Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1981, Qupperneq 44

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1981, Qupperneq 44
Tillögum um olíukaup frá Saudi Arabíu hafnað: Hefðu sparað okkur 90 milljónir króna „Verða menn alltaf að glápa niðu, á tærnar á sér?” spurði Albert Guð- mundsson alþingismaður í samtali við DV i gær. Albert skýrði frá því, að íslenzk stjórnvöld hefðu vísað á bug „þreilingum” sendimanns Saudi Arabíu. Sendimaðurinn gerði tillögur sem hefðu getað sparað íslendingum 90 milljónir nýkróna í olíukaupum hefðu islenzk stjórnvöld samþykkt og dæmið allt gengið upp. Albert sagði að frönsk hjón hefðu haft samband við sig í London í októ- ber i fyrra og sagt að „ráðgjafi” í olíuviðskiptum, dr. Arak Tingi, vildi ræða við íslenzka ráðamenn og gera þeim boð. Albert ræddi við dr. Tingi og síðan við forsætis-, utanríkis- og viðskiptaráðherra hér. Albert kvaðst, að loknum fundi með ráðherrum, hafa hringt til dr. Tingis úr skrifstofu forsætisráðherra. Sendimaðurinn kom hingað um miðjan desember í fyrra og ræddi við íslenzka ráðherra. Hann hafði í fórum sínum tillögur um að ísland fengi ákveðinn kvóta til oliukaupa hjá olíuframleiðslurikjun- um í OPEC. Gætu íslendingar keypt 20 þúsund tunnur á ári af óhreinsaðri oliu frá Saudi Arabíu og látið hreinsa þar sem hagstæðast væri, í Þýzka- landi, Hollandi eða Belgíu. Kaup- verðið yrði það lágt að árlegur sparn- aður íslendinga, miðað við fullunna olíu, yrði 10 milljón dollarar. Það samsvarar um 90 milljónum nýkróna á núverandi gengi. Til þess að ná þessu fram þyrftu íslendingar að hafa samband við ráðamenn í Saudi- Arabíu. Ennfremur kæmi til greina að Saudi Arabar styddu íslendinga við að byggja olíuhreinsunarstöð á íslandi. Engin sérstök skilyrði hefðu fylgt. Saudi-Arabar teldu þessi við- skipti heppileg. Meðal annars væri ísland tiltölulega hlutlaust í deilum stórvelda. Albert kvaðst hafa fengið meðmæli með dr. Tingi hjá virtum svissneskum banka. En stjórnvöld hér tóku lítið í mál hans og höfnuðu að lokum að ræða það frekar. Albert sagði að kannski hefðu íslendingar aðeins viljað kaupa um 3 þúsund tunnur af Saudi-Arabíu og halda áfram opnum viðskiptum við Rússa. En það sýndi ekki stórhug að vilja ekki kanna þetta mál betur. Dr. Tingi hefði viljað koma á samtölum milli ríkjanna sem hefðu getað orðið ís- lendingum til mikils góðs. -HH. SFR og borg- in sömdu Undirritaður var i gær aðalkjara- samningur milli Starfsmannafélags Reykjavikurborgar og Reykja- víkurborgar. Samningurinn byggist i meginatriðum á samningi BSRB og ríkisins. Félagið heldur kynningarfundi um samkomulagið i dag og á morgunkl. 17aðGrettisgötu 89. Þá er stefnt að allsherjaratkvæða- greiðslu um helgina. -JSS. Hjörleifur bíður enn „Við munum meta stöðuna þegar svar liggur fyrir,” sagði Hjörleifur Guttormsson iðnaðar- ráðherra og vísaði með ummælum sinum til niðurstöðu síðasta hrepps- ins af 6 sem hlut eiga að máli varð- andi Blönduvirkjun. Svar frá honum er væntanlegt um helgina. Þcgar hafa þrír hreppar neitað samningum en tveir hafa lýst sig reiðubúnaogsamþykka. Hjörleifur vildi að öðru leyti ekki tjá sig neitt um stöðuna eins og hún er í dag en vísaði alfarið til þingsályktunartil- lögu og samþykktar ríkisstjórnar- innar um virkjunarmálið. -SSv. Lögmenn reiðirríkinu vegna greiðsiutregðu: fhuga nú löghald í Amarhvolshúsi Ýmsir lögmenn sem eiga inni reikn- inga hjá ríkinu vegna starfa fyrir réttar- farsstofnanir hugleiða nú harðar inn- heimtuaðgerðir berist þeim ekki greiðslur nú í desember með eðlilegum hætti. Samkvæmt upplýsingum eins þessara lögmanna telja þeir sig eiga inni um 410 þúsund