Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1983, Blaðsíða 27
! Jí'SÖiAJiVfJV! h rfaOAOHAQIJA. I..VO
DV. LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER1983.
Kortsnoj svörtu mönnunum og tefldi
Nimzo4ndverska vöm. Kasparov óö á
hann með peðum sínum kóngsmegin,
en Kortsnoj lét sér ekki segjast og
fórnaði riddara. I staðinn fékk hann
þrjú peð Kasparovs á kóngsvængn-
um sem aö öðru jöfnu eru góð skipti.
I þessu tilviki reyndist þetta þó óhag-
stætt, því að Kasparov tókst að not-
færa sér hálfopnu línumar kóngs-
megin til sóknar gegn svarta kóngin-
um, sem hann leiddi til lykta með
glæsilegum leikfléttum.
1 síöari skákinni lék Kortsnoj
drottningarpeöi sinu fram um tvo
reiti í fyrsta leik, eins og í einvíginu
sem aldrei var háö i Pasadena.
Kasparov svaraði í sömu mynt að
þessu sinni og tefldi Tarrasch-vöm.
Framan af fylgdi skákin troðnum
slóðum, m.a. einni einvígisskáka
Kasparovs við Beljavsky í Moskvu í
vor. Kortsnoj tefldi eins og fræðin
mæla með, en nýjung Kasparovs
ruglaði hann í ríminu og hann missti
frumkvæðið. Eftir miklar flækjur
gaf hann drottningu sína fyrir tvo
hróka og heföi átt að halda jöfnu, en í
tímahrakinu tókst Kasparov að
skáka af honum annan hrókinn og
vann létt.
Fyrri skák þeirra gekk þannig
fyrirsig:
Hvítt: GarríKasparov
Svart: Viktor Kortsnoj
Nimzo-indversk vöm.
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. e3 0-0
5. a3 Bxc3+ 6. bxc3 d6 7. Bd3 e5 8. e4
c5 9. Re2 Rc610.0-0 Bg411. f3 Bh512.
d5 Ra5 13. g4 Bg614. h4 Rxg415. fxg4
Dxh4 16. Hf2 Dxg4+ 17. Hg2 Dd7 18.
Rg3 f6 19. Ha2 b5 20. cxb5 c4 21. Be2
Dxb5 22. Bg4 Rb7 23. Be6+ Kh8 24.
Hab2 Dc5+ 25. Khl Dc7 26. Rf5 Rc5
27. Hxg6! Rxe6 28. Hh2 Kg8 29. Hxh7!
Kxh7 30. Dh5+ Kg8 31. dxe6 Hfe8 32.
Bh6 He7 33. Rxe7+ Dxe7 34. Hxg7+
og Kortsnoj gafst upp.
Og til gamans er hér brot úr fyrri
skák Kasparovs við Tal.
Svart: Garrí Kasparov
Hvítt: Mikhail Tal
1. De3 f6 2. De4 Bxb3?? 3. Rxb3
Hótar drottningunni og jafnframt
hróknum á d5. Kasparov hefði nú
getað gefist upp með góðri sam-
visku.
3. — Hxdl 4. Rxc5 Hxel+ 5. Dxel b6
6. Rd3 He7 7. Bxe5 Rxe5 8. De4 h6 9.
Rxe5 fxe510. c4 Kf711. c5 og nú fyrst
gafst Kasparov upp.
er í Gerðubergi, keppnisstjóri er
Hermann Lárusson.
Bridgefélag
Akureyrar
Sveitakeppni Bridgefélags
Akureyrar hófst þriðjudaginn 25.
október. Alls spila 19 sveitir, sem er
mesta þátttaka sem um getur í sögu
félagsins.
Spilaðir eru tveir 16 spila leikir á
kvöldi.
Að loknum tveimur umferðum er
röö efstu sveita þessi: Stig
1. Stefán Vilhjálmsson 40
2. Hörður Steinbergsson 32
3. Smári Garðarsson 30
4. PállPálsson 28
5. KáriGísIason 26
6. Jón Stefánsson 26
7. Stefán Ragnarsson 25
Þriðja og fjórða umferð verða
spilaöar í Félagsborg nk. þriðjudag kl.
19.30 stundvislega.
Nú er lokið fjögurra umferða Thule-
tvímenningskeppni Bridgefélags
Akureyrar. Verðlaun hafa framleið-
endur Thuleölsins gefið.
Keppnin aö þessu sinni var nokkuö
jöfn og spennandi. Sigurvegarar urðu
Páll Pálsson og Frímann Frímannsson
sem hlutu 735 stig, í öðru sæti voru
Helgi Sigurðsson og Vilhjálmur Hall-
grímsson með 720 stig, en þeir eru
nýlega famir aö spila með B.A.
Spilaö var í þremur 14 para riðlum,
alls 42 pör, þar af spiluöu 10 konur.
