Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1983, Side 28
28
DV. MÁNUDAGUR 21. NOVEMBER1983.
(þróttir
fþrótt
(þróttir
(þróttir
J
Vamarmúr Stoke á Anfield
dugði ekki gegn Liverpool
— lan Rush skoraði sigurmark meistaranna. West Ham og Man. Utd. fylgja þeim fast á eftir
f'rank Stapleton skoraöi þrennu íyrir Man. Utd. gegn Watford.
Ritehie Barker, framkvæmda-
stjóri Stoke, sagði fyrir leikinn gegn
Liverpool á Anfield að hann myndi
láta leikmenn sína „pakka” í vörn og
freista þess að ná jafntefli. Gekk
hann svo langt að ráðleggja stuön-
ingsmönnum Stoke að mæta ekki á
leikinn, spara sér ferðina og mæta
frekar á leik liðsins gegn Hudders-
field í mjólkurbikarnum nk.
miðvikudag, stuðningur þeirraværi
mikilvægari þar.
Barker stóð viö orð sín, Stoke lék
allan leikinn með tíu manna vörn og
leikmenn Liverpool komust lítt áleið-
is. Greame Souness átti tvívegis
hörkuskot utan vítateigs í fyrri hálf-
leik, sem Peter Fox markvörður
Stoke varði mjög vel, en á 67. mínútu
brast loks varnarmúrinn hjá Stoke.
Phil Neal, bakvörður Liverpool, átti
þá sendingu fyrir markið og þar
stökk Ian Rush hæst ailra og skallaði
i markið, óverjandi fyrir Fox. 16.
mark Rush á leiktímabilinu. Tveim-
•ur mínútum síðar átti Rush aftur
skalla á mark Stoke en Peter Hampt-
on, bakverði Stoke, tókst að bjarga á
marklínu. Þegar dómari leiksins
flautað síöan til leiksloka bauluðu
áhorfendur á Anfieid á leikmenn
Stoke fyrir að reyna ekki aö spila
knattspyrnu í leiknum. Eins og gefur
að skilja átti Stoke ekki eitt einasta
marktækifæri í leiknum.
Phil Parkes hetja West
Ham
Sunderland, sem hefur gengið
mjög vel að undanförnu og aðeins
tapað einum leik í síðustu átta leikj-
um, mætti nú ofjarli sínum sem var
Phil Parkes markvörður West Ham.
Parkes sýndi snilldarmarkvörslu í
leiknum og kom hann í veg fyrir að
Sunderland næöi að skora mark.
Leikmenn Sunderland sóttu mun
meira í leiknum og átti Iæighton
James stórleik á vinstri kantinum og
réð Ray Stewart bakvöröur West
Ham lítiö viö hann, var hann bókaö-
ur í leiknum fyrir aö brjóta á James
á grófan hátt. Parkes varði tvívegis
glæsilega frá þeim Gary Rowell og
Colin West í fyrri hálfleik. En í síöari
hálfleik varði hann á nær undraverð-
an hátt frá Gary Rowell. Leighton
James komst upp að endamörkum
og sendi knöttinn vel fyrir mark
West Ham og þar var Gary Rowell á
markteig og hörkuskalli hans stefndi
í netið að því er virtist en Parkes
ÚRSLIT
Urslit í ensku knattspyrnunni á
laugardag urðu þessi:
l.deild
Arsenal-Everton 2—1
A. Villa-Leicester 3—1
Liverpool-Stoke 1-0
Luton-Tottenham 2-4
Man. Utd.-Watford 4—1
Norwich-WBA 2—0
Nottm. For.-Ipswich 2-1
QPR-Birmingham 2—1
Southampton-Notts. Co. 0-2
Sunderland-West Ham 0-1
Wolves-Coventry 0-0
2. deild
Blackburn-Portsmouth 2—1
Brighton-Shrewsbury 2—2
Cambridge-Middlesbro 0—0
Carlisle-Man. City 2-0
Charlton-Barasley 3—2
Chelsea-C. Place 2—2
Derby County-Leeds 1—1
Huddersfield-Fulham 2—0
Oldham-Cardiff 2-1
Sheff. Wd.-Newcastle 4—2
Swansea-Grimsby 0—1
tókst að slá knöttinn framhjá stöng-
inni og áhorfendur í Sunderland
skilja ekki enn hvernig þetta var
hægt. En leikmenn West Ham neit-
uðu aö gefast upp og voru stórhættu-
legir í snöggum skyndisóknum sín-
um. Þegar aðeins sex mínútur voru
til leiksloka tókst þeim að skora eina
markiö og sigurmark sitt í leiknum.
