Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1983, Qupperneq 13
DV. LAUGARDAGUR 5. NOVEMBER1965.
Bókakynning DV Bókakynning DV Bókakynning DV
HÖfUNDURIM
Agnar Þórðarson er Reykvíkingur að uppruna,
fœddur árið 1917. Hann lauk kandidatsprófi í ís-
lenskum frœðum við Háskóla íslands, nam bók-
menntir í Oxford og kynnti sér leiklist í ýmsum stór-
borgum Evrópu og Ameríku. Agnar hefur lengst af
starfað við Landsbókasafnið.
Kunnastur er Agnar fyrir leikrit sín sem hann
hefur jöfnum höndum samið fyrir svið og útvarp.
Sennilega er vinsœlasta sviðsverk hans Kjarnorka og
kvenhylli en meðal minnisstœðustu útvarpsleikrita
hans eru tvö framhaldsleikrit, Víxlar með afföllum
og Ekið fyrir stapann. Alls hefur Agnar skrifað lið-
lega tuttugu leikrit.
Kallaður heim er fjórða skáldsaga Agnars Þórðar-
sonar en áður hafa komið út eftir hann sögurnar
Haninn galar tvisvar, Ef sverð þitt er stutt og Hjart-
að í borði.
„kaupstaðurinn getur þá farið á kaf
undir hraunrennsli og milljörðum lesta
af ösku á nokkrum klukkustundum.”
Það var áhrifamikil þögn, áheyr-
endur gáfu ekkert hljóð frá sér, og það
var eins og buldriö í eldfjallinu hefði
hækkað um heilan tón, en svo hóf hann
mál sitt á ný.
„Hitastig í gasi er ein þeirra vís-
bendinga sem eldfjallafræðingar nota
til þess aö segja til um eldgos, þess-
vegna þarf aö fylgjast nákvæmlega
með því og flytja fólk taf arlaust burt ef
þaðferaðhækka. . .”
Eftir að eldfjallafræðingurinn haföi
lokið máli sínu var eins og menn væru
dasaðir viö þessa geigvænlegu
greinargerö á ástandinu og menn
störðu fram fyrir sig í þungum þönk-
um, en þá reis einn íslensku vísinda-
mannanna úr sæti og mælti á íslensku.
Hann sagði að sér þætti þetta ótíma-
bær svartsýni.
,,Svona gas þekkjum viö hér heima
úr Heklugosum,” sagði hann ,,og það
er yfirleitt merki þess að gosið sé í rén-
un, gasmyndunin gæti frekar bent til
þess aö gígurinn væri að þrengjast en
að hætta væri á nýju gosi, en auövitað
sker tíminn einn úr því hvort að svo sé í
þetta skipti, en meðan ekki hitnar í
borholunni hér vestarlega í bænum hef
ég ekki trú á því að annað gos sé yfir-
vofandi...”
Fundarmönnum létti mikið við þessi
orð vísindamannsins sem allir vissu að
hafði mikla reynslu af gosum á Islandi,
en hann beindi síöan orðum sínum til
dr. Tazieffs og mæti á ensku, sagði frá
athugunum sínum á Heklugosum og
Surtsey.
Nokkrir jarðfræðingar tóku líka til
máls, en fundinum lauk ekki fyrr en
komið var langt fram á kvöld.
Dr. Tazieff komst ekki til Reykja-
víkur um kvöldiö og varð aö gista í
bænum um nóttina, fékk hann inni í
sjóminjasafninu vegna þrengsla á
hótelinu.
Hann lýsti sjálfur þessari nótt
seinna við blaðamenn í Reykjavík:
„Við sváfum á gólfinu í stórum sal
með tólf upplýstum fiskabúrum. Það
var undarleg gul birta sem minnti á
undirheima.
Um nóttina þegar fjallið gaus og
drundi sáum við fiskana synda að
okkur og opna ginið svo að sá í marg-
faldar hvassar tannaraðir í ófreskjun-
um.
Mér var ekki mjög svefnsamt. Ég
hef aldrei átt aðra eins nótt — og
langar ekki til að eiga slíka aftur.”
<o
- sólud snjódekk -
Þessi snjódekk eru sóluð eftir ströngum bandarískum staðli.
Þau hafa dúndurgóða spyrnu, endast von úr viti og eru öll með
hvítum hring. Þú ættir að hafa samband við næsta útsölustaðog
tryggja þér gang því verðið er ótrúlega lágt...
Reykjavík: Hjólbarðahöllin, Hreyfilshúsinu, Fellsmúla 24, sími 81093 Nýbarði sf., Borgartúni 24, sími 16240
Mosfellssveit:
Holtadekk sf.,
Bjarkarholti, sími 66401
Garðábær:
Barði sf.,
Lyngási 8, sími 50606
Kópavogur:
Hjólbarðaviðgerð Kópavogs
Skemmuvegi 6, sími 75135