Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1983, Side 23
íþróttir
(þróttir
Er að komast
í gamla formið
segir Karl Þórðarson en Laval er nú um miðja
deild í Frakklandi. Bordeaux í efsta sæti
„Ég er að komast í mitt gamla form
á ný — í ágætri leikæfingu. Hef verið
fastamaður í liði Laval í fimm síðustu
leikjunum og er orðinn alveg góður af
meiðslunum. Laval gerði jafntefli í
Toulon á laugardag, 2—2. Þeir Goudet
og Soto skoruðu mörk Laval. Liðið er í
níunda sæti með 19 stig úr 19 leikjum
eða 50% árangur. Það er jafnvel betra
en við reiknuðum með því við misstum
marga góða leikmenn fyrir leik-
tímabilið,” sagði Karl Þórðarson í
Frakklandi, þegar DV ræddi við hann í
gær. Cannes, sem Teitur Þórðarson
ieikur með í suðurdeild 2. deildarinnar
frönsku, gerði jafntefli á útivelli á
laugardag. Er nú í sjötta sæti.
Bordeaux komst á ný í efsta sæti 1.
deildar á laugardag. Sigraöi þá Bastia
1—3 á Korsíku. Bastia náði forustu
með marki Zimako Are úr vítaspyrnu
en þýski landsliðsmaðurinn hjá
Bordeaux, Dieter Miiller, skoraði
þrennu í s.h. Urslit í 1. deild á laugar-
dag urðuþessi.
Monaco-Toulouse 2-3
Bastia-Bordeaux 1-3
St. Etienne-Nantes 0-0
Auxerre-Strassborg 3—0
Toulon-Laval 2-2
Lille-Sochaux 1-2
Metz-Nimes 2-1
Rennes-Nancy 2-1
Brest-Lens 2-1
Staða efstu liða.
Bordeaux 19 12 4 3 37-19 28
Monaco 19 11 4 4 34-16 26
Nantes 19 11 4 4 23-11 26
Auxerre 19 12 1 6 30-16 25
Paris SG 18 10 4 4 33-22 24
Steini skoraði
úrslitakörfuna
— Keflvíkingar komu á óvart og sigruðu
Njarðvíkinga í „Ljónagryfjunni” 60:61
Körfuknattleikur, Úrvalsdeild,
UMFN—IBK 60—61 (28—26)
Eftir tvo hrikalega ósigra tókst Kefl-
víkingum að sigra nágranna sína,
Njarðvikinga, efsta lið úrvalsdeildar-
innar, á föstudagskvöldið, og það á úti-
velli, með 61—60 eftir að hafa verið
undir í hléi, 26—28. Njarðvíkingar voru
greinilega of sigurvissir og áttuðu sig
ekki nógu vel á ÍBK-liðinu sem varð að
taka á öllu sínu til að öðlast sjálfs-
traustið að nýju. Reyndar tryggðu þeir
sér ekki sigurinn fyrr en á loka-
sekúndunum — og það á mjög eftir-
minnilegan hátt. Sturla örlygsson
hafði jafnað fyrir UMFN 60—60, en
braut af sér um leið. Þorsteini Bjarna-
syni var falið að reyna að koma
knettinum í Njarðvíkurkörfuna úr
tveimur vítaskotum. Taugarnar
brugöust ekki hjá hinum reynda knatt-
leiksmanni. Annað skotið hitti og sigur
ÍBK var þar með tryggður, 61—60.
Keflvíkingarnir voru ragir við að
„keyra” inn í vörnina hjá Njarðvíking-
unum í fyrri hálfleiknum, skutu oftast
af löngum færum. Þeir léku vörnina
vel, mikil breyting frá fyrri leikjum og
náöu núna fráköstum sem þeim var
alveg fyrirmunað í tveimur seinustu
leikjum. I seinni hálfleik geröust þeir
sókndjarfari og áræddu aö fara undir
körfuna og náöu þá fljótt að vinna upp
forskot UMFN og komast yfir 54—43.
Njarövíkingarnir, sem léku án hins
efnilega Isaks Tómassonar, voru öllu
fjölbreyttari í leik sínum en mót-
herjarnir og ákveðnari framan af. Við
þaö fengu þeir á sig villur og voru
komnir í nokkur vandræði í byrjun
seinni hálfleiks. Það gerðu Keflvíking-
ar einnig þegar líða tók á leikinn þótt
Pétur Jónsson væri sá eini sem varð að
vikja af velli, með fimm villur.
