Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1983, Blaðsíða 11
DV. LAUGARDAGUR 5. NOVEMBER1983.
11
Gerir þú þér ofhú-
leitar hugmyndir
um eigin hugarUraft?
hér kemur hávLsindalegt
próf sem ákvarðar það
Dæmi iír prófinu: Það hafur hvarfíað mð mér að ég gæti létíð atburði
gerast, aðeins með þvi einu að hugsa nógu sterkt um þé.
Til eru menn sem staðfastlega
halda því fram aö þeir geti haft afar
mikil áhrif á fólk eða atburði í
kringum sig með hugsun sinni einni
saman. Þetta hefur verið nefnt hugs-
anaflutningur og er það fyrirbrigði
sem sálfræðingar og geðlæknar hafa
deilt um lengi vel. Menn greinir á um
hvort hugsanaflutningar geti gerst í
rauninni eða hvort hér sé aöeins um
ímyndun eina aö ræða.
Vísbending um geðkktfa
Nú hafa sumir vísindamenn sett
fram þær kenningar sínar að þaö att
aö venjulegt fólk sem aldrei hafi
talið sig búa yfir yfirskilvitlegum
mætti, fari aö halda að það geti haft
áhrif á eitthvað í kríngum sig með
sínum hugsunum, sé beinlínis vís-
bending um geðklofa eða einhvers
slags geðveíki. Eftir því sem þess
konar hugsanir ágerist með fólki því
meiri líkur séu á þessum andlegu
sjúkdómum.
Rótt og rangt
Þessir sömu sálarvisindamenn
hafa gert nokkurs konar próf sem
þeir hafa lagt fyrir fólk og kannað
viðbrögð þess við. Þetta er próf í alls
þrjátíu liðum og fólkinu gert að meta
hvem lið út frá hugtökunum rétt og
rangt. Viðbrögö fólksins við þessum
ákveðnu þáttum prófsins eiga að
gefa til kynna hversu háleitar hug-
myndir það geri sér um eigin hugar-
kraft og þannig jafnframt hversu ná-
lægt það sé andlegum sjúkdómum á
borð við geðklofa og geðveiki.
Er afít í lagi með þig ?
Til gamans (og alvöru) fyrir les-
endur DV birtum við hér helming
þessara þátta í prófi sálarvísinda-
mannanna, það er aö segja fimmtán
liði. Ut frá kenningum þessara
manna þá eiga þeir sem svara fleiri
en tólf þessara þátta sem réttum að
fara að hugsa alvarlega um eigin
geðheilsu. Þá eru hugmyndimar um
eigin hugarkraft orðnar of háar og
miklar.
Prófíð - metið liðina
vandiega og samviskusam-
lega
I.
Til er fólk sem getur láið mig vita af
sér meö hugsun sinni einni saman.
II.
Eg hefi fengiö þá óþægilegu tilfinn-
ingu að halda að ég sé ekki mannleg-
ur.
RI.
Eg hef i á stundum óttast það að stiga
á linumar á milli gangstéttarhelln-
anna. Talið það óheillavott.
IV.
Eg býst við að ég geti lært að lesa
hugsanir annarra ef ég gæfi mér
tíma og þolinmæði til þess.
V.
Stjömuspámar mínar hafa ræst oft-
ar en svo aö þær geti talist tilviljanir
einar.
VI.
Það er oft svo að ýmsir hlutir á heim-
ili mínu virðast hafa færst litillega úr
stað þegar ég kem heim, án þess þó
að nokkur hafi veríð inni i íbúðinni á
meöan ég var f jarverandi.
VII.
Það hefur stundum læðst að mér sú
afkáralega hugsun aö sjónvarpið
mitt eða útvarpið viti af þvi að ég sé
aö horfa/hlusta á það.
vm.
Ég hefi nokkrar áhyggjur af þvi að
lífverur á öðrum plánetum viti af
okkur mönnunum á jörðunni.
IX.
Eg hefi stundum verið úti á gangi um
götur og þá hefur hvarflað að mér að
einhver skilaboð bíði mín i nálægu
húsi, til dæmis úti í næsta verslunar-
glugga, sem ég verði að lesa.
X.
Eg hefi uppgötvaö viss hljóð á hljóm-
plötunum mínum sem heyrast ekki
af þeim nema endrum og sinnum,
kannski bara einu sinni.
XI.
Eg hefi stundum fengiö það á tilfinn-
inguna að ég missi einhvem mátt
eða orku þegar ákveðið fólk horfir á
mig eða snertir mig.
XII.
Ef þaö sannast að endurholdgun er
til, er ég viss um að hún getur skýrt
marga sjaldgæfa reynslu sem ég hefi
upplifað.
xm.
Fólk hagar sér stundum svo undar-
lega og óeðlilega að maður getur
ekki ímyndað sér að maður sé þátt-
takandi í því sama.
XIV.
Það hefur hvarflað að mér að ég gæti
látið atburði gerast, aöeins með því
aðhugsanógu sterkt um þá.
XV.
Mér hefur stundum fundist sem
ókunnugir menn lesi hug minn.
Þá er þessari sálfræðiprófun, sem
svo má kalla, lokið. Þið munið að ef
þið hafið metið fleiri en tólf þessara
fimmtán liða sem rétta þá eruö þiö
komin með of háleitar hugmyndir
um eigin hugarkraft. Þá ber ykkur
aö leita sállækninga, lesendur góðir.
Bæbæ.. .
A/lar gerðir og stærðir af
bílum til sýnis og sölu á
staðnum, greiðslukjör við allra
hæfi, malbikuð bílastæði,
800 fm innisalur.
PEUGEOT 505 ST11980.
BENZ 280 E ARG. 1980.
Opið laugardaga 10—6,
sími81588.
Fimm toppsölumenn með
óþrjótandi þolinmæði.
Við erum / Ármúla 7 Reykjavík.
GUDF1NNS
Armúla 7 ■ Simi 81588
BMW 518 1981.
SUBARU 4x4 1982.
AMC EAGLE 4x4 ÁRG. 1981. BENZ 280 SE 1978.
Er bíllinn þinn á réttu
markaðsverði?
Guðfinnur með
ráðgjafarþjónustu
um verð á notuðum bílum.
CITROÉN REFLEX 1982
SNJÓSLEÐI,
RAVASARI LTD 1982.
Verslið þar sem úrvalið
er mest og aðstaðan best.
BíHnn að morgni,
seldur að kveldi.
HONDA ACCORD
. 1982