Dave Swindlehurst fékk knöttinn
frá Alan Devonshire rétt utan víta-
teigs Sunderland og komst þar úr
gæslu Gordon Chichoim, miðvarðar
Sunderland, í eina skiptið í leiknum
og það dugði, hörkuskot hans frá
vítateigshorni réð Chris Turner
markvöröur heimaliösins ekki við.
West Ham hélt því frá Roker Park
með öll stigin þrjú og er enn í öðru
sæti, einu stigi á eftir Liverpool.
Þrenna hjá Frank Stapleton
gegn Watford
Þaö voru 43 þúsund áhorfendur
sem mættu á Old Trafford til þess að
fylgjast með viðureign Manchester
United og Watford. Heimaliðið
Manchester United sýndi frábæran
leik og yfirspilaði algerlega lélegt iið
Watford. Frank Stapleton skoraði
fyrsta markið fyrir heimaliðið strax
á 9. minútu með hörkuskoti af um 20
metra færi. Steve Sherwood mark-
vörður Watford átti ekki möguleika
aö verja. Stapleton bætti síðan öðru
marki við fyrir heimaliðið á 30.
mínútu og enn með hörkuskoti. Stað-
an 2—0 í hálfleik og mátti Watford
þakka fyrir að fá ekki fleiri mörk á
sig í hálfleiknum, slíkir voru yfir-
buröir heimaliðsins. I upphafi síðari
hálfleiks bætti fyrirliöi United,
Bryan Robson, öðru marki viö eftir
sendingu frá Stapleton. Manchester
United komst í 4—0 á 84. mínútu þeg-
ar Stapleton skoraði þriðja mark sitt
í leiknum og hefur þessi snjalli írski
landsliðsmaður hklega aldrei verið
betri en einmitt nú.
Watford tókst síðan að laga stöðu
sína aðeins undir lok leiksins en þá
skoraði Nigel Callaghan eftir aö hafa
fengið knöttinn frá Morris Johnston
en hann lék fyrsta leik sinn fyrir liðið
eftir að hann var keyptur frá skoska
liðinu Patrick Thistle í sl. viku. En
fyrir Manchester United lék Garth
Crooks sinn fyrsta leik sem lánsmaö-
ur frá Tottenham og stóð sig að sögn
fréttamanna mjög vel í leiknum.
Manchester United viröist vera að
hressast mjög eftir slaka leiki að
undanfömu. En Elton John hlýtur að
líða mjög illa þess dagana, því
draumalið hans, Watford, er nú kom-
ið í fallsæti, er í þriöja neðsta sæti, en
mikil meiðsl hafa hrjáð liösmenn það
sem af er leiktímabilinu.
Tvær vítaspyrnur for-
görðum á Kenilworth Road
Þaö var frábær leikur sem áhorf-
endur fengu að sjá þegar Luton og
Tottenham mættust á heimavelli
fyrrnefnda liðsins, Kenilworth Road,
og enn átti Glenn Hoddle frábæran
leik fyrir Tottenham. Þaö byrjaði
samt ekki gæfulega hjá honum því
hann misnotaöi vítaspymu fyrir liö
sitt strax á 5. mínútu íeiksins, þá
skaut hann í stöng. Það var ungur
nýliðí, Richard Cook, sem náði for-
ystunni fyrir Spurs um miðjan fyrri
hálfleikinn með fyrsta marki sínu
fyrir lið sitt og var þetta eina mark
fyrri hálfleiks. En fljótlega í upphafi
síðari hálfleiks fékk Luton dæmda
vítaspymu. Það var Brian Stein sem
tók spyrnuna en Ray Clemence
markvörður Tottenham gerði sér lít-
iö fyrir og varði spymuna frá Stein. I
stað þess að jafna metin í leiknum
var Luton komið tveim mörkum und-
ir aöeins tveimur mínútum síöar, en
þá skoraði Steve Archibald annað
mark gestanna. Brian Stein bætti
síðan fyrir fyrri mistök sín og minnk-
aði muninn fyrir heimaliðið en Archi-
bald kom Tottenham í 3—1 skömmu
síöar meö stórglæsilegu marki eftir
fyrirgjöf frá Hoddle. Enski unglinga-
landsliösmaöurinn Paul Walsh
minnkaði enn muninn fyrir Luton í
2—3. Það var Tottenham sem átti
lokaorðiö í leiknum þegar annar ný-
liðinn í liöi gestanna, Alister Dick,
skoraði fjórða markið á síðustu
mínútum leiksins. Nýliðamir hjá
Tottenham, Cook og Dick, leika báðir
meö drengjalandsliði Englendinga.