Röð efstu para varð þessi:
Stig
1. Páll Pálss.-Frímann Frímannss. 735
2. HelgiSigurðss.-Vilhj.Hallgrímss. 720
3. Stefán Ragnarss-Pétur Guðjónss. 718
4. Ólafur Ágústss.—Grettir Frimannss. 707
5. Gylfi Pálss.—Helgi Stefánss. 689
6. Páil Jónss.-Þórarinn B. Jónsson 687
7. Júlíus Thorarcns.-Alfreð Pálss. 684
8. Amar Daníelss.-Stefán Gunnlaugss. 676
9. KarlSteingrímss.-Bragi Jóhannss. 658
10. Tryggvi Gunnarsson-Rcynir Helgas. 655
Meðalárangur er 624 stig.
Keppnisstjóri er Albert Sigurðsson
og mun hann stjóma keppnum
félagsinsívetur.
Bridgefélag V-Hún.
Hvammstanga
Guðmundarmót var haldið 29/10 sl.
með þátttöku frá Siglufirði, Sauðár-
króki, Skagaströnd, Blönduósi,
Hólmavík, Borgamesi og Borgarfirði
auk heimamanna. Spilaður var
barómeter undir röggsamri stjóm
Guðmundar Kr. Sigurðssonar.
Urslit:
1. Þórir Leifsson-
Þorsteinn Pétursson, Borgarfirðl 149
2. Jón Sigurbjörnsson-
Asgrímur Sigurbjörnsson, Siglufirði 116
3. Anton Sigurbjömsson-
Bogi Sigurbjörasson, Siglufirði 111
4. Flemming Jessen—
Hrafnkell Óskarsson, Hvammstanga 83
5. Jón Aras., Þor. Sigurðss., Blönduósi 76
6. Gunnar Sveinsson-
Kristófer Ámason, Skagaströnd 58
7. Kjartan Jénsson—
Maríus Kárason, Hólmáv. 50
8. Reynir Pálsson-
Þórður Þórðarson, Borgarfirði 40
9. Karl Sigurðsson-
Kristján Bjömsson, Hvammstanga 10
10. Baldur Ingvarsson-
Eggert Levy, Hvammstanga 4
Alls spiluðu 24 pör. Verðlaun gáfu
Sameinaðir verktakar h/f.
Opna Hótel
Akranesmótið
Helgina 12. og 13. nóvember nk.
veröur haldið hið árlega bridgemót
sem kennt er við Hótel Akranes, en
eins og aliir bridgespilarar vita er
þetta mót orðið hefðbundiö.
Mótið verður með svipuðu sniði og
undanfarin ár.Þrjátíu og tveimur pör-
um em ætluö sæti í mótinu, spilin
verða tölvugefin og spilaö verður sam-
kvæmt barómeter-fyrirkomulagi.
Eins og á undanfömum árum býður
Hótel Akranes upp á einstaklega hag-
stæða helgarpakka. Pakkinn kostar
aðeins 1.200 kr á mann og innif alið er:
Laugardagur: hádegisverður, kaffi,
kvöldverður.
Sunnudagur: morgunverður,
hádegisverður. Auk þess er gisting og
keppnisgjald innifaliö.
Keppnisgjald fyrir þá spilara sem
ekki notfæra sér helgarpakka Hótel
Akraness veröur kr. 800 á parið.
Veitt verða mjög vegleg peninga-
verðlaun eins og undanfarin ár. Hótel
Akranes gefur þau og er heildarupp-
hæð þeirra 30.000 kr. sem skiptist
þannig:
1. sæti kr. 15.000. 2. sæti kr. 10.000. 3.
sætikr. 5.000.
Ekki er endanlega búiö aö ganga frá
því hver verður keppnisstjóri.
Spilarar sem eru ákveðnir í því að
taka þátt í opna Hótel Akranesmótinu
1983 geta tilkynnt sig í síma 93-2000 á
skrifstofutíma fyrir miðvikudaginn 9.
nóvember nk.
Björn Theodórsson, nýkjörinn
forseti BSI, setur mótið.
Fulltrúi
nvrra siöa
án söluskatts
Samkvæmt frétt hér í blaðinu fyrir
skömmu kom hingað til lands dönsk
kona eins og guö skóp hana i nælon-
sokkum og háhæluðum skóm og
skemmti fólki á veitingahúsi með því
aö fara úr skónum og sokkunum.
Hér var auðvitað á ferðinni fulltrúi
nýrra siða, nokkurs konar framúr-
stefnukona, þvi aö á þessum árstima
tökum viö Islendingar fram úlpurnar
okkar og skinnhúfumar og ég er viss
um að ef íslensk kona færi aö
striplast á borðunum okkar innan
um tvöfalda vodkann og sevenuppið
myndum viö sjá sóma okkar í því aö
lána henni trefil áöur en við legðum
til að hún yrði send annaðhvort á
Klepp eða heim að sofa úr sér vím-
una.
