Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1983, Side 11
DV. FIMMTUDAGUR1. DESEMBER1983.
11
„Nola strætó
of lítið”
— segir Sveinn Björnsson, hinn nýi forst jóri SVR
„Eg nota strætisvagna allt of lítið.
Það er m.a. vegna þess að það er
stefna að hafa ekki meira en 400
metra frá heimili aö biðstöð, en við
sem búum neðst í Fossvoginum
erum illa settir þar sem daglengdin
er að meðaltali 800 metrar. I daglegu
starfi mínu þarf ég líka að hafa
farartæki við höndina en ég hef þó
hugsað mér að nota strætisvagnana
meira.”
Sá sem svo mælir er Sveinn
Björnsson verkfræðingur og ný-
ráðinn forstjóri Strætisvagna
Reykjavíkur.
Sveinn er öllum hnútum kunnugur
hjá fyrirtækinu þar sem hann hefur
veriö í stjóm þess frá 1974. Hann var
formaður stjórnarinnar 1974—78 og
síðan aftur 1982. Hann var spuröur
hvernig það legöist í hann aö taka við
forstjórastarfinu.
„Það leggst alveg ágætlega í mig.
Þetta er feikilega erilsamt og marg-
þætt starf og það er ýmislegt á
döfinni,” sagðihann.
Þar nefndi Sveinn m.a. fyrirhug-
aða breytingu á leiðakerfinu, sem
mun hafa í för meö sér mjög bætta
þjónustu, sérstaklega við Arbæjar-,
og Breiðholtshverfin. Breyting þessi
hefur veriö lengi á döfinni og vonir
standa til að hægt veröi aö koma
henni í framkvæmd á næsta sumri.
„Við ætlum líka fljótlega að gera
tilraun með liðvagn, eða harmón-
íkuvagn. Þeir eru 16 metra langir og
taka miklu fleiri farþega en venju-
legir vagnar og eiga aö koma hag-
kvæmt út á lengri leiðum,” sagði
Sveinn ennfremur.
Sveinn nam iðnaöarverkfræði
vestur í Bandaríkjunum og lauk
námi árið 1951. Síðast starfaði hann
sem forstjóri Iðntæknistofnunar Is-
lands en lét af því embætti þann 1.
f ebrúar síðastliðinn.
,,Síöan hef ég unnið við eitt og
annað en ekki veriö í neinu föstu
starfi,” sagði hann.
Sveinn er m.a. áhugamaður um
skák og sundmaður mikill, auk þess
sem hann segist vera með veiðidellu.
Þar er það bæöi lax og silungur en
hann vill þó ekki viðurkennaað hann
sé forfaUinn veiðimaður.
„Því fer fjarri og satt að segja er
þetta orðið of dýrt til að vera að-
„Starf forstjóra SVR er feikilega erilsamt og margþætt og það leggst
velímig, "segir Sveinn Björnsson, nýráðinn forstjóriSVR.
gengilegt sport,” sagði Sveinn Sveinn er kvæntur Helgu Gröndal
Björnsson. og þau eiga fimm böm. -GB.
Gáfu aðgerðarsmá
sjá til eyrnaað-
gerða á börnum
Vinahjálp færöi nýlega bamadeild
St. Jósefsspítala Landakoti að gjöf að-
geröarsmásjá tU notkunar við eyma-
aögerðir á börnum.
Var tækið afhent viö hátíölega athöfn
fyrir nokkru. Sævar Halldórsson yfir-
læknir lýsti tækinu og notkun þess.
Eymasmásjáin kemur að miklum
notum á barnadeUd og tryggir betri
greiningu og meðferð á börnum meö
eyrnasjúkdóma, en eyrnabólgur em
einn algengasti sjúkdómur sem herjar
á bömin, sérstaklega á unga aldri.
Einnig er eymasmásjáin nauðsynleg
við flestar þær aögerðir sem geröar
eru á eyrum bama eöa fuUorðinna í
dag.
Kaupverð smásjárinnar og fylgi-
hluta mun vera um 150.000 kr.
Fundur um málefni
fatlaðraíKópavogi
Meðfylgjandi mynd af gefendum og forsvarsmönnum spítaians var tekin við afhendingu gjafarinnar. A
myndinni eru: Sitjandi frá vinstri: Áslaug Boucher, Unnur Pétursdóttir, Doris Briem. Standandi frá vinstri:
Logi Guðbrandsson framkvœmdastjóri, frú Dalström, Ágústa Ward, Ulla Isakson, Guðrún Holt, Cathrine
Ipr . 'ljjmf Mmm / » * |
jP tf' ' ' m Æm / /
/ J
Félagsmálastofnun Kópavogs og
Svæðisstjórn Reykjaneskjördæmis
gangast fyrir almennum fundi um
málefni fatlaöra þann 8. desember
næstkomandi.
Fundur þessi verður haldinn í
Menntaskólanum í Kópavogi v. Digra-
nesveg og hefst hann kl. 8.30 e.h.
Á þessum fundi verða meðal annars
kynnt lögin um málefni fatlaðra sem
taka gildi 1. janúar 1984. Kynntur
veröur einnig Framkvæmdasjóður
fatlaðra, sambýli fyrir þroskahefta og
starfsemi Svæðisstjórnar. Einnig
verður á fundinum skýrt frá undir-
búningi að stofnun sambýlis fyrir
þroskahefta í Kópavogi.
Fundur þessi er öllum opinn og eru
Kópavogsbúar hvattir til að koma á
fundinn og fylgjast með því hvernig
staðiö er að málefnum fatlaöra frá
hendi ríkisvaldsins og I Kópavogi.
Ætlunin er að upp úr þessum fundi
geti sprottið samtök sem gstu unnið að
DELMA
QUARTZ - ÚR
FRAMTÍÐARINNAR.
þessum málum sérstaklega í Kópa-
vogi.
Thomas, Guðrun nnagnusson, Magnea Waage, Effa Georgsdóttir, Guðrún Marteinsson hjúkrunarfor-
stjóri, Svava Storr, Sigrún Þóroddsdóttir aðstoðardeildarstjóri og Sævar Halldórsson, yfiriæknir barna-
deildar.
Vönduð teppi í úrvali
l'O
Lengi má
prýöa
fallegt heimili
Kaupum milliliöa-
laust af ýmsum
stærstu teppa-
framleiöendum
Evrópu.
KOMID
OG SKOÐIÐ
SIÐUMULA 31 - REYKJAVÍK - SIMI 84850
SJÓN ER
SÖGU RÍKARI