Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1983, Page 25
DV. FIMMTUDAGUR1. DESEMBER1983.
25
xóttir
íþróttir
íþróttir
fþróttir
íþróttir
Ásgeir Slgnrvinsson hefur heldur betur verið í sviðsljósinu að
undanförau í V-Þýskalandi, þar sem hann hefur átt stórleiki og
skorað glæsileg mörk. Ásgeir var valinn í lið vikunnar hjá Kicker,
eftir leikinn gegn Frankfurt sl. laugardag. Á dögunum var hann
rekinn af leikvelli í UEFA-keppninni og hér til hliðar sést mynd af
honum á forsíðu Kickers, eftir að Stuttgart var slegið út úr UEFA-
keppninni.
stefnum að
v
h
I
ison, sem hefur átt hvern stórleikinn á fætur öðrum
taratitli”
— Það sem háir okkur mest er að við
erum ekki með afgerandi markaskor-
ara í fremstu víglínu. Dan Cornelíus-
son hefur ekki getað leikið með okkur
að undanförnu vegna meiösla — hann
var búinn að skora sex mörk þegar
hann meiddist. Annars er þaö styrkur
okkar hve leikmenn liðsins eru jafn-
góðir og á varamannabekknum eru
einnig góðir leikmenn, þannig aö hart
er barist um hverja stöðu, sagði Ásgeir
Sigurvinsson í stuttu spjalli við DV í
gærkvöldi.
Alltaf er gaman þegar vel gengur.
Andinn er mjög góður í herbúöum
Stuttgart og leikmenn bakka hver
annan upp, sagði Ásgeir.
— Við eigum nú eftir að leika tvo
erfiða leiki áður en við förum í jólafrí
— gegn Werder Bremen í Stuttgart og
Hamburger SV í Hamborg. Það er
mjög þýðingarmikið fyrir okkur að
standa okkur vel í þeim tveimur leikj-
um og viö stefnum að því að fá að
minnsta kosti þrjú stig út úr þeim.
Ásgeir sagði einnig að Cornelíusson
myndi leika með gegn Bremen.
Þær dönsku unnu
USA-stúlkurnar
Bandaríska kvennalandsli&iö í handknatt-
leik, sem lék hér á dögunum, lék tvo lands-
leiki í Danmörku um helgina. Dönsku stúlk-
urnar sigruöu i báöum leikjunum. 1 Kerte-
minde 28—21 eftir 11—11 í háifleik og síðan á
Fjóni 25—16. Danír voru ánægöir með sigrana
því fyrir aðeins þremur mánuðum sigraöi
USA-liöiö það danska á móti í Svíþjóö. -hsím.
Þreyta í hné
— Það hefur nokkuð háð mér aö
undanförnu að ég finn til í hné og telja
læknar að það sé þreyta. Eg finn ekki
til í leikjum en daginn eftir leiki fæ ég
þrautir í hnéð og þær standa yfirleitt
yfir í tvo daga þannig að ég er orðinn
góöur á þriðjudögum. Ég vona að þetta
hverfi þegar ég fer í jólafriiö og get
tekiö mér hvíld frá æfingum, sagði Ás-
geir. -SOS
England
ekkiíHM
— heldur blandað lið
Bretlandseyja?
Þaö getur svo farið aö baun vcrði sett á aö
England, Skotiand, VValcs og N-írland fái að
senda landsliö sin í næstu undankcppni HM.
Margar þjóöir telja aö aðeins eitt lið eigi að
koma frá Bretiandscyjum en ekki fjögur.
Þaö eru sérstaklega þjóðir þriðja heimsins
sem eru á því — telja að blandað lið
leikmanna frá Engiandi, Skotiandi, Wales og
N-íriandi eigi að taka þátt i keppnmni.
Bert Millichip, formaður F.A., tilkynnti
þetta á blaðamannafundi i I-ondon í gær og
sagði að þetta hefði komið til tals í siðustu HM
cn Engiand, Skotland og N-trland áttu þá lið i
HM.
