Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1983, Side 37
37
Brendon Batson.
BRENDON BATSON
(WBA); Hann á það aUtaf á
hsttu aö detta niður en ef
honum er gefið pláss þá getur
hann stjórnað leik aleinn.
Hann hefur mikið tU að bera
og er því betri sem leikurinn
er mikUvægari.
STEVE ARCHIBALD
(Tottenham): Hann hefur
pokafyUi af hæfUeikum og er
frábær í sendingum. Reynsla
hans og geta eru hverju liði
ómetanleg.
SIMON STAINROD
(QPR): Hann er minn uppá-
haldsleikmaöur. Hann hefur
aUtaf hæfileika tU að koma
manni á óvart.
Garth Crooks.
GARTH CROOKS (Totten-
ham): Eg er mikill aðdáandi
Tony Currie. Hann cr kannski
ekki eins snöggur og hann var
en hann er þess konar leik-
maður sem getur iátið bolt-
ann hiaupa fyrirsig.
Kevin Keegan.
KEVIN KEEGAN (New-
castle): Currie hefði átt að
leika fleiri landsleiki. Þeir
ættu að vera 70 frekar en 17.
STEVE COPPELL (Man-
chester United): Hann getur
unnið leik fyrir Uð sitt en á
þaö á hættu aö detta út úr
myndinni.
Derck Statham.
DEREK STATHAM
(WBA): Ef honum er sieppt
lausum er aldrei að vita
hverju hann tekur upp á.
BRYAN ROBSON (Man-
chester United): Tony er frá-
bær tengUiöur. Ég vUdi að ég
hefði spUað i sama landsUði
og hann, en ég kom inn of
seint.
Sga
Tony Currie — hinn hugmyndaríki knattspyrnumaður sem hefur
leikið með Watford, Sheffield United, Leeds og QPR.
gekk hjá Leeds og hví ekki hjá lands-
liðinu? Já, hví ekki? Jú, landsliðs-
knattspyrna er ekki sú sama og félags-
knattspyma og úrvaUð af færum
spilurum er miklu meira.
Með þessari aðferð sinni útUokaði
Revie frábæra leikmenn eins og Frank
Worthington, Alan Hudson, Mic
Channon, CharUe George og Tony
Currie. Engin furða þó að Revie hafi
farið tU Saudi Arabiu eftir þetta.
Currie lék mest fhnm leiki í röð meö
landsliðinu. Það var keppnistímabiUð
’73-’74, en efth- að Englendingar höföu
tapað, 1—0, fyrir Itölum, var Currie
tekinn út úr liðinu og spUaði ekki fyrr
en ári síðar.
Stórleikur á Wembley
• • ■ en ■ ■
Ariö 1976 skipti Currie um liö enda
Sheffield United faUiö í aðra deUd. Það
var Leeds sem hreppti hnossið fyrir
400.000 pund. Næsti landsleikur kom
svo 1977 er Ron Greenwood hafði tekið
viö stjóminni. Greenwood notaði
Currie í nokkrum leikjum en meiðsli
komu í veg f yrir að hann spUaöi fleiri.
Hvað segir
Hoddle um
Currie?
Við erum góðir vinir og sem
leikmenn erum við svipaðir.
Eg hef alltaf dáðst að honum
sem leikmanni og ef ég ætti að
viðurkenna að ég hefði orðið
fyrir meiri áhrifum frá einum
en öðrum þá er Currie svarið.
Það eru þá helst langar
sendingar og næmleiki fyrir
veikleika í vöm andstæðinganna
sem ég hef tekið frá honum.
Það er skömm að hann skyldi
ekki hafa leikið oftar fyrir
England.
Árið 1978 léku Englendingar gegn
BrasUíu á Wembley. Þessi leikur end-
aði meö jafntefU, 1—1, og það að Eng-
lendingar náðu jafntefii gegn brasi-
Usku snUUngunum var mestmegnis
Tony Currie að þakka, sem þarna lék
sinn langbesta leik á knattspyrnuferli
sínum. Þrátt fyrir stórleik sinn þama
náði Currie aldrei að tryggja sér fast
sæti i Uðinu og hann spUaði sinn síöasta
landsleik gegn Svíum árið 1979.
