Tölvumál


Tölvumál - 01.04.1994, Page 22

Tölvumál - 01.04.1994, Page 22
Apríl 1994 TölvuBónus Það sem verður hins vegar mesta ógnunin við íslensku tölvu- salana á næsta ári verður land- ganga erlendra tölvusala sem munu opna hér útibú. Tölvusalar sem nýtasértil hins ítrastanútíma- tækni í sölu og samgöngunt og lágmarka þannig álagningu og kostnað. Þeir munu leggja aðal- áherslu á búnað sem hefur há- marksveltuhraða nteð lágmarks- tilkostnaði og þjónustu - eins konarTölvuBónus verslanir. Slík fyrirtæki hafa átt mikilli velgengni að fagna í Bandai íkjunum og nú eru þau að færa út kvíarnar til annarra landa. Góðar samgöngur við Island og þroskaður tölvu- nrarkaður gera landið að mjög álitlegri tilraunastöð fyrir slíkar verslanir. Þá mun það líka hafa mikil áhrif á tölvusölu á næsta ári að endurnýjun tölvubúnaðarmun al- mennt verða frestað eins lengi og hægt er. Því má búast við allnokkrum samdrætti. Hugbúnaðarhús Gengi íslenskra hugbúnaðar- fyrirtækja hefur verið þokkalegt á árinu þó flestir tali um að verk- efnalistinn sé nú styttri en oftast áður. Að mínu mati verða hug- búnaðarhúsin að sækja inn á nýja markaði hér heima og erlendis. Að mörgu leiti getur það orðið þeim erfitt því fæst þeirra státa af sterkum sjóðum eða reynslu á þessu sviði. Eg held hins vegar að þekkingin til þess að spjara sig á þessum markaði sé til staðar. Mörg hugbúnaðarhús og for- ritarar þurfa nú að tileinka sér þau nýju verkfæri sem til boða standa til kerfisgerðar. A ég þar við myndrænu forritunarverk- færin. Hætt er við að á næstu árum fjari undan þeim sem ekki hafa yfir þekkingu á þessu sviði að ráða, því stór hluti tölvunot- enda situr við tölvur með nrynd- rænum notendaskilum og ekki er frambærilegt að bjóða forrit sem eru með textaásjónu, hversu góð sem þau kunna annars að vera. Þá opna verkfæri eins og Notes nýja möguleika í hagræðingu og skipulagi vinnuferla í fyrirtækjum og því verður í vaxandi mæli þörf fyrir þekkingu þeirra sem geta nýtt öll þessi nýju tól og tæki sem eru að koma fram. Kröfur um aukna nýtingu Á árinu 1994 munu fyrirtæki almennt gera auknar kröfur til starfsmanna sinna um að tölvu- kerfin verði nýtt mun betur til hagræðingar og vinnusparnaðar. Því munu þeir sem geta aðstoðað þau á þessu sviði eiga góða daga framundan á næsta ári. Veltan í tölvugeiranum Mjög erfitt er að festa hendur á heildarveltunni hjá tölvufyrir- tækjum en tölur sem ég hefi undir höndum benda til þess að: - Tölvuseljendur velli á bilinu 4,5 - 5 milljarðar króna - Hugbúnaðarhús velti á bilinu 1- 1,2 milljarðar króna - Önnur þjónustufyrirtæki á tölvusviði 2- 2,5 milljörðum króna Eða samtals: 7,5-8,7 milljarðar króna Búast má við að innri tölvu- kostnaður fyrirtækja sé á bilinu 3-6 milljarðar króna og heildar- stærð ntarkaðarins því um 10-15 milljarðar. Framtíöarsýn Á síðasta ET degi spáði ég því að verð á tilbúnum hugbúnaði myndi fara lækkandi á þessu ári. Það hefur gengið eftir í Banda- ríkjunum og Evrópu, en í minna mæli hér. Mjög auðvelt er að kaupa töflureikni, ritvinnslu eða gagnagrunn fyrir 100-200 $, eða um 50% af því sem hann kostaði almennt á síðasta ári. Sé keyptur samsettur pakki fást 3-5 forrit fyrir 2-400$. Slíkir pakkar eru mjög vinsæliren 50% af veltu Microsoft á notendahugbúnaði á þessu ári kom frá sölu slíkra pakka. Þegar kaupendur hér á landi fara að átta sig á þeinr verðmun sem er á milli íslands og annarra landa má búast við því að verð fari lækkandi hér á landi til samræmis við það sem gerist annars staðar, eða þá að hugbúnaðarsalan ílyst úr landi til póstverslana. Þjónusta hækkar Samfara lækkun hugbúnaðar fer þjónusta við hann að kosta þiggjendur hennar meiri peninga. Þannig mun það almennt ætlun söluaðila í Svíþjóð að hætta að veita ókeypis símaþjónustu við eigendur hugbúnaðarpakka. Ein- hvers staðar hlýtur það að koma fram að verðið á hugbúnaðinum lækkar. Geisladrifum fjölgar CD-ROM geisladrif náðu, á því ári sem er að líða, inn á enn fleiri skrifborð en nokkru sinni áður. Sala drifa á þessu ári, á heims- markaði, er tugföld sala síðust fimm ára samanlagt. Margt bendir til að þessi bylting sé að ná hing- að til lands, enda bjóða helstu tölvuseljendur nú tölvur með innbyggðum CD-ROM drifum. 22 - Tölvumál

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.