— 129 þjóðir taka nú þátt í HM og er vitað að
| 60% þcirra vilja að Bretlandseyjar sendi eitt
lið. Það þarf 75% atkvæða til að endi verði
bundinn á þátttöku Englands, Skotlands,
t Wales og N-Írlands, sagði Millichip.
-sos.
Rúmenar fara
til Frakklands
— eftir jafntefli 1-1 gegn Tékkum í Brastislava
ígærkvöldi
Ian Geolgau tryggði Rúmenum far-
seðilinn i úrslitakeppni Evrópukeppni
landsliða þegar hann skoraði mark
Rúmena i jafnteflisleik þeirra gegn
Tékkum í Bratislava í gærkvöldi. 46
þús. áhorfendur sáu hann skora á 63.
mín. en síðan náði Luhovy að jafna
fyrir Tékka á 85. mín.
Rúmenar urðu efstir í fimmta riðli
EM með 12 stig, Svíar komu næstir
með 11 stig og þá Tékkar meö 10 stig.
Þær þjóðir sem hafa nú tryggt sér að
fá að keppa í Frakklandi eru að sjálf-
sögöu Frakkar — gestgjafarnir,
Belgíumenn, Portúgalar, V-
Þjóðverjar, Danir og Rúmenar.
Hollendingar standa betur aö vígi
heldur en Spánverjar, en þeir eiga eftir
að leika gegn Möltubúum. Markatala
Hollendinga er mun betri.
Walesbúar þurfa að leggja Júgó-
slava aö velli í Wales til að tryggja sér
farseðilinn til Frakklands. -SOS.
Heimsmet
Sovéska skautakonan Tatjana Tara-
sova setti nýtt heimsmet í 500 m
skautahlaupi á móti í Vestur-Berlín
um helgina. Hljóp á 40,79 sek en eldra
heimsmetið var 41,03 sek.
Góður sigur
Leicester
Leicester vann góðan sigur 2—1 yfir
Southampton i ensku 1. deildarkeppn-
inni í gærkvöldi á Filbert Street. Það
voru þeir Alan Smith og Gary Lineker
sem skoruðu fyrir Leicester en Frank
Worthington tókst að minnka muninn
fyrir Southampton. -SOS.
Hætta við Evrópu-
mót unglinga-
landsliða í golfi
Golfsamband Evrópu hefur ákveðið
að leggja niður Evrópumót unglinga-
landsliða (22 ára og yngri) frá og með
árinu 1985. Var þetta ákveðið á fundi
sambandsins nú fyrir nokkru með 16
atkvæðum gegn 4 og var ísland meðal
þeirra sem voru á móti.
Evrópumót þetta hefur verið haldið
annað hvert ár undanfarin 25 ár — þar
á meðal einu sinni hér á landi — og ís-
land hefur tekið þátt í því síðan 1970.
Síðasta Evrópumót unglingalands-
liða verður í Dublin á irlaudi næsta
sumar og hefur island þegar tilkynnt
þátttöku í það. Í stað 22 ára keppninnar
mun Evrópusambandið ætla að leggja
meiri áherslu á keppni landsliða 18 ára
og yngri og cinnig keppni landsliða
fyrir pilta og stúlkur yngri en það. -klp.
Karl fékk
góða dóma
Frá Árna Snævarr — fréttamanni DV í
Frakklandi:
— Karl Þórðarson, sem átti snilldar-
leik með Laval gegn Monaco um sl.
helgi, skoraði gott mark í sigurleik
Laval. Hann fær mjög góða dóma hér í
blöðum fyrir leik sinn. France Football
gefur Karli f jóra í einkunn, sem er frá-
bært — hæst er gefið fimm. Karl er
greinilega búinn að ná sér eftir meiðsl-
in. Hann hefur átt hvera stórleikinn á
fætur öðrum. -AS/-SOS
Björgvin Þorsteinsson.
Björgvin
hættir að
keppa fyrir
Akureyri
Einn besti golfleikari laudsins,
Björgvin Þorsteinsson, hefur ákveðið
að skipta um golfklúbb næsta sumar og
keppa fyrir Golfklúbb Reykjavikur.