Fulltrúi nýrra siöa fékk hins vegar
engan trefil og þótt hann legði sig í
Benedikt Axelsson
smástund á boröi úti í sal virtist eng-
inn hafa neitt við það aö athuga og sá
ég ekki betur en menn hefðu bara
gamanaf þessu.
Eg hef svo sem ekkert út á allsbert
kvenfólk aö setja í sjálfu sér og er
það vafalaust ekkert verra skemmti-
atriöi en kappklæddar konur sem
ganga fram og aftur á sviði undir
taktföstum tónum laganna öxar við
ána og Forðum daga var ég að deyja
úr ást — nú er ástin dáin í mér — og
hjartað í mér er — eins og þriðja
flokks smér sem Bonni Tæler syngur
á klukkutíma fresti í útvarpinu og
myndi sjálfsagt syngja þetta oftar
fyrir okkur ef Brahms og Beethoven
þyrftu ekki að komast áð líka.
Mér hefur alltaf fundist eitthvað
vanta til að lífga upp á svartasta
skammdegið því að þótt ljósastaur-
amir geri sitt besta í því efni dugar
það ekki til og ekki þekki ég nokkum
mann sem vildi borga hundrað og
þrjátíu krónur fyrir að glápa á ljósa-
staur jafnvel þótt hann væri settur á
svið.
Við þurfum á bærilegri upplyftingu
að halda þegar drungi vetrarins hvíl-
ir á okkur eins og önnur afborgun af
vísitölutryggðu láni sem á eftir aö
hækka þangað til upphæðin verður í
ætt við stjömumar þvi aö það er ljóst
að þótt ýmsar skuldir verði greiddar
með pennastriki verða aðrar að
borgast með þeim peningum sem
almenningur í landinu hefur yfir að
ráða. Hann er ekki með veskið sitt
fullt af pennastrikum svo ég viti til.
Alvarlegir tímar
En því miður eru alvarlegir tímar
framundan því að útgerðin er að fara
á höfuðið vegna þess að skipin henn-
ar sprengja nætumar sífellt á síld-
veiðunum og loðnukvótinn er víst
orðinn svo stór að ekki er viðlit að
veiða upp í hann allan nema til komi
þau skip sem eru á þorskveiðum á
þurrulandi.
I landbúnaði eru allir á hausnum
nema sláturhúsin sem starfrækt em
í þrjár vikur á ári en taka sér hvíld
að því búnu með flísalögn og hundrað
manna kaffistofu á meðan bændur
lepja dauðann úr skel á dráttarvél-
um án söluskatts og undirbúa næsta
kartöfluuppskerubrest svo að sex-
mannanefndir hafi eitthvað annaö að
gera en reikna út launaliði og verð á
blýöntum til sláturgerðar.
Um iðnaðinn þarf ekki aö ræða.
Mér finnst ekkert undarlegt þegar
svona er í pottinn búiö þótt menn taki
það til bragðs til að lífga upp á
sálarlífið að flytja inn danska konu
til að sprikla með fótunum uppi á
borðum veitingahúsa og ég vona að
stjórnvöld sjái sóma sinn í því að
fella niður af henni söluskattinn eins
og gert er við aðrar nauðsynjar nú í
seinni tíð.
Bjart framundan
En sem betur fer er bjart fram-'
undan í efnahagslífinu því að nú á að
fara að reisa álver við Eyjafjörð
vegna þess að það er búið að reikna
þaö út að útilokað sé að slíkt ver skili
hagnaöi og skilst mér að nú standi
aðeins á því að byggt veröi raforku-
ver, sem verði að sjálfsögöu einnig
rekið með tapi, til að Akureyringar
geti farið að kaupa sér vörubíla eins
og Húnvetningar og sem betur fer
er vist enginn vandi að reka þá með
tapilíka.
Ég er alveg dæmalaust mikill
aðdáandi stóriðju og mér finnst
alveg grátlegt að horfa á allt raf-
magnið renna til s jávar í stað þess að
nota það í einhvem taprekstur og ég
er viss um að ef við hefðum farið að
huga að þessum málum fyrr værum
við búnir að ná helmingi betri
árangri í taprekstri á öllum sviðum í
dag og ættum nú tugi álvera úti um
allt land og mörg hundmö vömbíla.
Eg legg því til að ríkisstjómin felli'
niður söluskatt af álverum.
Kveðja
Ben.Ax.
# Jk F\ Æk VIÐGERÐAR-
L.JrlLJJr\ þjónusta.
• Vatnskassa- og bensíntankaviðgerðir.
• Erum einnig sérhæfðir í Fíat-
viðgerðum.
BÍLAVERKSTÆÐIÐ AUÐBREKKU 4
KÓPAVOGI, SIMI 46940.