Nokkrum mánuðum síðar spUaði
Glenn Hoddle sinn fyrsta.
Sló strax í gegn
Hoddle lék sinn fyrsta leik með
Spurs árið 1976. Hann var þá 19 ára og
þótti geysilegt efni í knattspyrnumann,
rétt eins og Currie. Munurinn var
aðeins sá að Hoddle var hjá svo stóru
félagi aö því tókst aö halda í hann þrátt
fyrú- gylUboð stærri félaga. Keppnis-
túnabiUð ’76—77 féll Tottenham í aðra
deUd en Hoddle lék sinn fyrsta U-21 árs
landsleUí, gegn Wales, og kom hann
inn sem varamaður. Þar með var
grunnurinn lagður að landsUðsferU
kappans og hann lék aUs 12 leiki fyrir
U-21 Uðið, þann síöasta gegn Austur-
Þjóðverjum áriö 1980.
Þá hafði hann þegar leikið smn
fyrsta A-landsleik og gert stormandi
iukku. Þetta keppnistímabU (79—’80)
lék Hoddle þrjá leiki í viðbót og geröi
eitt mark enn. ’80—’81 voru leikirnir
þrír og markið eitt. LeikirnU- ’81—’82
urðu fimm, þar af leikurinn hérna og
einn leikur í heimsmeistarakeppnmni
á Spáni. Hoddle gerði eitt mark í þess-
umfimm leikjum.
Eftir HM á Spáni tók Bobby Robsor.
við stjórninni hjá enska Uöinu og
Hoddle virðist vera í enn minna uppá-
haldi hjá honum en hjá Ron Green-
wood. Hoddle hefur aðerns spUað þrjá
leiki á rúmu ári og þar af einn sem
varamaður. Síðasti leikurinn lofar
samt nokkuð góðu þrátt fyrir aðvaran-
U- þær sem saga Tony Currie gefur.
Wembley 22. maí 1982
Arið 1979 skipti Currie um lið og fór
til Queens Park Rangers sem þá lék í
annarri deild. QPR borgaði 400.000
pund fyrU- Currie frá Leeds og er það
enn í dag hæsta upphæð sem Uðiö hefur
greitt fyrir leUcmann. Hápunktur ferUs
Tony Currie var á Wembley í maí árið
1982. Þá lék QPR til úrslita í bikar-
keppninni gegn þáverandi bikar-
meisturum, Tottenham. Því var spáð
að þessi leikur yrði uppgjör á miUi
Hoddle og Currie. Sá sem sýndi betri
leik þar færi með bikarinn heim. I
leiknum sýndu þeU- báðæ góðan leik og
sérstaklega var það áberandi hve
Currie réð miklu um gang leiks QPR-
liðsins, hvort sem litið er á spUið eða
móralmn. Þaö var greinUegt að Currie
var kornrnn til að njóta þessa stærsta
augnabliks leikferilsins, og hafði hann
í frammi alls kyns tiltæki á velUnum
sem áhorfendum líkuðu vel. I lok leiks-
ins skoraði Hoddle mark fyrU- Totten-
ham, mark sem virtist ætla að verða
sigurmark leiksins. En leikmenn QPR
létu ekki deigan síga og jöfnuðu nokkr-
um sekúndum fy rir leikslok.
Meiðsli
Þaö þurfti því að leika annan leik tU
þess að gera út um hvor yrði meistari.
Þaö var gert tæpri viku síðar og þá var
Currie fyrirUði QPR-Uðsins vegna leik-
banns Glenn Roeder. Enn var þaö
Glenn Tioddle sem angraöi QPR-liðið,
nú meö marki úr vítaspyrnu. Það var
Tony Currie sem hafði handleikið
knöttinn rétt áður en hann þandi net-
möskva QPR-Uðsins.