Góður árangur Lundúna-
liðanna
Þetta var svo sannarlega dagur
Lundúnaliðanna í 1. deild á Englandi
á laugardaginn. Öll liðin f jögur sigr-
uðu í leikjum sínum. Eitt þeirra,
Arsenal, fékk Everton í heimsókn á
heimavöll sinn, Highbury. Arsenal
hefur sýnt mjög lítinn stöðugleika til
þessa í leikjum sínum á heimavelli,
hafði fyrir þennan leik unnið þrjá
leiki en tapaö fjórum. Gamla kemp-
an Alan Sunderland náði forystunni
fyrir Arsenal strax á upphafsmínút-
um leiksins og Stewart Robson bætti
öðru marki við fyrir Arsenal
skömmu síöar. I lok fyrri hálfleiks-
ins tókst Everton að minnka muninn
með marki Andy King úr vítaspyrnu
eftir aö Greame Sharp var brugöiö
innan vítateigs. I síðari hálfleik voru
ekki skoruð fleiri mörk, en sigur
Arsenal í leiknum var fyliilega sann-
gjarn, liöið lék mun betur en gestirn-
ir.
Annaö Lundúnalið, Queens Park
Rangers, lék á heimavelli sínum,
Loftus Road, gegn Birmingham
City. I fyrri háifleik var ekkert mark
skorað en í upphafi síöari hálfleiks
náði Mick Harford forystunni fyrir
Birmingham með skallamarki eftir
hornspymu. Leit lengi út fyrir aö
þetta yrði eina mark leiksins en tíu
mínútum fyrir leikslok náöi Simon
Stainrod aö jafna metin fyrir QPR
með ellefta marki sínu á leiktímabil-
inu. Það var síöan fyrirliöi QPR,
Terry Fenwick, sem skoraði sigur-
markið nokkrum mínútum síðar og
tryggði heimaliðinu sanngjarnan
sigur.
Tvö mörk Forest á tveim
mínútum tryggðu sigur
gegn Ipswich
Nottingham Forest vann góðan
sigur á Ipswich Town þegar liðið
kom í heimsókn á City Ground í
Nottingham. Ekkert mark var skor-
að í fyrri hálfleiknum en í upphafi
síöari hálfleiks náöi enski landsliös-
miövörðurinn Terry Butcher foryst-
unni fyrir Ipswich með skallamarki
eftir aukaspyrnu Steve McCall. En á
72. mínútu leiksins jafnaði Gary.
Birtles metin fyrir Forest meö fyrsta
marki sínu eftir að hann kom í liðið
að nýju eftir að hafa átt við slæm
meiösl aö stríða að undanfömu. Aö-
eins einni mínútu síöar skoraði bak-
vörður Nottingham Forest, Kenny
Swain, sigurmarkiö með miklu
þrumuskoti rétt utan vítateigs.
Aston Villa vann öruggan sigur á
Leicester City á heimavelli sínum,
Villa Park. Þaö var enn að sjálf-
sögöu Peter Withe sem náði foryst-
unni fyrir heimaliöiö fljótlega í byrj-
un ieiksins og Paul Rideout bætti
ööru marki við skömmu síðar og
jafnframt fyrsta marki sínu síðan
hann gekk til liðs við Aston Villa frá
Swindon Town sl. sumar. En rétt fyr-
ir leikhlé tókst Steve Lynex að
minnka muninn fyrir Leicester með
marki úr vítaspyrnu.
Steve McMahon bætti þriöja marki
heimaliðsins viö síðari hálfleik og
gulltryggði sigurinn.
Norwich hefur sýnt miklar fram-
farir í síöustu leikjum sínum og lék
mjög vel gegn WBA á heimavelli sín-
um, Carrow Road. Ekkert mark var
skorað í fyrri hálfleik en strax í upp-
hafi þess síöari náði Greg Downes
forystunni fyrir Norwich og útherj-
inn Mark Barham bætti öðru marki
við undir lok leLksins.
Ovæntustu úrslit dagsins á laugar-
daginn voru tvímælalaust sigur
Notts County gegn Southampton á
heimavelli „Dýrlinganna” The Dell.
Það var Justin Fashanu sem skoraði
fyrra mark Notts County í fyrri hálf-
leiknum, með öðru marki sínu í jafn-
mörgum leikjum. En ekki var getiö
um í fréttum BBC hver skoraði ann-
að mark County.
