Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1983, Blaðsíða 2
DV. FIMMTUDAGUR1. DESEMBEFf 1983.
2
Mál unglmgaskemmtistaðarins Best:
Búist við svari
lögreglustjóra
á næstu dögum
Málefni unglingaskemmtistaöarins
Best, sem starfræktur hefur verið í fé-
lagsheimili Hestamannafélagsins Fáks
við Reykjanesbraut síöan í október,
eru enn til athugunar hjá lögreglu-.
stjóraembættinu, en eins og kunnugt er
af fréttum fór Æskulýðsráð Reykjavík-
ur fram á að rekstur staðarins yrði
rannsakaður.
DV er kunnugt um aö máliö var tek-
iö fyrir á fundi hjá lögreglustjóra í
gærmorgun og var þar lögð fram
greinargerð frá fulltrúa lögreglustjóra
varðandimálið.
Búist er viö að svar lögreglustjóra
muni berast Æskulýðsráði einhvern
næstu daga og fæst þá úr því skoriö
hvort grunsemdir Æskulýðsráös um að
staöurinn fari ekki að settum reglum
varðandi aldursmörk, opnunartíma og
meðferð áfengis, hafi við einhver rök
aðstyöjast.
Varðandi leyfi til dansleikjahalds
fyrir unglinga 16 ára og eldri hefur
komið fram að staöurinn hefur fengið
slikt leyfi fyrir hverja þá helgi sem op-
ið hefur verið. Ennfremurhefurkomiö
fram að greiðslum á skemmtanaskatti
og öðrum opinberum gjöldum hefur
ekkiveriðábótavant. -SÞS
SAMIKJÖRDAGUR
í SVEITAR-
STJÓRNAR-
KOSNINGUM
Alexander Stefánsson félagsmála-
ráöherra mælti á alþingi í gær fyrir
frumvarpi til laga um sveitarstjórn-
arkosningar.
Helstu nýmæli frá gildandi lögum.
um sveitarstjómarkosningar eru að
nú er ákveðinn einn dagur fyrir kosn-
ingar í öllum sveitarfélögum og skal
hann vera síöasti laugardagur í
apríl. Lagt er til að kosningaaldur
verði lækkaður í 18 ár og aö lögræði
falli niður sem kosningaréttarskil-
yrði. Gerð er tillaga um að ef aðeins
kemur fram einn framboöslisti skuli
framboðsfrestur framlengdur. í at-
hugasemdum við frumvarpið segir
aö reynslan sýni að það getur komið
á óvart að einungis einn framboös-
listi kemur fram. Megi vera aö sú
niðurstaða að listinn veröi sjálfkjör-
inn sé ekki í samræmi við vilja kjós-
enda í sveitarfélaginu sem leiði til ó-
eðlilegrar niðurstöðu.
Samkvæmt fmmvarpinu telst sá
sem hefur tilkynnt flutning sam-
kvæmt samningi Norðurlanda um al-
mannaskráningu ekki hafa firrt sig
kosningarétti. íslenskir námsmenn
á Noröurlöndum munu þvi halda
kosningaréttieftirsemáður. OEF
5. einvígisskák Smyslov og Ribli í Lundúnum:
Smyslov vann glæstan sigur!
— tef Idi sóknina eins og unglamb og fléttaði fallega til sigurs
Fyrrum heimsmeistari Vassily
Smyslov vann hug og hjörtu áhorf-
enda í Lundúnum í gær með tilþrifa-
miklum sigri gegn Ribli. Smyslov,
sem er 62 ára gamall, tefldi eins og
unglamb í sannkölluðum sóknarstíl
og fékk Ribli ekki rönd viö reist.
Hann gerði þau mistök að hleypa
drottningu Smyslov inn fyrir kóngs-
stööuna í þeirri von að geta króaö
hana inni, en heimsmeistarinn fyrr-
verandi losaði hana úr prisundinni
meö glæsilegum leikfléttum. Að
endingu féll drottning Ribli í valinn
og Smyslov innbyrti vinninginn meö
þeim léttleika sem honum einum er
laginn. Ribli gafst upp eftir 41 leik og
þar meö hefur Smyslov aftur náö
forystunni í einvíginu, hefur 3 vinn-
inga gegn 2 vinningum Ungverjans.
Smyslov sýndi þama og sannaöi
að hann er engu síðri en ungu strák-
arnir í flækjunum og ef fram heldur
sem horfir má Karpov fara aö vara
sig. Fallegasta skákin í áskorenda-
einvígjunum til þessa og vel þess
'virði að yfir hana sé farið.
Hvítt: Vassily Smyslov
Svart: Zoltan Ribli
Tarraseh-vöm.
1. d4 Rf6 2. Rf3 e6 3. c4 d5 4. Rc3 c5 5.
cxd5 Rxd5.