Það vakti athygU að Currie var hálf-
haltur í báðum leikjunum. Þetta voru
meiðsli sem höfðu verið að angra hann
meira og minna allt keppnistímabUið
og gerðu það aö verkum að hann lék
aðeins tuttugu leiki þetta keppnistíma-
bU. I upphafi næsta leiktímabUs á eftir
(’82—’83) var Currie meiddur og þegar
hann loks náöi sér var QPR-liöið lang-
efst í annarri deildinni og Utlar líkur á
að liðinu yrði breytt. Það geröist held-
ur ekki og Currie lék aöeins tvo leiki í
heUt keppnistúnabil. Hann baö síöan
um að fá að fara frá félaginu og fékk
það.
Óheppni
Hann hélt til Kanada þar sem hann
ætlaði að leika með Toronto BUzards í
kanadísku deUdinni. Hann var varla
lentur er tilkynnt var að félagið hefði
farið á hausinn og því var ekkert annaö
að gera en að halda heim á leið á ný. Er
þangað kom lýsti Currie yfir áhuga
sinum á að ganga á ný til Uðs við sitt
gamla félag, Sheffield United. En Ian
Porterfield, stjóri liðsins, gerði stór
mistök með því að neita þessu boði.
Þaö má vel vera að í Currie hafi veriö
sá neisti sem þriöju deildar liðið hefur
vantað í vetur. Currie gekk tU liðs við
Southend í sömu deild en óheppnin
hafði ekki sagt skiUð við hann. Fyrir
fyrsta leikinn tóku meiðslin sig upp
aftur og enn hefur hann ekki náð sér af
þeim. Sannarlega sorgleg saga glæsts
leUcmanns.
Robson-planið?
Glenn Hoddle hefur lUca fengiö
vænan skammt af meiðslum og hafa
þau verið meginástæðan fyrir því að
evrópsk stórUð hafa hætt við að kaupa
hanntUsín.
Það virtist svo sem leikurinn á
Wembley gegn QPR yrði síðasti leUcur
Hoddle með Tottenham því að sá orð-
rómur gekk fjöUunum hærra aö hann
væri á leið til megmlandsins. En úr því
varð ekki og Hoddle varð um kyrrt.
Það sama lá í loftinu í lok síðasta leUc-
tímabUs en ekkert gerðist.
Glenn Hoddle fer vísj(st úr landi eftir
þetta leUctímabil en frámtíð hans í
enska landsUðinu er undir Bobby Rob-
son komin og verða unnendur góðrar
knattspyrnu bara að bíöa og vona að
hann fái tækifæri. Ef Robson tekur
Hoddle út úr Uöinu er alveg víst aö
þarna er á ferðinni nýtt Revie-plan.
SIGURBJÖRN G. AÐALSTEINSSON.
Mazda 628 2000 Sport 1979, ek-
inn 63.000. Verfl kr. 180.000.
Subaru 4x4 1981, hátt og légt
drif, drapplitur, ekinn 35.000
km.Verfl 295.000.
BMW 320 1981, ekinn 19.000
km, bronsgrænn. Verfl
330.000. Ath. Skipti á sendi-
ferðabíl.
Chevrolet Suburban 4x4 árg.
1979, ekinn 4000 mílur, hvitur.
Verð kr. 600.000. sem nýr.
Chevrolet Blazer 4x4
m/trader disilvál árg. 1971,
rauflur/svartur. Verfl kr.
200.000.
Chevrolet Malibu Classic árg.
1980, ekinn 46.000 km, blár.
Verfl kr. 350.000. Fallegur bíll.
Opel Rekord disil Berlina 1981,
blár, sjálfsk., vökvast. Verfl
kr. 395.000.
Plymouth Volaré Premier
station árg. 1978, ekinn 69.000
km, litur gulur/brúnn. Verð
210.000. Ath. splittað drif.
Chevrolet Citation 1980,
sjálfsk., vökvast., ekinn
48.000. Verfl kr. 255.000. Góð
kjör, ath. framdrif.
BIFREIDADEILD
SAMBANDSINS
HÖFÐABAKKA9 SÍMI 39810
OPIÐ MANUDAGA TIL FÖSTUDAGA KL. 9-18
(OPIÐ I HADEGINU) LAUGAHDAGA KL. 13—17