Úlfarnir enn án sigurs
Wolves sannaöi það í leik sínum
gegn Coventry City á heimavelli sín-
um að liöið á ekki heima í fyrstu
deild. Liðsmenn voru mjög heppnir
aö hljóta eitt stig í leiknum, Coventry
var mun nær sigri. Besta tækifæri
Coventry í leiknum féli í hlut Dave
Bennett en þá komst hann einn inn
fyrir vörn Ulfanna eftir fallega
stungusendingu frá Terry Gibson.
En Bennet lét Paul Bradshaw mark-
vörð Ulfanna verja frá sér. Þannig
að Ulfarnir sluppu með enn eitt tapið
að þessu sinni.
Sheffield Wed. nú með sex
stiga forskot í annarri deild
Stórleikur annarrar deildar var
tvímælalaust viðureign efstu lið-
anna, Sheffield Wednesday og New-
castle, á heimavelli Wednesday,
„Hillsborough”. Leikurinn var stór-
skemmtilegur og sóknarknattspyrna
á báöa bóga. Gary Megson náði for-
ystunni fyrir Wednesday strax í upp-
hafi leiks en Terry McDermott jafn-
aði metin fyrir Newcastle fyrir leik-
hlé. I byrjun síðari hálfleiks náði
Imre Varadi fyrrum leikmaöur New-
castle forystunni fyrir heimaliðið á
nýjan leik. Tony Cunningham kom
Sheff. Wednesday síðan í 3—1, en
Cunningham þessi var nýlega keypt-
ur frá Barnsley og hefur skorað
mark í báðum leikjum sínum til
þessa meö Wednesday. K. Keegan
minnkaði muninn fyrir gestina með
marki úr vítaspyrnu eftir aö Chris
Waddle hafði veriö brugðið innan
vítateigs tíu mínútum fyrir leikslok.
Gary Bannister átti lokaoröiö fyrir
heimaliðið fimm mínútum síðar meö
laglegu marki eftir að hann og Imre
Varadi höfðu leikið í gegnum vöm
Newcastle. En vörn Newcastle hefur
staöiö sig mjög illa í síðustu leikjum,
fékk einnig fjögur mörk á sig gegn
Chelsea á laugardaginn var. Þaö
vom rúmlega 41 þúsund áhorfendur
sem sáu viðureign liðanna og er það
mesti áhorfendafjöldi á Hillsborough
síöan 1980 en þá mættu 45 þús. áhorf-
endur á innbyrðis viðureign Sheff ield
liöanna, Wednesday og U nited. SE
l.DEILD
Staðan á Englandi eftir laugardag. 1. deild leikina á
Liverpool 14 9 3 2 24—8 30
West Ham 14 9 2 3 26—11 29
Man. Utd. 14 9 2 3 27—15 29
Tottenham 14 7 4 3 24—19 25
Coventry 14 7 3 4 20—18 24
A. Villa 14 7 3 4 21-20 24
QPR 14 7 2 5 22—12 23
Nott. For. 14 7 2 5 24—19 23
Southampton 13 7 2 4 14—10 23
Luton 14 7 2 5 23—20 23
Arsenal 14 7 0 7 26—18 21
Ipswich 14 6 2 6 25-18 20
Norwich 15 5 5 5 21—20 20
WBA 14 6 2 6 18—20 20
Birmingham 14 5 3 6 14—17 18
Sunderland . 14 5 3 6 15—19 18
Everton 14 5 3 6 9—15 18
Stoke 14 2 5 7 14—25 11
Notts. Co. 14 3 2 9 13—24 11
Watford 14 2 4 8 19—28 10
Leicester 14 1 4 9 13—30 7
Wolves . 14 0 4 10 8—34 4
2. DEILD
Sheff. Wed. 15 11 4 0 29—11 37
Man. City 15 10 1 4 29—18 31
Chelsea 15 8 6 1 31—15 30
Newcastle 15 9 2 4 31-21 29
Huddersfield 15 7 6 2 22—11 27
Grimsby 15 7 4 4 22—18 25
Charlton 16 6 6 4 20-22 24
Blackbura 15 6 5 4 22—24 23
Carlisle 15 5 6 4 13—10 21
Portsmouth 15 6 2 7 24—16 20
Barnsley 15 6 2 7 25—23 20
Shrewsbury 15 5 5 5 19—21 20
Middlcsbro 15 5 4 6 20—17 19
C. Palace 15 5 4 6 18—20 19
Leeds 15 5 4 6 20-24 19
Brighton 15 5 3 7 27—29 18
Cardiff 15 5 1 9 15—18 16
Derby 15 4 3 8 15—28 15
Fulham 15 3 4 8 17—25 13
Oldham 15 3 4 8 14—26 13
Cambridge 15 2 3 10 13—32 9
Swansea 14 1 3 10 10-24 6