Tölvumál - 01.04.1994, Blaðsíða 28
Apríl 1994
Gagnanet Reiknistofu bankanna
Eftir Ólaf Halldórsson
Reiknistofa bankanna er annað
tveggja stærstu tölvufyrirtækja
landsins. Reiknistofan er að stærs-
tum hluta í eigu banka og spari-
sjóða og annast rekstur ýmissa
kerfa fyrir bankakerfið. Ber þar
helst að nefna afgreiðslukerfi og
sameiginlega gagnagrunna. Allir
afgreiðslustaðir banka og
sparisjóða eru tengdir reiknistof-
unni á einn eða annan hátt og
myndar bankakerfíð í heild þannig
víðfeðmt tölvunet, sem spannar
landið allt.
Hér á eftir fer lýsing á helstu
hlutum þessa tölvunets, sem hér er
nefnt Gagnanet Reiknistofu
bankanna.
Uppbygging netsins
Netkerfí reiknistofunnar hefir frá
upphafí byggt á hugmyndafræði
frá IBM, sem nefnist SNA
(Systems Network Architecture).
SNA net RB samanstendur í aðal-
atriðum af einni megintölvu sem
tengd er línutölvu, með mjög
hraðvirku sambandi. Frá línutölv-
unni liggja síðan mishraðvirkar
leigulínur til stjómstöðva í bönk-
um og sparisjóðum, og eru ein-
stakir skjáir og prentarar tengdir
stjómstöðvunum. A þessum leigu-
línum er notaður SDLC (Syn-
chronous Data Link Control)
samskiptaháttur. Nokkrar banka-
afgreiðslur eru þó tengdar um
Gagnanet Pósts og síma, X.25.
Öllum tækjum í netinu má stjóma
með hugbúnaði í megintölvunni.
Vélbúnaður er að mestu leyti frá
IBM en þó er töluvert um stjóm-
stöðvar frá öðmm framleiðend-
um, svo sem Kienzle og DEC.
Einnig eru víða notaðar einmenn-
ingstölvur með skjáhermibúnaði
í stað hefðbundinna 3270 skjáa.
Meginhluti netsins er afgreiðslur
banka og sparisjóða um land allt.
Helsta vinnsla á netinu er hefð-
bundin bankaafgreiðsla og fyrir-
spumir. A undanfömum árum hefir
verið lögð mikil áhersla á beinlínu-
væðingu bankakerfisins þannig
að bókanir eigi sér stað samtímis,
auk þess sem þjónusta hefir aukist
í bankakerfinu. Þetta hefír leitt þess
að sífellt er verið að auka hraða
á línum tengdum RB.
Staðarnet
Á undanförnum árum hefir
notkun einmenningstölva aukist
mjög í bankakerfinu, eins og annars
staðar, og eru staðarnet orðin
býsna algeng þar. Notkun
skjáherma á einmenningstölvum
hefir víða leyst hina hefðbundnu
SNA skjái af hólmi. Einmenn-
ingstölvur á staðametum tengjast
SNA netinu um svonefndar gáttir,
en það eru í flestum tilfellum
einmenningstölvur, sem líkja eftir
SNA stjómstöðvum.
Ymsir möguleikar opnast við
notkun einmenningstölva í SNA
netum. Merkilegastur er sennilega
möguleikinn á að ná upp sam-
skiptum á milli fonits í megin-
tölvu og forrits í einmennings-
tölvu, svonefnt APPC (Application
Program to Program Com-
munication). Gott dæmi um slíkt
er kerfi sem RB hefir skrifað í
tengslum við debetkortakerfið.
Þar talar Windowsforrit, skrifað í
C, við afgreiðsluforrit (CICS) í
megintölvunni. Hægt er að senda
fyrirspurn úr'Windowsforritinu um
ákveðinn aðila, t.d. með kenni-
tölu. Megintölvuforritið sendir þá
umbeðnar upplýsingar til
Windowsforritsins, t.d. nryndina
á debetkorti viðkomandi, og birtist
myndin þá á skjánum.
Til að mæta þeirri þróun sem á
sér stað í uppbyggingu staðameta
í bankakerfinu og aukinni notkun
einkatölva, hefir reiknistofan
kornið sér upp búnaði til að bein-
tengja staðarnet bankakerfisins
við megintölvu RB um beina eða
brýr. Sú leið, sem reiknistofan
hefir valið að fara í tengingum
við staðarnetin, býður upp á
sveigjanlegra utanumhald og
þægilegri og nútímalegri aðferð-
ir við skilgreiningar á tækjurn en
tíðkast í hefðbundnum SNA skil-
greiningum.
Mynd 1 sýnir í grófum dráttum
Gagnanet Reiknistofu bankanna.
Hinar svokölluðu hefðbundnu
SNA tengingar eru efst á mynd-
inni en tengingar við staðarnet
má sjá neðst.
28 - Tölvumál