Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1983, Page 22
22
DV. LAUGARDAGUR 5. NOVEMBER1983.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 113., 116. og 119. tbl. Lögbirtingablaðs 1982 á hluta i
Kríuhólum 4, 5. hæð C, þingl. eign dánarbús Guðmundar Jónssonar,
fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbankans, Gjaldheimtunnar í
Reykjavík, Landsbanka tslands og skiptaréttar Reykjavíkur á
eigninni sjálfri þriðjudaginn 8. nóvember 1983 kl. 16.15.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
AÐALFUNDUR
Aöalfundur húseigendafélags Reykjavíkur verö-
ur haldinn fimmtudaginn 10. nóv. nk. að Berg-
stæðastræti lla Reykjavík og hefst hann kl. 18.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
VCRD
LÆKKLN
Vegna afar hagstæðra hótelsamninga Arnarflugs
lækkar verð á helgar- og vikuferðum til Amster-
dam frá og með 1. nóvember. Sem dæmi má
nefna að flug til og frá Amsterdam og lúxusgist-
ing á 5 stjörnu Hilton hótelinu í þrjár nætur, sem
áður kostaði 14.677 kr., kostar nú aðeins kr.
11.307. Hliðstæðar verðlækkanir hafa orðið á
bílaleigubílum.
Fáið nánari upplýsingar um þessi stórkostlegu
tíðindi fyrir íslenska ferðalanga á söluskrifstofum
Arnarflugs og ferðaskrifstofunum.
Gerðu jólainnkaupin
beint frá London
Versliö hagkvæmt! .
Allar vörur á einum stad.
Leikföng, búsáhöld, sportvörur og
fatnaður, svo eitthvað sé nefnt.
Nœr 1000 blaðsíður,
aðeins kr. 120 + burðargjald.
Pantanasímar: 36020 og 81347.
Opiö til kl. 10.00 á kvöldin.
Debra Winger:
Trónar hátt á
kynþokkanum
,,Ég veit ekki hvað Hollywood eða
blöðin eru að reyna að gera úr mér,”
segir nýja súperstjaman Debra
Winger. „Á mér dynur allt frá því aö
vera kölluö tæfa til þess að vera
nefnd stelpuskvetta. Ég er kölluð
kvenleg útgáfa af Marlon Brando og
kyntákn. Það sem ég hef um mig að
segja er það að ég er leikkona og það
góðleikkona.”
Það aö hún er góð var viðurkennt
af jafningjum hennar sem útnefndu
hana til óskarsverðlauna fyrir leik
sinn í An Officer And A Gentleman
þar sem hún stóö sig ekki bara frá-
bærlega vel heldur kom fram í eld-
heitri ástarsenu með Richard Gere.
Hún var að sögn einnig í slagtogi við
hann í einkalífinu en um þaö vill hún
ekkert segja. Áöur en Officer sló í
gegn kom hún fram með Travolta í
Urban Cowboy, síðan með Nick Nolte
í Cannery Row þar sem hún lék
vændiskonu.
„Fólk sér mig í þessum kynæsandi
hlutverkum,” brosir hún. „En ég var
sú eina sem taldi að gervinautið í
Urban Cowboy hefði kynferðislega
möguleika.”
Hún fór á bak þessu vélræna kyn-
tákni i einu kynferðislegasta atriði í
nýlegri mynd. En Debra vill reyna
að komast hjá því að verða kvenleg
Richard Gere, aðallega þekkt fyrir
likama sinn.
„Myndir heilla mig alltaf. Þær
góðu sérstaklega. Eg hefði aldrei
getað látið mig dreyma um að ég
kæmist i spor stjömunnar eöa fengi
tækifæri til að vinna með fólki sem ég
dáimjög.”
Heitir Mary Debra
Hún minnir á það að hún leysti
Raquel Welch af á elleftu stundu sem
vændiskonan í Cannery Row og í nú-
verandi verkefni sínu, Terms Of
Endearment, leikur hún með Shirley
MacLaine og Jack Nicholson.
