Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1981, Page 5
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1981.
5
Margrét Margeirsdóttir.
Margrét Margeirsdóttir deildarstjóri,
formaður Alfa-nefndarínnar:
„MIKILL ÁR-
ANGUROGÁ
EFTIRAÐ
VERDA MEIRI”
„Það er í rauninni réttara að þeir
fötluðu svari því hvaða árangur hefur
orðið af þessu ári. Þó held ég að alveg
óhætt sé að segja að árangurinn hafi
orðið mikill og eigi eftir að verða meiri,
því það er ótalmargt sem hefur verið ýtt
af stað á árinu og á eftir að bera árang-
ur á lengri tíma,” var svar Margrétar
Margeirsdóttur, deildarstjóra í félags-
málaráðuneytinu, en hún hefur verið
formaður hinnar svokölluðu Alfa-
nefndar. Sú nefnd hefur haft það hlut-
verk að samræma og skipuleggja að-
gerðiráárifatlaðra.
,,Við höfum starfað reglubundið og
á okkar vegum eða í tengslum við
okkur hafa starfað aðrar nefndir, bæði
að einstökum viðfangsefnum og í
ýmsum sveitarfélögum, en þar hafa
meðal annars 20 Alfa-nefndir starfað.
Það hefur verið unnið að frumvarpinu
um málefni fatlaðra, sem nú er komið
fram, að könnunum, að ferlimálum og
ekki sízt geysilegt kynningarstarf. Þá
er margt ótalið.
Þetta starf og allt starf að málefnum
fatlaðra er ótrúlega margbrotið og
brgytilegt, því fötlun er svo margvísleg
og eins eru aðstæður ólikar hjá fötluðu
fólki á ýmsum aldursskeiðum. Þess
vegna hefur það komið af sjálfu sér að
við höfum haft mjög nána samvinnu
við hina fötluðu og aðstandendur, svo
og hin ýmsu samtök þeirra. Sú sam-.
vinna hefur verið ákaflega ánægjuleg
og eins að finna hve mikill hljóm-
grunnur er hjá almenningi í landinu
fyrir því að fatlaðir njóti þess jafnréttis
í þjóðfélaginu sem verða má.”
Hvað eru margir fatlaðir á landinu?
,,Þvi get ég ekki svarað af neinni ná-
kvæmni, til þess eru gögn of ófull-
komin ennþá. jín þeir sem njóta ör-
orkubóta munu vera hátt i 10 þús. Á
hinn bóginn ertalið að nálægt því 10.
hver maður eigi við einhvers konar fötl-
un að stríða, líkamlega eða andlega, af
sjúkdómum, slysum eða öðrum or-
sökum.”
HERB.
Hljómsveitin Lojpippos og Spojsippus.
JÖRVAGLEÐIÁ HÓTEL BORG
Tónlistar- og tónleikalíf Reykja-
vikur hefur verið með miklum blóma
nú í vetur en hefur þó nýlega færzt
nokkur deyfð yfir vegna lokunar
NEFS sem hefur verið aðalhljóm-
leikastaður fyrir allar þær hljóm-
sveitir sem upp hafa sprottið á þessu
herrans ári. Lokun NEFS setur óneit-
anlega stórt strik í reikninginn hvað
varðar framtíð ýmissa hljómsveita og
einnig hljómleikahald yfirleitt.
Nokkrar hljómsveitir hafa því
ákveðið að gera tilraun til að brúa
bilið, milli jóla og nýárs, með hljóm-
leikum á Hótel Borg í kvöld, þ. 29.
desember. Það varður haldin Jörva-
gleði (ætti eiginlega að heita Borgar-
gleði en það er annar handleggur). Á
Jörvagleðinni koma fram þrjár
hljómsveitir, Purrkur Pillnikk, Q4U,
sem mætti kalla hina einu sönnu
pönkhljómsveit landsins, og loks
Lojpippos og Spojsippus sem flytur
tónlist sem ekki heyrist oft hér á Iandi
og ættu menn og mýs að drífa sig,
allir saman nú, 1 3 5 . . . .
Og ofan á þetta bætist svo sjálfur
allsherjargoðinn, Sveinbjörn Bein-
teinsson sem ætlar að kveða rimur að
fornum sið. Það eru víst margir sem
hafa áhuga á að heyra hvernig Islend-
ingar áður fyrr styttu sér og öðrum
stundir. Jörvagleðin hefst kl. 21 og
stendur til 01. -OVJ.
