "bad command" og "invalid" væri ekki meint persónulega. 12 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.