Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1983, Síða 48
Vestfirskir
togarasjómenn:
Vilja leggja skrap-
dagakerfið niður
Félagar úr skipstjóra- og stýri-
mannafélaginu Bylgjunni á Isafiröi
komu þeirri hugmynd á framfæri á
þingi Farmanna- og fiskimannasam-
bandsins aö skrapdagakerfi togara
yröi lagt niöur.
Þykir ýmsum skjóta skökku viö aö
leggja þaö niður þar sem kerfiö var
fundið upp til aö beina togurum frá
þorskveiöum og enn er fyrirsjáanlegur
samdráttur í þeim veiðum.
En Isfiröingar rökstyðja mál sitt
með því aö veiðieftirlitsmannakerfið
og aflaskýrslur Fiskifélags Islands
gefi svo glögga mynd af stöðunni,
næstum upp á dag, aö skrapdagakerfið
sé óþarft.
Segja þeir aö í heildina væri hag-
kvæmara aö leyfa mönnum að haga
þorskveiðum sínum aö vild og stöðva
þær þá fyrirvaralaust ef í óefni stefndi,
fremur en aö menn veröi að elta þorsk
tiltekna daga þegar þeir eiga ef til vill,
síður von á honum en ella. -GS
Áskorun
Alþýðusambandsins:
Fulltrúarneytenda
úrsexmanna-
nefnd
Miöstjóm Alþýöusambands Islands
hefur skorað á Sjómannafélag Reykja-
víkur og Landssamband iönaöar-
manna aö draga nú þegar fulltrúa sína
út úr sexmannanefnd. Jafnframt skor-
ar miöstjómin á ríkisstjórn og Alþingi
aö vinda bráðan bug aö breytingum á
stöönuöu verðmyndunarkerfi land-
búnaöarins meö nýrri lagasetningu um
Framleiösluráö landbúnaðarins.
I ályktun miðstjómarinnar um þetta
mál segir að verðlagningarkerfi land-
búnaðarins sé með öilu rofiö úr tengsl-
um við neytendur í landinu en verö
ákvarðist út frá forsendum sem sex-
mannanefnd hafi engin áhrif á. Því
skorar miöstjórnin á fyrrnefnd félaga-
samtök að-draga fulltrúa sína úr sex-
mannanefnd þar sem þeir hafi ekki
raunhæfar aöstæöur til þess aö gæta
þeirra hagsmuna sem þeir eru settir til
aö gæta. Meö því myndi skapast
nauösynlegt svigrúm til þess að stokka
upp í heild allt veröákvöröunarkerfi
landbúnaöarins.
Ályktunin er sett fram vegna þeirra
hugmynda sem uppi em um aö fela
Framleiðsluráöi landbúnaðarins og
sexmannanefnd ákvörðunarvald um
framleiðslumagn og verölagningu á
eggjum, alifuglum og svínum og telur
miöstjóm ASI að með þeirri breytingu
sé hætta á verðhækkun varanna og
hugsanlega offramleiöslu.
Auk tveggja fyrrgreindra félaga-
samtaka átti ASI sæti í sexmanna-
nefnd sem fulltrúi neytenda, en þaö
sagöi sig úr nefndinni fyrir nokkrum
ámm. ÖEF
27022
AUGLÝSINGAR
SÍÐUMÚLA 33
SMÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA
SKRIFSTOFUR
ÞVERHOLTI 11
86611
RITSTJÓRN
SÍÐUMÚLA 12—14
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1983.
Stöðugleika Hólmadrangs, eins nýjasta og dýrasta togara f lotans, þykir ábótavant:
KJOLFESTAN ER AÐ
VERDA FULLFERMI
— farið fram á að stöðugleikaúttekt verði gerð á öllum íslenskum fiskiskipum
Þrátt fyrir aö einn nýjasti og jafn-
framt dýrasti togari flotans, Hólma-
drangur, hafi fengið haffærisskír-
teini Siglingamálastofnunar Islands
eftir aö hann var afhentur frá skipa-
smíðastöðinni Stólvík í Garöabæ fyrr
á árinu er þrivegis búiö aö auka
verulega við kjölfestu skipsins af
öryggisástæöum.
Skipiö hafði aðeins fariö í nokkrar
veiöiferöir þegar 25 tonnum af
steypu var bætt í botn þess, aö
eindreginni ósk áhafnar. Við þaö
skánaöi þaö eitthvað og var ekkert
frekar að gert í sumár, enda góð tíð
til veiða allt sumarið.
Fyrir röskum mánuði var enn bætt
tiu tonnum af steypu í skipiö þar sem
það þótti ekki haga sér eðlilega og
eftir gagngerar endurmælingar var
svo bætt 60 til 70 tonnum í það. Hefur
þá verið bætt um hundrað tonnum
viö kjölfestuna frá því aö skipið fékk
haff ærisskírteini sem öruggt skip.
Sjómenn, sem veriö hafa á Hólma-
drangi og DV hefur haft tal af, lýsa
því allir á sama veg. Það valt nánast
ekkert miðaö viö venjuleg skip, það
braut á því eins og á skeri og það var
steindautt, eins og sjómenn oröa þaö.
Þaö geta verið einkenni of hás
þyngdarpunkts. Þá lagöist þaö
óeðlilega á hléborö undan kuli og
væri ekki snúið á fullu afli á toginu
lagöist það óeðlilega á hliðina inn í
beygjuna.
Skipstjóri, sem oft hefur séð
Hólmadrang að veiöum, sagði í
viðtali viö DV aö hann heföi aldrei
séð skip haga sér eins og Hólma-
Þrivegis hefur verið aukið við
kjöifestu hins nýja og dýra
togara, Hólmadrangs.
drangur, hann skildi ekki hreyfingar
skipsins.
