Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1981, Qupperneq 25

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1981, Qupperneq 25
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1981. 25 Verður Ungmennaf élag Svarfdæla lagf niður? Undirtektir við starfi félagsins ekki verið góðar —segja sfjórnarmenn félagsinssem vil ja losna úr sfjóm „Þá kom einnig fram, að þrátt fyrir að starf UMFS hafi verið allgott síðan núverandi stjórn tók við, hafa undir- tektir bæjaryfirvalda og bæjarbúa al- mennt við starfsemina ekki verið góðar og sér stjórnin ekki fram á miklar breytingar í þeim efnum, en starfsemin muni halda áfram að byggjast nær ein- göngu á starfi stjórnar og verði því ekki mjög áhugavert að standa í þessu áfram og hefur því komið til tals að leggja UMFS niður.” Þannig er komizt að orði í bókun frá fundi með stjórnarmönnum Ung- mennafélags Svarfdæla og fulltrúum íþrótta- og æskulýðsráðs Dalvíkurbæj- ar. UMFS boðaði til fundarins vegna þess að Magnús Guðmundsson, for- maður félagsins og fleiri úr stjórn, .,,telja sig ekki hafa tíma eða tækifæri til að sinna félaginu eins og þyrfti og vilja þess vegna losna úr stjórn” segir í fundargerðinni. Jafnframt er því bætt við að engir hafi fundizt i stjórnina í staðinn. Nokkrar umræður urðu um þetta mál á fundinum. Meðal annars var bent á nauðsyn þess að á Dalvík væri íþróttafulltrúi, svo sem tíðkast í mörg- um öðrum bæjarfélögum. Kæmi hann til með að létta undir með stjórnun hinnaýmsu félaga. Þetta mál kom til umræðu á fundi bæjarstjórnar. Var því vísað til bæjar- ráðs því bæjarstjórnarmenn vildu ekki kannast við að hafa lagt stein í götu Ungmennafélagsins, að sögn Valdi- mars Bragasonar bæjarstjóra. Hafa stjórnarmenn félagsins nú verið boðað- ir á fund bæjarráðs til viðræðna. íþrótta- og æskulýðsmál voru einnig til umræðu'á fundi með fulltrúum íþrótta- og æskulýðsráðs Dalvíkur og forráðamönnum félaga á staðnum'. Var þar rætt um vetrarstarfið. Þegar forráðamenn félaganna höfðu kynnt starfsemi sinna félaga var rætt um ýmis skipulagsatriði í æskulýðs- og íþróttamálum á Dalvík. Kom þar fram í máli Guðmundar Inga Jónatanssonar að ráðið hefði farið fram á 100.000 kr. á fjárhagsáætlun bæjarins til íbúðar- kaupa eða leigu. Taldi hann nauðsyn á öðru húsnæði en skólanum til félags- starfsemi fyrir unglinga. Sagði Guð- mundur að þessari beiðni hefði verið hafnað athugasemdalaust. í fundarlok var eftirfarandi tillaga samþykkt samhljóða: „Það er sam- dóma álit manna að húsnæðisskortur standi félagsstarfi unglinga hér í bæ mjög fyrir þrifum. Hér er átt við hús- næði sem komið gæti til viðbótar fé- lagsstarfi i skólanum. Fundurinn fer þess á leit við Æskulýðsráð og bæjar- stjórn að hið fyrsta verði eitthvað gert Stjórn Ungmennafélags Svarfdæla er ekki ánægð með undirtektir bæjaryfirvalda á Dalvík og bxjarbúa við starfsemi félagsins. Myndin er frá Daivik. Rúmteppi, dýnuhlífar og teygjulök í miklu úrvali. „Rúm "-bezta verzlun lundsins INGVAR OG GYLFI CRtNSASVICI 1 108 Rf VKJAVIK SIMI 11144 OG 33SJ0 Sérverzlun með rúm til úrbóta í þessum málum.” Valdimar Bragason sagði það rétt að ekki væri í önnur hús að venda með félagsstarf fyrir unglinga en skólabygg- inguna. Tók Valdimar undir óskir um að úr þessu þyrfti að bæta. Sagði hann að þetta mál yrði skoðað við gerð fjár- hagsáætlunar bæjarins fyrir næsta ár. GS/Akureyri ÞÆTTIR UM NÝJA TESTAMENTK) 29 ritgerðir um Nýja testamentið og Kristfræði eftir dr. Jakob Jónsson. ÞRÍR LEIKIR UM HETJUR Þrjú sígild forngrísk leikrit í þýöingu dr. Jóns Gíslasonar. LITLI PRINSINN Hin sígilda bók fyrir unga sem aldna, ein vinsælasta saga sem þýdd hefur verið úr frönsku. FERÐIR UM ÍSLAND Á FYRRI TÍÐ Fróðlegir og skemmtiiegir ferðaþættir sem lýsa vel muninum á ferðalögum fyrr og nú. ANDVARI Aðalgrein í Andvara er æviþáttur um Þórberg Þórðarson eftir Sigfús Daðason skáld. BÓKAÚTGÁFA MENNINGARSJÓÐS OG ÞJÓÐVINAFÉLAGSINS Skálholtsstíg 7 — Reykjavík JSLENSK BOKAMENNIMG ERVERÐMÆTI BÆKUR MENNINGARSjÓDS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.