Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1983, Qupperneq 3
3
Stálfélagið skiptir
um st jórnarformann
DV. FIMMTUDAGUR1. DESEMBER1983.
Hlutí stjórnarmanna Stálfólagsins hf. Frá vinstri, Jón Magnússon meöstjórnandi, Sigtryggur Haiigrims-
son framkvæmdastjóri, Jóhann Jakobsson fyrrverandi stjórnarformaður, Markús Sveinsson varafor-
maður stjórnar, og Friðrik Daníelsson verkfræðingur sem er ráðgjafi fólagsins.
— Jóhanni Jakobssyni vikið frá vegna trúnaðarbrots
Stjórn Stálfélagsins hf. hefur vikiö
Jóhanni Jakobssyni efnaverkfræð-
ingi úr sæti stjórnarformanns félags-
ins og í staö hans kjöriö Leif Hannes-
son, framkvæmdastjóra Miðfells. Jó-
hann mun þó áfram sitja í stjórninni.
Á síöasta aöalfundi Stálfélagsins
var ákveðiö aö framlengja umboö
núverandi stjórnar fram á haust
meðan beðið væri eftir svörum um'
hlutafjárframlög frá sveitarfélögum
og fyrirtækjum. A stjórnarfundi 22.
nóvember var ákveðið aö halda hlut-
hafafund þann 17. desember næst-
komandi. Stjórnarformaöurinn,
Jóhann Jakobsson, neitaði aö mæta á
þann fund eöa boöa hann. Ákvað
hann sjálfur aö kalla saman hlut-'
hafafund 1. desember með skemmri
fyrirvara en áskilinn er í lögum
félagsins og neitaði aö kalla saman
annan stjórnarfund um máliö.
Stjórnarfundur var þó haldinn aö
frumkvæði annarra stjórnarmanna
og 17. desember talinn löglegur
dagur til hluthafafundar.
Jóhann Jakobsson kærði málið þá
til viðskiptaráðuneytisins en þaö
vísaöi málinu frá með bréfi 29.
nóvember. Sama dag var haldinn
stjórnarfundur og samþykkti Jóhann
Jakobsson þá 17. desember sem
fundardag. En stjóm félagsins taldi
að meö því aö vísa málinu til
viðskiptaráðuneytisins án samráös
við stjórnina og meö tilhæfulausum
blaöaskrifum um óeiningu, heföi
Jóhann brotiö trúnaö gagnvart
stjóm félagsins og var í framhaldi af
því ákveðið aö velja nýjan stjómar-
formann.
Aö sögn Sigtryggs Hallgríms-
sonar, framkvæmdastjóra
Stálfélagsins, er þaö meöal annars
rangt sem komið hefur fram aö
hlutafjársöfnun gangi illa. Sagði
hann aö nú væru 810 hluthafar í
félaginu og næmi hlutafjáreign
rúmum 5 milljónum króna. Væri
Stálfélagiö því þriöja stærsta hluta-
félag í landinu á eftir Eimskipafélag-
inu og Flugleiðum, ef bankarnir
væru undanskildir.
OEF
Reisa Þingey-
ingar moldar-
verksmiðju?
— hugmyndir um slíkt komu fram á
atvinnumálaráðstef nu á Húsavík
Á atvinnumálaráöstefnunni, sem
haldin var nýlega á Húsavík, komu
fram hugmyndir um framleiðslu á
gróðurmold í formi þurrkaöra og
pressaöra köggla. Helsti talsmaður
þessa var Birgir Steingrímsson en
hann selur blóm á Húsavík meðal
annars.
Birgir sagöi í samtali viö DV aö hann
heföi áöur selt innflutta mold til aö
koma af staö græðlingum og mold sem
var pressuö og þurrkuð fyrir potta-
blóm. Sú mold haföi veriö flutt inn í
stórum stíl frá Svíþjóð þar sem hún
var unnin en moldin var reyndar frá
Finnlandi. Síöan hættu sænsku
kögglarnir að fást, trúlega vegna þess
aö orkan sem þurfti til aö framleiða þá
var of dýr, sagöi Birgir. Síöan hefur
moldin fengist í lausu formi í plastpok-
um, miklu þyngri og fyrirferðarmeiri
en sú þurrkaöa.
„Mér datt í hug aö við gætum pakkaö
mold í þægilegar umbúðir til útflutn-
ings úr því aö Svíar geta það ekki,”
sagöi Birgir. „Þaö mætti þá jafnvel
flytja hana á aöra markaði en hér í
Evrópu, til dæmis Ameríku. —
Mývatnssveit er nú sennilega ákjósan-
legasti staöurinn til aö reisa moldar-
verksmiðju. Þeir hafa þar gufu og líka
mjög kalkrika leöju úr vatninu sem ég
hef reynslu af í sambandi viö innlenda
mold. Maöur í Mývatnssveit sem bjó til
mold notaöi í hana leöju úr Mývatni.
Þetta var sérstaklega gróöurrík mold
fyrir grænar plöntur.”
„Æskilegt er,” sagöi Birgir, ,,að til
sé helst þrenns konar mold, kalkrík
mold, súr og svo sendin mold eöa
kaktusamold. Hráefni er nóg til í
Þingeyjarsýslum og bætiefni sem lík-
lega þyrfti, til dæmis fiskimjöl. ,,Eg tel
aö engin spuming væri um arösemi og
markaöi moldarverksmiðju. Þegar
búiö er að pressa þetta, þurrka og setja
í fallegar umbúöir þá er bara spuming
um auglýsingar,” sagði Birgir
Steingrímsson.
JBH/Akureyri.
Ekki opið hús
áRás2
I forsíöufrétt DV í gær um fyrstu út-
sendingar Rásar 2 sem hófust í morg-
un mátti skilja textann sem svo aö opið
hús yrði í nýja útvarpshúsinu viö
Hvassaleiti þar sem þau Ema Indriða-
dóttir og Olafur Þórðarson tækju á
móti gestum. „Opið hús” er aftur á
móti heiti útvarpsþáttar og gæsalappir
og stóra O-ið höfðu verið felld niður í
meöförum prófarkalesara. Þaö er því
ekki opið hús í nýja útvarpshúsinu í
dag. Viöendurtökum: Ekkiopiðhús!
hann upp í
AGU
FIATHUSINU
Þú kemurogsemur
í FIAT-salnum
er miðstöð bflaviðskiptanna
FIAT-salurinn. FIAT-húsinu
munið,
Notíð
símann
Sífelld bílasala _
Sími 77200
Sífelld þjónusta
Sími 77202
jORINi
hringja,
svokemurþað
Opið frá kl. 9-19
Laugardaga frá kl. 10—17
EGILL VILHJÁLMSSON
SMIÐJUVEGI4C - KÓPAVOGI