Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1982, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1982, Side 16
16 Spurningin Hvernig finnst þér nýja innheimtuauglýsing sjónvarpsins? Árný Rlchards húsmóðlr: Æ, ég veit það ekki. Virðist allt sama ruglið. En það getur vel verið að hún hafi áhrif og þaöerjúfyrirmestu. Guöný Guðbjörnsdóttir húsmóðir: Mér finnst hún bara ágæt. Nei, hún hvetur mig ekkert til að borga, því ég borga hvortsemer. Bryndis Pétnrsdóttir nemi: Hún er ágæt. Mátulega vitlaus. Fólk tekur ábyggilega eftir henni. Nú og það kemst vel til skila sem henni er ætlað að segja. Unnur Erla Mamqulst nemi: Æi, mér finnst hún hálfhallærisleg. Miklar glansauglýsingar fara ákaflega í taugamar á mér. Vona bara að fólk viti aö það eigi að borga. Kristinn Guðmundsson bflstjóri: Lítiö spáð í þaö. Tel aö þessi veki ekki eins mikla athygli og þær fyrstu. Annars virka þær hálfhauærislega á mann, en þaö skiptir víst ekki máli komi þær boðskapnum til skila. Jónína Bjömsdóttir húsmóðir: Finnst hún bæði hlægileg og barnaleg. Og tel allar þessar innheimtuauglýsingar vera hálfkjánalegar. Eg vona hins veg- ar að þær þjóni tilgangi sínum og fái fólktil aö borga. Gott verkefnaval Þjódleikhússins —en bréf ritari spyr nokkurra spurninga varðandi leikrit Eugene O’Neill Leikhúsáhugamaður hringdi: Eg vil koma á framfæri þakklæti til Þjóöleikhússins fyrir gott verkefnaval í ár. Undanfarin ár hafa nokkur leiðin- leg og léleg leikrit slæðst með, en ég fæ ekki betur séö en í ár sé hvert eitt og einasta leikrit ásjálegt. Gaman er að því að íslensk verk eru áberandi, svo sem leikrit eftir Guðmund Steinsson, Birgi Sigurðsson, Guðmund Kamban, Nínu Björk Arnadóttur, Olaf Hauk Símonarson og Svövu Jakobsdóttur. Og andlegt fóður eru ekki síður Oresteian og leikrit öndvegisskáldsins Eugene O’Neill: „Long day’s journey intoNight.” Um síðasttalda leikritið langar mig til að fá svör viö nokkrumspumingum. Ég man ekki betur en aö þetta verk hefði veriö sýnt hér á landi fyrir nokkr- um áratugum, og þá hét það , Jfúmar hægt að kveldi”. Var þaö Thor Vilhjálmsson sem þýddi þá? Ef svo var ekki hver gerði það og hvers vegna er það þýtt upp á nýtt. Hvers vegna er ekki gefiö upp íslenskt heiti nú? Er hin fagra þýðing Húmar hægt að kveldi ekkinógusnjöll? Arni Ibsen hjá Þjóðleikhúsinu kvað það rétt vera aö Long day’s joumey into night hefði verið sýnt áður hérlendis. Það var vorið 1959. Hann sagði að það væri svo með leikrita- þýðingar að það þyrfti oft að endur- skoða þær til samræmis við breytt tungutak. Um titil verksins sagði hann að enda þótt Jiúmar hægt að kveldi” væri fallegur titilll þá væri hann ekki alveg réttur. Það fælist það mikið i titlinum að það hefði verið ákveðið að reyna að finna betri titil en þann sem Sveinn Víkingur valdi á ágæta þýöingu sina. ÓGLEYMANLEGUR dagur Á HEIMILISSÝNINGUNNI Brosandi stýfa þeir kaupið —segirkona 6299—6027 hringdi og kvartaði yfir aftur enda ráðherrar þess sí-brosandi sitt rjúkandi ráð lengur. Kaupið dygði kaupráni og verðhækkunum. um leið og þeir stýfa kaupið. Hún kvaö ekki lengur fyrir lífsnauðsynjum. Hún kvaðst hafa kosið Alþýðu- þáhafagengiðíliðmeökaupmönnum. bandalagiö en ekki ætla að kjósa það Hún sagði að húsmæður vissu ekki Það fer i taugaraar á bréfritara að ráð- herrar Alþýðubandalagsins skuli leyfa sér að skerða kaupið. Og það brosandi. Anna (3252—3226) hringdi: „Eg vil láta í ljós ánægju mína með Heimilisýninguna í Laugardals- höllinni. Eg fór með bamabörn mín inn eftir og áttum við saman ógleyman- legan dag. Maður nokkur skrifaði í DV um daginn og kvartaði yfir gjaldeyrissóun í sambandi við erlendu skemmtikraftana á sýning- unni. Eg vil benda honum á að athuga hvort það sé ekki margur óþarfur hlutur sem maður kaupir daglega og fluttur er inn fyrir erlendangjaldeyri.” Bréfritari átti áncgjulegan dag á Heimilissýningumii!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.