Einnig má drepa með peði, eins og
Kasparov gerði í 2. skákinni við
Kortsnoj. Ribli hefur fram að þessu
valiö drottningarindverska vörn, en
breytir nú út af.
6. e3 Rc6 7. Bd3 Be7 8. 0-0 0-0 9. a3
cxd410. exd4.
Þetta er algeng staða og getur
komiö upp eftir hin ýmsu byrjunaaf-
brigði. Hvítur á frjálsara tafl og
sóknarfæri, en hefur stakt peö á mið-
borðinu, sem gæti orðið veikt er f ram
ísækir.
10. — Bf611. Dc2!?
Nú hugsaöi Ribli sig lengi um, því
að þetta er óvenjulegur leikur.
11. —h6!?
Hér áöur fyrr var jafnan leikið
11. —g6 í slíkum stööum og reynt að
loka skálinu hvítreitabiskupsins —
og drottningarinnar. Þessi leikur er
tiltöluiega nýlega kominn fram á
sjónarsviðið. Hollenski stórmeist-
arinn Jan Timman hefur m.a. gert
tilraunir með hann i áþekkum
stöðum. En 11.—g6 er traustari!
12. Hdl Db613. Bc4Hd814. Re 2!
1 „gamla daga” leyfðu menn sér
ekki leik eins og 11. —h6, enda er
Smyslov fljótur að finna á honum
annmarka. Riddarinn er á leið yfir á
kóngsvænginn og hefur augastaö á
h5- reitnum.
14. —Bd715. De4 Rce716. Bd3 Ba4?
Svona hefði byrjandi aldrei leikiö,
því að hvíta drottningin gerist nú að-
gangshörð á kóngsvængnum. En
Ribli telur þetta hættulaust. Annars
hefði hann Ieikið 16. —Rg6 og gæti
farið með hann til f8 í neyðartil-
Smyslov hefur teklð f orustuna.
vikum þar sem hann valdar kónginn
vel.
17. Dh7+ Kf8 18. Hel Bb5 19. Bxb5
Dxb5 20. Rg3! Rg6
„Passív” taflmennska með 20. —
Rg8 21. Rh5 Rde7 gengur ekki vegna
22. Bxh6! gxh6 (22. -Dxh5? 23.
Skák
Jón L Ámason
Bxg7+ og drottningin fellur) 23.
Rxf6 Rxf6 24. Dxh6+ og síðan 25.
Dxf6 meö vinningsstöðu.
21. Re5! Rde7(?)
Hann var að reyna 21. —Bxe5 22.
dxe5 Rde7 23. Rh5 Rf5 (ekki 23. -
dxe5? 24. Bxh6!) því aö eftir 24. g4
Rfh4! 25. Dxg7 Ke8 á hann sprikl-
möguleika. Nú skellur stormurinn á.
abcdefg h
22. Bxh6!! Rxe5
Að sjálfsögðu ekki 22. —gxh6,
vegna 23. Dxf7 mát. Og 22. —Bxe5 er
svaraö sterklega með 23. Hxe5! Rxe5
24. Dh8+ Rg8 25. Dxg7+ Ke7 26.
Bg5+ Kd7 27. Bxd8 (27. dxe5 kemur
einnig til greina) með vinningsstöðu.
23. Rh5!!
Annar þrumuleikur. Eftir 23. —Rf5
24. Rxf6 Rxh6 25. dxe5 hefur hvítur
tryggt sér unnið tafl, og 23..gxh6 24.
Dxh6+ endarmeðmáti.
23. —Rf3+ 24. gxf3 Rf5 25. Rxf6 Rxh6
26. d5!
Sóknin er enn í fullum gangi og nú
er orðið fátt um varnir.
26. —Dxb2
Leiðir til fallegra endaloka.
27. Dh8+ Ke7
28. Hxe6+! fxe6 29. Dxg7+ Rf7
Eða 29. —Kd6 30. Re4+ og svarta
;drottningin fellur.
30. d6+! Hxd6 31. Rd5+ Hxd5 32.
Dxb2
Drottningin er fallin og vinn-
ingurinn er aðeins „tæknilegt at-
riöi”. Ekki spillti tímahrak Riblis.
32. —b6 33. Db4+ Kf6 34. Hel Hh8 35.
h4 Hhd8 36. He4 Rd6 37. Dc3+ e5(?)
38. Hxe5! Hxe5 39. f4 Rf7 40. fxe5+
Ke6 41. Dc4+
— Og Ribli gafst upp. Tilþrifa-
mikil skák heimsmeistarans fyrr-
verandi.
UNT0N KWESIJ0HNS0N
REGGIBAND DENNIS BOVEli
Tónleikar í Sigtúni 2. des. kl. 22:00. Miðaverð 400 kr.
Forsala í hljómplötuverslunum. Aldurstakmark 18 ár.