Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1983, Qupperneq 11
DV. MANUDAGUR 21. NOVEMBER1983.
11
„Ekki mikill ferðamaður”
— segir Karl Sigurhjartarson, nýráðinn forst jóri Úrvals
Karl Sigurhjartarson tók viö starfi
forstjóra feröaskrifstofunnar Urvals
þann 8. nóvember síöastliöinn.
„Mér líst vel á þetta og ég held aö
þetta verði spennandi. Starfið er ekki
mjög ólíkt því sem ég hef veriö aö
fást við,” sagði Karl þegar hann var
spuröur hvernig hann kynni viö sig.
Karl var áöur sölustjóri Flugleiöa
og haföi verið í þrjú ár. Hann á hins
vegar aö baki langan starfsaldur hjá
Flugleiöum og Flugfélagi Islands
þar sem hann byrjaði sem hleðslu-
maöur fyrir 23 árum. Síöan hefur
hann komið víöa viö í fyrirtækinu.
Sagt er að meö nýjum mönnum
komi nýjar hugmyndir og því var
Karl spuröur hvort hann heföi uppi
einhver áform um aö breyta stefnu
Urvals.
„Ég er ekki meö neitt óskaverkefni
í maganum. Þessa stundina erum
við aö gera úttekt á rekstrinum og
hún á að sýna okkur hvaöa þættir í
starfseminni eru aröbærir og hverjir
eru þaö síöur. Stefnumótun í f ramtíö-
inni veröur byggö á þessari úttekt.
Það er þungur tími framundan og viö
ætlum ekki aö gefa neitt eftir. Viö
erumbjartsýnir.”
Karl Sigurhjartarson er þekktur
bridgespilari, hefur bæði oröiö Is-
landsmeistari og spilaö meö landsliö-
inu. Karl var alinn upp á miklu
bridgeheimili en hann byrjaöi ekki
aö keppa fyrr en um 1966—67.
„Bridge er margslungiö spil og þaö
sem heillar viö þaö er mannlegi
þátturinn og óvissuþátturinn. Þaö
þarf aö halda góöum tengslum viö fé-
lagann sem situr á móti. Þaö þarf
aö byggja hann upp móralskt og
,, Ég held aö þetta eigi eftir aö vera spennandi starf, " segir Karl Sigur-
hjartarson, forstjóri Úrvals. O V-m ynd E. Ó.
ekkert þýöir aö vera vondur þó aö
makkerinn geri vitleysur. Þá liggja
staöreyndirnar ekki á boröinu og þaö
er hægt aö blekkja andstæðinginn þó
aö þaö sé ekki mikiö gert,” sagöi
Karl þegar hann var spuröur hvaö
væri svona heillandi viö bridge.
Hann bar það að þessu leyti saman
viö skák en þar lægju aftur á móti
staðreyndirnar á boröinu og skák-
maðurinn væri einn.
Eins og sæmir manni í hans stööu
var Karl aö lokum spurður hvort
hann heföi gaman af aö ferðast.
„Eg hef takmarkaða ánægju af
viðskiptaferöum sem er, held ég,
reynsla flestra sem þurfa aö standa í
þeim. En ég nýt feröalaga eins og
hver annar. Eg er þó ekki mikill
■ ferðamaður,” sagöi Karl Sigur-
hjartarson.
Karl er kvæntur Kristínu Vigfús-
dóttur og þau eiga tvo syni.
-GB.
U-BÍX90
Smávaxna eftirherman
Þó U-BIX 90 sé minnsta eftirherman í U-BIX fjölskyldunni hefur hún alls enga
minnimáttarkennd, enda óvenju hæfileikarík og stórhuga eftirherma.
Einstaklingar og fyrirtæki sem til hennar þekkja láta heldur ekki á sér standa
og pantanir streyma inn.
Vertu klár
í &laginn!
Yfirförum Fischer skíði og Tyrolía
bindingar fyrir veturinn.
Stillum Tyrolía bindingar að kostnað-
arlausu.
Skjót og góð þjónusta.
Hverfisgötu 33 — Slmi 20560 — Pósthólt 377
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
TYROLIA
DACHSTEIN
adidas
TOPPmerkin
í íkíðavörum
Ofiið d óxtfqariclxxyMm
ÞEKKING - REYNSLA - ÞJÓNUSTA
FÁLKINN 105 REYKJAVÍK
SUÐURLANDSBRAUT 8 - SÍMI 91-84670
| MYIMQAMÓT