Seinustu mínúturnar voru æsi-
spennandi fyrir fullt hús áhorfenda,
sem voru að jöfnu gestir og heima-
menn. Sturla Örlygsson og Valur Ingi-
mundarson, tveir öflugustu menn
UMFN, söxuðu, smám saman á 58—50
forskot IBK og Sturla jafnaði þegar
aöeins 7 sek. voru eftir að leiktíman-
um, en braut af sér um leið, svo sem
áöur er getiö, eða svo töldu þeir Jón
Otti og Gunnar Guömundsson, ákveðn-
ir dómarar leiksins.
Maður leiksins: Jón Kr. Gíslason
IBK.
Stigin: IBK: Þorsteinn Bjarnason
14, Jón Kr. Gíslason 14, Öskar Nikulás-
son 13, Björn V. Skúlason 6, Hafþór
Oskarsson 6, Guðjón Skúlason 4, Sig-
urður Ingimundarson 4.
Stig UMFN: Valur Ingimundarson,
27, Sturla Örlygsson 12 Gunnar Þor-
varöarson 11, Ástþór Ingason 6, Júlíus
Valgeirsson 2, Ingimar Jónsson 2.
jm/he.
FA-bikarkeppnin:
Deildaliðin
féllu víða
Fyrsta umferðin í ensku bikarkeppn-
inni — FA-CUP — var háð á laugar-
dag. Þá hefja liðin í 3. og 4. deild
keppni. Liöin í 1. deild byrja í 3. umferö
fyrst í janúar. Urslit á laugardag.
Aldershot-Worcester 1—1
Leammgton-Gillingham 0—1
Barking-Farnborough 2—1
Barnet-Bristol Rov. 0—0
Boston-Bury 0—3
Bournemouth-Walsall 4—0
Bradford-Wigan 0—0
Burton-Windsor 1—2
Chelmsford-Wycombe 0—0
Chester-Chesterfield 1—2
Corintian-Bristol City 0—0
Dagenham-Brentford 2—2
Darlington-Mossley 5—0
Exeter-Maidstone 1—1
Frickley-Altrincham 0—1
Gainsborough-Blackpool 0—2
Halifax-Whitby 2—3
Burnley-Hyde 2—0
Kettering-Swindon 0—7
Macclesfield-York 0—0
Mansfield-Doncaster 3—0
Millwali-Dartford 2—1
Northampton-Waterlooville 1—1
Northwich-Bangor 1—1
Oxford-Peterborough 2—0
Penrith-Hull City 0—2
Port Vale-Lincoln 1—2
Reading-Hereford 2—0
Rochdale-Crewe 1—0
Rotherham-Hartlepool 0—0
Scunthorpe-Preston 1—0
Southend-Plymouth 0—0
Tclford-Stockport 3—0
Torquay-Colchester 1—2
Tranmere-Bolton 2—2
Wealdstone-Enfield 1—1
Wrexham-Sheff. Utd. 1—5
Yeovil-Harrow ' 0—1
-hsím.
Styrkið og fegríð Ukamann
DÖMUR OG HERRAR!
NÝTT 3 VIKNA NÁMSKEIÐ HEFST 28. NÓV.
Hinir vinsœlu herratimar i hádeginu
Hressandi — mýkjandi — styrkjandi — ásamt megrandi æfingum. Sértímar fyrir
konur sem vilja léttast um 15 kg eða meira. Sértimar fyrir eldri dömur og þær sem eru
slæmar í baki eða þjást af vöðvabólgum. Vigtun — mæling — sturtur — gufuböð —
kaffi — og hinir vinsælu sólarium-lampar.
Leikfimi fyrir konur á öiium aldri.
Júdódeild Ármanns
Ármi'ikl Innritun oq upplýsingar alla virka daga
AAfmUM 04. kL 13_ 22 i síma 83295.
NEW i NEW
Caiion Canon
iPig-»/g(5) re-oa/gffl
Ljósritar
í þremur
litum,
engar
hreinsanir
eða
stillingar.
Canon
Personal Copier
NEW ■ NEW
Canon Canon
fflffl-Uffl/gffl [pffl-íffl/gffl
Údýrust
á markaðnum.
Verð
38.600.
NEW
Canon
fflffl-jffl/fflffl
Ljósritar á þunnan og þykkan pappír,
40 til 128 gr/m2.
Sf Minnsta afrit 49 x 85 mm, t.d. nafnspjöld.
fflffl=Dffl/ffl@
NEW
Canon
fflffl-jffl/g®
8 Ijósrit á mínútu báðum megin.
NEW
Canon
fflffl-Hffl/gffl
Heppileg fyrir minni fyrirtæki, deildir
stærri fyrirtækja, einstaklinga o. fl.
Cation
Shrift/élin hf skb*-*
íþróttir
íþróttir