En fyrst og fremst er hún meö í
gangi kvikmynd þar sem hún er
aðalleikarinn. Myndin heitir Mike’s
Murder og er stýrt af James Bridges
sem gerði Urban Cowboy og China
Syndrome. „Þaö... gerir mig dálítið.
Ég er þreytt,” segir hún aö lokum og
vísar til þess að þetta er í fyrsta sinn
sem hún þarf að bera uppi mynd
alein. „En myndin er góð hvort sem
áhorfendur tryllast eða ekki.”
Stundum virðist hún bara yfir sig
Debra stal næstum Urban Cowboy frá John Travolta, stjörnu mynd-
arinnar.
hrifin af því yfirleitt að vera í kvik-
myndum og það er greinilegt að
hvert verkefni sem hún tekur að sér
er henni mikilvægt. Fjölskylda
hennar er ungverskir gyðingar og
Debra var alin upp i Cleveland í Ohio
og Van Nuys sem er úthverfi Los
Angeles. „Ég hét Mary Debra —
blöðin komust að því svo ég viður-
kenniþað.”
Æskuárin fóru í það að venjast
Kaliforníu. „Ég hélt að það myndi
eyðileggja heilsu mina svo ég var
geysilega s júkdómahrædd sem barn.
Ég held að ég hafi verið að sækjast
eftir athyglinni sem það gaf. Ég fór
inn og út af spítölum en það var
aldreineittað mér.
„Mér batnaði loks þegar ég út-
skrifaðist úr skóla 16 ára.” Hún
skýrir ekki frá því að hún var svo vel
gefin að hún var þremur árum á
undan jalnöldrum sínum og tók sér
um skeið hlé frá skólagöngunni þeg-
ar hún var ellefu ára.
„Ég ákvað af fjölmörgum ástæð-
um að fara til Israels.” Mánuði síðar
sótti hún um ísraelskan ríkis-
borgararétt og hóf herþjálfun. Þar á
meðal æfingar í hlíðum við Tel Aviv.
„Þeir sýndu okkur hvernig ætti að
nota handsprengjur. I framhaldi af
því kviknaði í heilum skógi. Það var
hræðilegt. Eg hugsaði meö mér.
Hvað er ég að gera hér? Þetta er geð-
veikt.”
Hún yfirgaf Israel óg fór til Grikk-
lands. Þaöan fór hún í menntaskóla í
Kaliforniu og tók félagsfræði sem
aðalgrein.
Reynir að halda
jafnvægi
Hún fór að leika í auglýsingum og
lék öriítið í sjónvarpi. Áfram lá leiðin
i lítil hlutverk í kvikmyndum.
I Urban Cowboy hófst hún upp í
stjörnuhæðir. Það var Travolta
mynd sem hún stal næstum frá
honum.
Hvernig samdi henni við hann?
„Mjög vel. Þetta var hans mynd og
hann og Bob Evans framleiðandi
réðu öllu með stjómandanum Jimmi
Bridges. Ég var meira í bakgrunnin-
um.
„Það hefur allt gengið í loftinu frá
því ég lék í Cowboy,” segir hún
ánægð. En hvað snertir kynbombu-
hlutverkið ypptir hún öxlum og seg-
ist hafa leikið á móti mjög frambæri-
legum karlmönnum.
, JMín ímynd? Ég veit það ekki. Þaö
var einhver sem sagði mér að sér-
hver stjarna umvefði sig einhverjum
leyndarhjúp.” Sannleikurinn er sá
aö Debra er áköf og leggur hart að
sér. Hún starfaði við tvö gegnum-
brotsverk ársins 1982 því aö fyrir
utan aö vera í Officer þá var hún líka
rödd E.T. Rödd hennar var þar
blandað sarnan við rödd gamallar
konu.
Hún segir að lokum: „Ég er ánægö
með þróunina í minni vinnu og að
hafa nóg að gera. En það er alltaf
freisting að fylla eyðumar með
slæmum hlutum. Eg vil ekki láta
freistast um of. Svo ég reyni að halda
lífi mínuí jafnvægi.