Olíubirgdamál vamaríiðsins:
Ólafur hugar aö Helguvík
Skýrsla um olíubirgðamál varnar-
liðsins á Keflavíkurflugvelli og hugs-
anlega olíuhöfn í Helguvík rétt utan
við Kefiavík hefur verið í athugun hjá
utanríkisráðherra frá í haust. Ólafur
Jóhannesson tjáði DV að hann gæti
ekki skýrt frá framhaldi málsins, at-
huguninni væri ólokið.
Ljóst er aö olíubirgðageymarnir
sem varnarliðið notar nú og eru rétt
við byggð á mðrkum Njarðvíkur og
Keflavikur verða að vfkja, enda eru
þeir nærri vatnsbólum. Samstaða er í
bæjarstjórn Njarðvíkur um að styðja
fiutning birgðastöðvarinnar til
Helguvíkur og er fulltrú Alþýðu-
bandalagsins, Oddbergur Eiríksson,
meðal helztu talsmanna Njarðvíkinga
um þá ráðstöfun. Samflokksmaður
hans í bæjarstjórn Keflavíkur, Karl
Sigurbergsson, er hins vegar tals-
maöur svokallaðrar ESSO-leiðar. En
Oliufélagið hf. lagði á sínum tíma til
að olíubirgðastöðin yrði fiutt lengra
upp á heiði.
Ráðagerðir um birgðastöð í
Helguvík snúast annars vegar um
gerð nýrrar hafnar og hins vegar um
mikla niðurgrafna olíugeyma. Engu
að síður þyrfti að leggja olíuieiðslu
upp á völl og hafa þar geyma fyrir
dagleg not. En aðalrök Olíufélagsins
eru þó þau að Helguvík sé svo nærri
byggð að áður en vari verði birgða-
stöð þar orðin fyrir á ný.
Eins og DV hefur áður skýrt frá
þykir Helguvík eitt álitlegasta hafnar-
stæði á Suðurnesjum fyrir stórskip,
vegna aðdýpis og skjóls, og hafa
augu manna beinzt að víkinni bæði
fyrir olíubirgðastöðina og fyrir flutn-
inga vegna áformaðrar stóriðju á
Reykjanesi.
-HERB.
Cannes:
íslenzki „já-drykkurinn” f 2. sæti
Ungur barþjónn úr Keflavík,
Björn VífiU Þorleifsson, varð í 2.
sæti á Evrópumeistaramóti barþjóna
sem haldið var í Cannes f Frakklandi
og lauk nýlega.
Á þessu móti, sem var fyrsta
kokkteil-keppni barþjóna þar sem
eingöngu keppendur frá Evrópu
mættu, varð Björn í 2. sæti í „long
drinks” kepninni. Hlaut hann verð-
launin fyrir drykk sem hann nefndi
„Qui” eða ,,Já” eins og hann hét á
íslenzku.
í mótinu tóku þátt á annað hundr-
aö barþjónar frá 20 Evrópulöndum
og voru veitt verðlaun bæði fyrir
kokkteila og long drinks.
Þetta er fyrsta kokkteilkeppnin
sem Björn VífUl tekur þátt í erlendis.
Hann er 30 ára gamall, búsettur í
Keflavík og var lengi þjónn á barnum
í Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli,
en nýbyrjaður að starfa í Leikhús-
kjallaranum. -klp-
4)
Teletext
Þráðlaus upplýsingamót
taka, t.d. frá erlendum tölvu-
bönkum í gegnum gerfihnetti.
Cable-tv
Móttaka á sérstakri tíöni (4,43
MHz NTSC) notuð til sendinga á
sjónvarpsefni eftir köplum, gefur
möguleika til afspilunar af mynd-
segulböndum sem nota önnur
kerfi er PAL.
lót-| r. ..
Ivu-L,í
p4_
Satellite
a I Móttaka frá gerfihnatta-
° sendingum.
Viewdata
Móttaka upplýsinga af þræði
(símalína) frá tölvu eða upp-
lýsingabönkum og/eða til
notkunar við t.d. heimilis-
tölvu.
FINLUX
MEST SELDU LITSJ0NVÖRPIN Á ÍSLANDI
LÁGMÚLA 7
REYKJAVÍK SÍMI 85333
SJÓNVARPSBÚÐIN