Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1983, Side 30
DV. MANUDAGUR 21. NOVEMBER1983.
30
TINNA
TINNA - TINNA - TINNA -
HÁRGREIÐSLUSTOFAN d
Furugerði 3. |
Opið á fimmtudögum til >
kl. 8.00. I
Athugið: Síminn er H
32935. |
Pantið tímanlega >
fyrir jól. |
TINNA - TINNA - TINNA -
Tilboð óskast
í eftirtaldar bifreiðar og létt bifhjól sem skemmst hafa í um-
ferðaróhöppum:
íslenskt efni í
norskri lesbók
Kom og les heitir lestrarbók sem ný-
lega er komin út á nýnorsku fyrir 2.
bekk grunnskólans í Noregi.
Efni bókarinnar er mjög fjölbreytt,
sögur, ljóð, þulur, málshættir, gátur og
ævintýri. Texti er settur upp sem ljóð
með skýru og greinilegu letri sem er
vel við hæfi yngstu nemendanna.
Aðalhluti efnisins er úrval úr nýjum
norskum barnabókmenntum og nokkr-
ir erlendir höfundar eiga þar einnig
efni.
Einn íslenskur barnabókahöfundur,
Ármann Kr. Einarsson, á efni í norsku
lestrarbókinni. Þar er birtur kafli úr
bókinni Afastrákur, með teikningu eft-
ir Þóru Sigurðardóttur.
Bókin er mjög fallega útgefin meö
miklum fjölda mynda, flestum í lit.
Hún er 174 bls. í allstóru broti.
Tordís Fosse hefur valið efnið í Kom
og les og skrifar formála. Gyldendal
norsk Forlag gefur bókina út í samráði
við norska menntamálaráðuneytið.
Ármann Kr. Elnarsson rithöfundur.
Toyota Carina ’82
Subaru 4X4 station ’82
Chevrolet Malibu ’78
Saab 900 Turbo ’81
Renault 12 TL ’74
Suzuki TS 50 bifhjól ’82
Bifreiðarnar og hjólin verða tU sýnis í geymslu vorri, Hamars-
höfða 2, sími 85332, mánudaginn 21. nóv. frá kl. 12.30—17. TU-
boðum sé skUað eigi síðar en þriðjudaginn 22. nóv. á skrifstofu
vora, Aðalstræti 6 ReykjavUi.
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN P
AÐALSTRÆTI 6-101 REYKJAVÍK - SlMI 26466
ELECTROLUX
ÖRBYLGJUOFN
JÓLAGJÖF
FJÖLSKYLDUNNAR!
TIL SJÁLFRAR SÍN
2000 œdiB
2000 AlWÍN
AUK VAXTAOG KOSTN.
RAFTÆKJADEILD - SÍMI86117
Leikfélag Reykjavíkur
Stefán Baldursson afhendir Davíð Oddssyni fyrsta eintakiö af hijóm-
piötunni.
Út er komin á vegum Leikfélags.
Reykjavíkur hljómplatan Við byggjum
leikhús, en á plötunni eru söngvar sem
leikarar og starfsfólk Leikfélagsins
fluttu upphaflega á söngskemmtun í
Laugardalshöliinni 17. júní sl. og síðan
í sjónvarpsþætti nýverið. Hljómplatan
verður seld til ágóða fyrir hús-
byggingarsjóð félagsins og rennur allt
fé sem inn kemur fyrir plötuna til
byggingar Borgarleikhúss.
Á hinni nýju plötu eru 11 lög eftir
ýmis tónskáld, flest þeirra finnsk.
Flest lög á plötunni á finnska leikhús-
tónskáldið Kaj Chydenius, eitt lag er
eftir Tómas Einarsson. Einnig eru
tvær leikhússyrpur með lögum úr
ýmsum leikritum sem sýnd hafa verið
hjá leikfélaginu, m.a. Þiö munið hann
Jörund, Deleríum búbónis, Saumastof-
unni, Ovitanum, Þjófar, lík og falar
konur svo að eitthvað sé nefnt. Flytj-
endur eru 19 leikarar og starfsmenn
Leikfélags Reykjavíkur en undirleik
annast Siguröur Rúnar Jónsson, Jó-
hann G. Jóhannsson, Olafur Garðars-
son, auk 18 hljóðfæraleikara úr
Sinfóníuhljómsveit Islands. Allt þetta
fólk hefur gefið vinnu sína við plöt-
una. Textarnir við nýju Iögin á plöt-
unni eru eftir Kjartan Ragnarsson,
Jón Hjartarson og Karl Ágúst Ulfs-
son.
Húsbyggingarsjóður leikfélagsins
hefur opnað póstgíróreikning númer
1 66 20-0 og getur fólk lagt þar inn
framlög og stuðlað þannig að því aö
Borgarleikhúsið nýja rísi sem fyrst, en
stefnt er að því að taka það í notkun
1986.
Patreksfjörður:
Allir á Eyrargrill
Frá Elinu Oddsdóttur, fréttaritara DV
á Patreksf irði.
Nýlega var opnaöur veitingastaður
hér á Patreksfirði. Staðurinn heitir
Eyrargrill sf. Eigendurnir eru tvenn
ung hjón, þau Bergljót Oskarsdóttir,
Sveinn Arason, Guðrún Gisladóttir og
Jón Bessi Árnason.
Húsiö er á góðum stað, í tengslum
við hafnarsvæðið. Þar er grillstofa á
götuhæð, ásamt baðaðstöðu, sem kem-
ur sér vel fyrir ferðafólk og sjómenn,
en í risi hússins er leiktækjastofa og
stofa fyrir minni samkvæmi, allt mjög
smekklegt.
Eg hitti Bergljótu og Svein á
vaktinni og spurði hvernig stæði á því
að þau hefðu farið út í þetta.
„Hugmyndin varð til í matarboði,
þar sem rætt var um hve slæmt það
væri að geta ekki fariö út á veitinga-
stað til að borða,” sagði Bergljót.
Sveinn sagði að orð væru til alls fyrst
og hér væru þau. Staöinn heföu þau
valiö meö tilliti til hafnarinnar, þar
sem langt væri fyrir sjómenn að kom-
ast í „sjoppu” til að kaupa sér smávör-
uraðkvölditil.
Það er mikill munur fyrir þá að fá
þessa þjónustu. Þama geta þeir keypt
sér dagblööin og yljaö sér við kaffi-
bolla eða annaö góðgæti úr eldhúsinu á
meöan þeir lesa þau.
-GB
i Eyrargrilli, nýja veitinga-
DV-mynd Elín Oddsdóttir.
Sveinn Arason og Bergljót Óskarsdóttir
staðnum á Patreksfirði.
Þorsteinn Geirsson skipaður ráðuneytis-
st jóri í sjávarútvegsráðuneytinu
Jón L. Arnalds, ráöuneytisstjóri
sjávarútvegsráðuneytisins, hefur
fengið leyfi frá störfum frá 1. maí nk.
til 30. júní 1985.
I stað hans hefur veriö skipaður Þor-
steinn Geirsson, skrifstofustjóri í f jár-
málaráðuneytinu.
Þorsteinn er fæddur 15. febrúar 1941
í Reykjavík. Hann varð stúdent frá MA
1964 og útskrifaðist frá Háskóla Is-
lands 1966. Þorsteinn er lögfræðingur
að mennt og hefur unniö í fjármála-
ráðuneytinu síðan 1973. Hann á sæti í
ýmsum nefndum fyrir fjármálaráðu-
neytið og er m.a. formaður samninga-
nefndar ríkisins í launamálum.
BM./starfskynning.