krónur sem greiðast ættu nú. Hafa lögmenn rætt inn- heimtuleiðir sín í milli og meðal annars löghald í Arnarhvoli, aðalsetri Stjórnarráðsins! Lögmenn hafa með höndum marg- vislegan málarekstur og réttargæzlu á vegum ríkisins og inna þau störf af höndum sem eins konar verktakar. Er venjan sú, að sögn heimildarmanna DV, að ríkið greiði mánaðarlega eftir á. f desember i fyrra brá svo við að greiðslur fengust ekki frá ríkisféhirði á réttum tíma. Mun sá háttur hafa verið á hafður að skrifa út ávísanir um miðjan desember en póstleggja þær ekki fyrr en á gamlársdag og var því ekki hægt að innleysa þær fyrr en eftir áramót. Samt sem áður voru desember- greiðslurnar taldar fram á launaseðlum fyrir siðasta ár. Telja lögmenn að nú eigi að leika sama leikinn og eru næsta óhressir. Hefur raunar þegar reynt á að lögmenn hafa ekki fengið greitt nú þótt eftir því væri leitað. Heimildarmenn DV úr hópi lög- manna telja það víst að svipað sé ástatt varðandi greiðslur til fleiri aðila sem taka að sér verkefni fyrir ríkið og að þannig kunni jafnvel að vera dregnar greiðslur á samtals mjög hárri upphæð fram yfir áramót, sem þó komi fram sem greiðslur í desember á launaseðl- um. Þetta telja þeir algerlega óviðun- andi auk þess sem ríkið baki þannig mörgum mikil óþægindi með van- efndum á greiðslum í jólamánuðinum. -HERB. Sjómenn: Verkfall samþykkt? Atkvæðagreiðsla í Sjómannafélagi Reykjavíkur um heimild til verkfalls- boðunar á bátaflotanum stendur nú yfir en henni áað ljúka í kvöld. Sjómannafélag Reykjavíkur er eina félagið þar sem atkvæðagreiðsla er við- höfð enda langstærsta félagið. Önnur sjómannafélög hafa þegar aflað sér verkfallsheimildar frá stjórn og trúnaðarráðum sínum. Að sögn talsmanns Sjómannasam- bands íslands í morgun á atkvæða- greiðslunni að ljúka í kvöld. Ef verk- fallsheimildin verður samþykkt verður verkfallið að öllum líkindum boðað á morgun og skellur það þá á viku síðar, eðaá jóladag. -klp- fijálst, nháð dagblað FIMMTUDAGUR 17. DES. 1981. Alþýðubandalagsmenn í bygginganefnd borgarinnar: Rifust um aukahæð að Þver- holti 11 Til allharðrar orðasennu kom á milli tveggja fulltrúa Alþýðubandalagsins i bygginganefnd Reykjavíkur er þar var til afgreiðslu umsókn Dagblaðsins hf„ um að fá að byggja fjögurra hæða hús í stað þriggja hæða, sem áður hafði verið samþykkt, á lóðinni Þverholt 11. Umsókn Dagblaðsins var samþykkt með fjórum atkvæðum gegn tveimur, atkvæðum Gunnars H. Gunnarssonar, annars fulltrúa Alþýðubandalagsins, og Gissurar Símonarsonar, fulltrúa Alþýðuflokksins. Magnús Skúlason, formaður nefndarinnar og hinn fulltrúi Alþýðu- bandalagsins, samþykkti hins vegar leyfið. Gunnar H. Gunnarsson óskaði eftir að álit sitt yrði bókað sérstaklega. í bókun hans segir m.a.: „Ég vil lýsa furðu minni á ákefð formanns nefndar- innar að keyra þetta mál í gegnum nefndina og gera sig sekan m.a. um brot á þeirri hefð að fresta máli til næsta fundar.” Síðar segir: „Ég hlýt að mæla hart gegn samþykkt þessa máls, enda í hróplegu ósamræmi við stefnu Alþýðubandalagsins í skipulags- málum.” í framhaldi af þessari bókun óskaði Magnús Skúlason, flokksbróðir Gunnars, að eftirfarandi yrði bókað: ,,Ég harma bókun Gunnars H. Gunnarssonar. Erindið hefur verið meðhöndlað á tveimur fundum nefndarinnar og fengið eðlilega afgreiðslu. Hingað til hefur tíðkazt að nefndarmenn geti haft sínar skoðanir á málum án þess að verða fyrir persónu- legum dylgjum um ástæður til af- stöðu.” -KMU. Framsókn hefur löngum ver- ið á eftir tímanum. Þess vegna segir Tíminn í morgun að átta dagar sóu til jóla. hressir betur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.