Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1983, Blaðsíða 44
44
DV. FIMMTUDAGUR1. DESEMBER1983/
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
DV-mynd: GVA
Hvað eigum við að
kalla þessa íþrótt?
Við auglýstum eftir nafni á nýjustu
íþróttagreinina, sem nýlega var kynnt
á alþjóðlegu hestamannamóti í Maien-
feld í Sviss. Iþróttin minnir einna helst
á sjóskíðasportið. Munurinn er sá aö
það er ekki bátur sem dregur mann á
skíðum eftir vatnsfleti heldur dregur
hestur mann á beltabretti eftir gras-
flöt.
Margrét prinsessa
með vininum
Margrét prinsessa, systir Elisabetar Breta-
drottningar, var nýlega á ferð á Italíu. Þangað
hafði hún með sér vin sinn, hinn 55 ára gamla
Norman Lonsdale.
Þau bjuggu í Toscana-héraði og skoöuöu
meðal annars Flórens. Með í för voru tvær stúlk-
ur, Emma Jane, 21 árs gömul dóttir Normans,
og Sarah, 19 ára dóttir Margrétar og Snowdons
lávarðar.
Eftir Italíuferöina fóru þau Norman og Mar-
grét saman til Karíbahafsins. Engar yfirlýsing-
ar hafa verið gefnar um hugsanlegt hjónaband.
Margrét prinsessa og Norman Lonsdalm
á Ítalíu.
HONUM ER EKKIKALT
Eggert feldskeri þarf ekki á neinum pels að halda innan um
stúlkurnar. Þær ættu heldur ekki að þurfa að berja sór tH hita í
slikum loðfeldum í frosthörkum vetrarins.
Myndin var tekin á sýningu á Hótel Sögu siðastliðið
sunnudagskvöld. Stúlkur úr Model 79 sýndu þar vetrarfatnað sem
verslun Eggerts Jóhannssonar að Laugavegi 66 hefur tH sölu.
Pelsarnir eru af mink og ref. Þeir koma frá franska fyrirtækinu
Revillon. Verðið er á bilinu frá 290 tH 600 þúsund kr. Pelsarnir
fimm kosta samanlagt 1,5 ti! 2 milljónir króna.
Ur buxunum fyrír
28 milljónir
Danska stúlkan Jeanette fær ekki að vora svona mikið klœdd i Penthouse.
Hún verður að afklœðast hverri spjör.
„Þetta var hreint ævintýri,” sagði
danska stúlkan Jeaneíte Dyrkjær, sem
sigraði í keppninni Pet of the Year. Að
launum fær hún eina milljón Banda-
ríkjadala, sem jafngildir 28 milljónum
íslenskra króna, frá tímaritinu Pent-
house.
Verölaunaféð er það mesta sem um
getur í keppni sem þessari — keppni
þar sem fagur kroppur skiptir öllu
máli. Og fleira fylgir. Hún hefur þegar
fengið fimm kvikmyndatilboð, meðal
annars um leik í James Bond-mynd.
Ekki dugar Dyrkjær-nafnið
Jeanette þegar hún nú fer að feta
fræðgarbrautina í Ameríku. Hún hefur
tekiö sér nýtt nafn og mun framvegis
koma fram sem Jeanette Starion.
„Hér fyrir vestan kann enginn að
bera fram Dyrkjær. Fyrir þá sem vill
verða stjarna er miklu betra að heita
Starion,”segirhún.
Jeanette var krýnd í borginni
Atlantic City í New Jersey í beinni út-
sendingu til 150 sjónvarpsstöðva víðs-
vegar í heiminum.Bee Gees-bróðirinn
Andy Gibb afhenti verðlaunin. Krýn-
ingarkórónan ein, sem Jeanetle eign-
ast, er úr gulli, og skreytt demöntum
og kostar 60 þúsund dollara. Alls kyns
gjafir fylgja með, svo sem bleikur
Rolls Royce-bíll.
Stúlkan þarf að leggja fram vinnu
sína í 90 daga í staðinn fyrir verðlauna-
féð. Vinnan felst í því að afklæðast
fyrir framan ljósmyndara Penthouse
karlablaösins. Hún þarf að leggjast í
eggjandi stellingar og fetta sig og
gienna sundur og saman til að gleðja
lesendur tímaritsins.
Jeanette er reyndar orðin vön slíku.
I Danmörku hefur hún birst nakin eða
hálfnakin í þremur útbreiddum blöð-
um. Hún hefur veriö sólskinsstúlka SE
og H0R, Rapport-stúlka ársins og í
Extrablaöinu hcfur hún tvívegis verið
„Mánedens Side 9-pige” eins og það
heitir.
Pet of tho Year krýnd l Atlantic dty, næstmestu spilavítaborg Banda
rikjanna. Jeanatte áttl tvftugsafmœli sama dag.