Allar þessar lýsingar eiga við áöur
en 60 til 70 tonnunum var bætt viö,
enda er þaö fyrst þessa dagana sem
verið er aö reyna þaö eftir viöbótina.
öll þessi steypa hefur þyngt skipið
svo aö þegar það er meö fulla vatns-
geyma og olíugeyma við upphaf
veiöiferöar er það nánast komið á
hámarks hleöslumerki miöað viö
siglingar í N-Atlantshafi, þ.e. að
skipið er þá nálega meö fullfermi.
Þar sem Hólmadrangur er verk-
smiöjutogari sem frystir flök um
borö fer hlutfallslega mikil olia fyrir
hvert tonn af afuröum svo skipiö
þyngist ekki verulega eftir þvi sem á
túrinn liður.
Þetta mál var m.a. kveikja
áskorunar Skipstjóra- og stýri-
mannafélagsins öldunnar í vikunni á
öryggisnefnd Farmanna- og fiski-
mannasambandsins um aö gerð
veröi stöðugleikaúttekt á öllum is-
lenskum fiskiskipum.
-GS
Skipverjar á Gisia Arna búnir að hifa netabún-
aðinn i iand og voru að taka ioðnunótina um
borð i Reykjavikurhöfn igær.
DV mynd: S
LOÐNUVERTÍÐ HAFIN
— sjómenn mjög óánægðir með loðnuverðið
Yfirnefnd verölagsráðs sjávarút-
vegsins ákvaö loðnuverð til bræðslu
veturinn ’83 til ’84 um kvöldmatar-
leytiö í gærkvöldi. Þaö var ákveöið
1.330 fyrir tonniö miöaö viö 16
prósent fituinnihald og 15 prósent
fitufritt þurrefni. Hækkar það eöa
lækkar eftir breytingum á því.
Þetta er lægra verö en almennt
haföi verið búist við miðað við
markaðshorfur á mjöli og lýsi og
geröi Oskar Magnússon, formaöur
Sjómannasambands Islands og
nefndarmaður í yfirnefnd,þá grein
fyrir atkvæöi sínu aö hann teldi í
engu tekiö tillit til afkomu sjómanna.
„Þá tel ég aö ekki hafi komið fram
þau rök, hvorki er varðar markaðs-
forsendur né um vinnslukostnað
verksmiðjanna er réttlæti þetta lága
verö.”
Hilmar Rósmundsson, fulltrúi út-
vegsmanna, tók í svipaðan streng og
sagöi hráefnisverö ekki í neinu sam-
ræmi við þær hækkanir sem orðið
heföu á loönuafuröum á heimsmark-
aöi frá því síðasta hráefnisverö var
ákveðið.
Eftir því sem DV rekur minni til
var það 44 aurar áriö 1981. Blaðinu er
kunnugt um aö sjómenn væntu tals-
vert hærra verös en þetta. Flotinn
beiö í startholunum í gærkvöldi þar
sem ákveöið var aö róa ekki fyrr en
verö lægi fyrir en ekki var unnt að
kanna í gærkvöldi hvort verðlagning-
in hefði breytt nokkru úm upphaf
veiöa.
Loðnubátarnir eru 51 og mega
veiöa frá rösklega sex þúsund tonn-
um upp í rösk 10 þúsund tonn eftir
stærð og var reiknaö með að fjöldi
þeirra héldi til veiða í gærkvöldi.
-GS
Úf vegsmenn vil ja
banna f lotvörpu
Tilmæli til stjórnvalda um bann við
notkun flotvörpu var ein helsta sam-
þykkt á annars tíðindalitlu þingi
Landssambands íslenskra útvegs-
manna sem lauk á Akureyri síðdegis í
gær.
Snarpar umræöur uröu um málið og
tillaga um bann síðan samþykkt meö
nokkrum meirihluta eftir skriflega at-
kvæðagreiðslu.
A þinginu var einnig talsvert rætt
um hvort taka ætti upp kvótakerfi um
veiðar á öllum botnfiski á næsta ári.
Skiptar skoðanir voru um það en það
var samþykkt meö 43 atkvæðum gegn
27 aö skipa níu manna nefnd til að
kanna máliö. Skal hún skila áliti fyrir
árslok.
Aöalfundurinn beinir því einnig til
stjórnar samtakanna að hún taki
þegar upp viðræður viö stjórnvöld um
hvernig takmarka megi sókn
fiskiskipaflotans til þess aö fiskstofnar
verði ekki ofveiddir.
I almennri ályktun fundarins á Akur-
eyri segir meðal annars aö veröi
rekstrargundvöllur útgeröarinnar
ekki tryggður aö mati stjórnar LIU
fyrir þann 1. febrúar næstkomandi, er
bráöabirgöalög ríkisstjómarinnar
falla úr gildi, kalli stjóm samtakanna
saman til fundar trúnaöarráö samtak-
anna í þeim tilgangi að taka ákvöröun
um til hvaða aðgerða skuli grípa til
þess að tryggja hallalausan rekstur á
meöalskipi fiskiskipaflotans á árinu
1984.
I fundarlok fór fram stjórnarkjör og
var Kristján Ragnarsson endurkjörinn
formaöur Landssambands íslenskra
útvegsmanna. -JBH, Akureyri.
Skaupið samið
Þeir Andrés Indriöason og Þráinn
Bertelsson hafa veriö fengnir til að
semja áramótaskaupið sem sýnt verð-
ur í sjónvarpinu á gamlárskvöld.
Þeir voru einnig höfundar aö
áramótaskaupinu í fyrra en þaö þótti
smellið og margir góðir punktar í því.
-klp'