Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1983, Side 1
DAGBLAÐIЗVÍSIR________267. TBL. — 73. og 9. ÁRG. — MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1983.
' VERÐLAGSSTOFNUN:
Allar lágmarksgjald-
skrár til rannsóknar
„Kom frekará óvart, " segir formaður A rkitektafélagsins
„Af tilviljun fá þessi félög fyrst
bréf frá okkur, við munum aö sjálf-
sögðu fjalla um gjaldskrármálefni
allra þeirra félaga sem hafa lág-
marksgjaldskrár,” segir Georg
Olafsson verðlagsstjóri. Verðlags-
stofnun hefur skrifaö félögum
arkitekta, verkfræöinga og
snyrtifræöinga um að hún telji lág-
marksgjaldskrár þeirra brjóta í
bága við lög um frjálsa verðmyndun.
Verðlagsstjóri visaði til löggjaf-
arinnar í samtali við DV. Hann kvað
þó sérstakar undantekningar
heimilar og væri viðkomandi
félögum jafnframt bent á það.
„Þetta kom frekar á óvart,” segir
Haraldur Helgason, formaður
Arkitektafélagsins. „Við höfum sér-
staka verðlagsnefnd og höfum haft
gjaldskrá til fjölda ára. Hún leitaði
strax til lögfræðings og nú er á
döfinni fundur með lögfræðingi
Verðlagsstofnunar. ”
Meðal fjölmargra annarra félaga
sem hafa lágmarksgjaldskrá en
þeirra sem þegar hefur verið skrifaö
er Lögmannafélagið. „Ef við fáum
svona bréf þá bara skoðum viö það,”
segir Jón Steinar Gunnlaugsson, for-
maður þess félags.
„Lögmannafélagið var stofnað
1911 ekki síst til þess að búa til taxta
yfir verk lögmanna. Síðan 1941 starf-
ar félagið á grundvelli sérstakra
laga og samþykktir þess á hverjum
tíma eru háöar samþykki dóms-
málaráðherra. Okkar lágmarks-
gjaldskrá, sem spyrja mætti raunar
hvort ekki hefði frekar verið há-
marksgjaldskrá í reynd, er því
byggö á nokkuð traustum grunni. En
ég hef síður en svo uppi athuganir viö
viðleitni Verðlagsstofnunar. ”
-HERB.
Svavar Gestsson, formaöur Alþýðubandalagsins, óskar varaformanninum, Vilborgu Harðardóttur, til hamingju með sigurinn eftir að Ijóst varð að
hún var sjálfkjörin i það embætti.
Landsfundi Alþýðubandalagsins lauk í gær:
Vilborg kjörin varaformaöur
— Svavar Gestsson endurkjörinn formaður
Svavar Gestsson var endurkjörinn
formaöur Alþýðubandalagsins á lands-
fundi flokksins sem lauk í gærkvöldi..
Vilborg Harðardóttir, útgáfustjóri Iðn-
tæknistofnunar, var kjörin varafor-
maöur flokksins í stað Kjartans Olafs-
sonar sem ekki gaf kost á sér. Margrét
Frímannsdóttir oddviti á Stokkseyri
var kjörin gjaldkeri og Helgi
Guömundsson bæjarfulltrúi á Akur-
eyri var kjörinn ritari flokksins.
Kjörið var samkvæmt tillögum upp-
stillinganefndar en aðrar tilnefningar
komu aðeins fram um gjaldkera.
flokksins. Var því aöeins kosið um þaö
embætti. Margrét Frímannsdóttir
hlaut 186 atkvæði, Hilmar Ingólfsson
bæjarfulltrúi í Garðabæ hlaut 32 at-
kvæði og Haraldur Jóhannsson hag-
fræðingur hlaut 3 atkvæði en 5 atkvæði
voru ógild.
Á landsfundinum voru samþykkt ný
lög fyrir flokkinn. Meö þeim verður sú
breyting aö ýmis félög sem bundin eru
ákveönum viðfangsefnum eða
málefnum geta átt aðild að
Alþýöubandalaginu sem heild án þess
að einstakir félagsmenn séu flokks-
bundnir. Þá kveða nýju lögin á um að
hvort kyn skuli eiga aö minnsta kosti
40% fulltrúa í öllum stofnunum flokks-
ins sem kosiö er til, svo fremi aö nægi-
lega margir séu í framboði. Ef færri en
40% af hvoru kyni eru í framboði
teljast þeir sjálfkjörnir. Þessi regla
gildir ekki um val á framboðslista. ÖEF
Hðllinstraxað
verðaoflítil
— sjábls. 18
Eldurfrísíbúð
— sjábls.3
New York vill
Sauóár-
króksvatn
-sjábls.2
•
Alþjódlegsjávarút-
vegssýning
ádöfinni: