Tölvumál - 01.04.1994, Side 32
Apríl 1994
nú unnið að stækkun þess í 56
línur, sem er ofurlítið til bóta.
Búist er við verulegri aukningu
notkunar vegna gjaldtöku banka
á fyrirspurnum til gjaldkera í
bönkum, auk þess sem fyrirhugað
að bæta við þjónustumöguleika
bankasímans, m.a. með milli-
færslumöguleikum, greiðslu
gíróseðla, afborgunum skulda-
bréfa o.fl. Reiknistofan hefir
óskað eftir að fá að endurnýja
bankasímakerfið, einkum þar sem
ljóst er að núverandi kerfi mun
aldrei geta annað aukinni notkun,
en einnig þar sem kerfið er orðið
mjög gamalt og úrelt, óstöðugt
og dýrt í rekstri. Akvarðanir um
slíkt liggja hjá bönkum og spari-
sjóðum.
Hraðbankakerfið
Hraðbankarnireru tengdiiIBM
S/36 vél hjá reiknistofunni um
SDLC línur. Vélin er tengd af-
greiðslukerfum reiknistofunnar,
en getur sinnt hraðbönkunum þó
kerfi RB séu ekki virk. Línurnar
tengjast sérstökum tengibúnaði
hjá RB, en lil að nýta línurnar
betur eru nokkrir hraðbankar
tengdir sarnan á línu í nokkurs
konar hring. Það getur þó haft
það í för með sér að ef einn
þeirra missir samband við netið,
verður allur hringurinn óvirkur,
og þar með allir hraðbankar sem
á honum eru. Nokkuð hefir borið
á bilunum í hraðbankakerfinu,
en unnið er að endurnýjun á
stórum hluta kerfisins.
Hraðbankarnir vinna á svip-
aðan hátt og bankasíminn að því
leyti að búnaðurinn tekur við
upplýsingum frá notandanum, og
framkvæmir ákveðnar aðgerðir
í afgreiðslukerfum RB í samræmi
við þær. Nú eru um 26 hraðbankar
á landinu, flestir í Reykjavík.
Færslufjöldi hraðbankanna er um
45.000 á mánuði og fer vaxandi.
Heimildakerfi
debetkorta
Heimildakerfi debetkorta er
staðsett hjá RB. Kerfið virkar á
þann hátt að kortalesarar (posar)
í verslunum hringja í búnað hjá
RB, tengdan afgreiðslukerfum
reiknistofunnar, sem athuga stöðu
á tékkareikningi viðkomandi
korthafa. Sé heimild til úttektar
fyrir hendi, færist úttektin sam-
stundis á reikning korthafa.
Posarnir hringja í reiknistofuna
um upphringilínur eða Gagnanet
Pósts og síma. Nú eru í notkun 10
innhringilínur og 8 tengirásir við
X.25. Fyrirhugað er að fjölga
innhringilínum við aukna notkun
debetkorta.
Heimildakerfið er tengt Visa
og Euro vegna notkunar Debet-
korta erlendis. Notkun kortanna
erlendis er því einungis möguleg
ef heimild er til úttektar af
ávísanareikningi korthafa hér
heima.
X.400 og EDIFACT
RB skoðar nú hvaða kostir
bjóðast til þess að koma upp
X.400 póstþjónustu og samskipt-
unr samkvæmt EDIFACT staðli.
Ekkert hefir þó verið ákveðið í
þessu efni þegar þetta er skrifað.
Líklegt er þó að RB gangsetji
X.400 pósthús, sem yrði tengt
Gagnaneti Pósts og síma (X.25)
og háhraðanetinu. Auk þess yrði
búnaður til að þýða nokkrar
gerðir af EDIFACT skeytum.
Með þessum búnaði er fyrirhug-
að að bankar og sparisjóðir geti
boðið viðskiptavinum sínum
þrenns konar þjónustu:
Millifærsla frá einum banka-
reikningi til annars. Þetta væri
einkum notað til að greiða fyrir
vöru eða þjónustu. Greiðsla frá
einum reikningi til margra. Þetta
væri notað fyrir launagreiðslur
o.þ.h. Millifærslur af mörgum
reikningum inn á einn reikning.
Þetta myndu veitustofnanirog slík
fyrirtæki nota til að innheimta
afnotagjöld og áskriftir.
Að undanförnu hefir hópur á
vegum ICEPRO nefndarinnar
skoðað þá staðla sem til eru
fyrir skeyti vegna bankavið-
skipta. Hópurinn hefir valið
nokkur stöðluð skeyti og stað-
fært þau. ICEPRO nefndin mun
væntanlega kynna þau fljótlega.
Neteftirlitskerfi
Hér að ofan hefir verið talið
upp það markverðasta í Gagna-
neti Reiknistofu bankanna. Auð-
velt er að sjá að meðhöndlun
kerfisins væri vonlaus ef ekki
kæmu til öflug neteftirlitskerfi.
SNA netkerfi grundvallast á
hugbúnaði sem nefnist VTAM
(Virtual Telecommuncations Ac-
cess Method). VTAM fylgist með
stöðu á öllum tækjum (skjáurn,
prenturum o.fl.) sem skilgreind
hafa verið í netinu og reynir jafn-
framt að halda öllum tækjum
netsins í því ástandi sem óskað er
eftir. Hægt er að koma á eða
rjúfa tengingu við ákveðin tæki
í netinu með því að gefa VTAM
skipanir þar um, og einnig má
þannig sjá stöðu tenginga við
tæki. VTAM heldur þannig utan
urn öll samskipti á netinu, en
miðlar auk þess upplýsingum til
NelView, kerfis sem reiknistofan
notar til eftirlits með öllu netkerfi
bankakerfisins. NetView heldur
saman upplýsingum um stöðu
netsins í heild á skipulagðan hátt
og skráir í gagnagrunna allar upp-
lýsingar um truflanir, samskipta-
villur o.þ.h. í netinu, tengitíma
o.fl. Hægt er láta NetView bregð-
ast á ákveðinn hátt við atvikum
sem eiga sér stað í netinu. A
þennan hátt má byggja upp mikla
sjálfvirkni í netinu, og einfalda
alla vinnu við eftirlit með því.
32 - Tölvumál