Björgvin hefur keppt fyrir Golfklúbb
Ákureyrar undanfarin ár en hann er
heiðursfélagi GA. Er hann yngsti
kylfingur sem hlotið hefur þann heiður
hér á landi að vera útnefndur heiðursfé-
lagi í golfklúbb. Þá útnefningu fékk
hann eftir að hann varð íslandsmeist-
ari í fimmta sinn í röð árið 1977.
Björgvin hefur ekki búið á Akureyri
síðustu árin, en hann er starfandi lög-
fræðingur í Reykjavík. Hann hefur
samt alltaf keppt fyrir Akureyri þó
hann hafi dvalið í Reykjavík eöa á
Höfn í Hornafirði.
Björgvin á örugglega eftir að styrkja
golflið GR mjög. Hefur hann 6 sinnum
orðið Islandsmeistari og enginn maður
hefur keppt eins oft með íslenska
landsliðinu í golfi og hann.
IanRush.
lan Rush hefur
skorað
sextán mörk
Ian Rush hefur skorað flest mörk 1.
dcildarleikmanna í Englandi — hann hefur
samtals skorað 16 mörk í 1. deildar-
keppninni, Milk Cup og Evrópukeppninni.
Steve Archibald hjá Tottenham er
næstur á blaði með 14 mörk og Frank
Stapleton hjá Manchester United og Peter
Withe hjá Aston Villa hafa skorað 13 mörk.
Hér er listinn yfir þá leikmenn sem hafa
skorað flest mörk — fyrst samtals mörk,
síðan mörk í 1. deild, Milk Cup og þá Evrópumörk:
lan Kush, Liverpool 16 12 1 3
Archibald, Tottenham 14 10 1 3
Stapleton, Man.Utd. 13 9 1 3
Withe, Aston Villa 13 8 1 4
Stabirod, QPR 12 9 3 0
Swindlehurst, Wcst Ham 12 11 1 0 ,
Woodcoek, Arsenal 12 11 1 0
Christie, Notts C. 11 7 4 0
Falco, Tottenham 11 6 1 4
Mariner, Ipswieh 11 9 2 0
Wark, Ipswieh 11 5 6 0
Dalgiish, Uverpool 9 4 2 3
Robinson, Liverpooi 9 5 2 2 -SOS
Enn skorar
MatsJingblad
Sænski markaskorarinn Mats Jingblad
skoraði sitt sjöunda mark í þrcmur lands-
leikjum þegar hann tryggði Svíum sigur
1—0 yfir Guadalajara. 30 þús. áhorfendur
sáu þennan nýja markaskorara Svia skora
sigurmarkið á 72. mín. cn þá hafði hann
iðeins verið inni á í 14 minútur. Eins og við
iiöfum sagt frá kom hann inn á scm vara-
maður í landsleik Svía gegn Trinidad og
skoraði þrjú mörk þegar Svíar unnu 4—0.
Hann skoraði einnig þrjú mörk gegn
Barbados en þann leik unnu Sviar 5—0.
-SOS
V-Þjóðverjar
á móti lengra
vetrarfrfi
Á sama tíma og islenskir knattspyrnu-
menn eru að hugsa um þriggja vikna
sumarfrí hafa knattspyraufélög í V-
Þýskalandi fellt tiliögu um það að lengja
vctrarfrí knattspyrnumanna úr þremur
vikum í átta vikur. Það kom fram tillaga
um það á dögunum að fri yrði gefið í knatt-
spyrnunni í V-Þýskalandi yfir háveturinn
—'frá 15. desembcr til 15. febrúar.
Þrettán félög voru á móti tillögunni en
fimm félög í Bundesligunni voru með —
það voru stóru félögin Bayern Munchen,
Hamburger SV, Stuttgart, 1. FC Köln og
Frankfurt.
Einnig var felld tillaga þess efnis aö
fækka félögunum úr 18 í 16 í Bundeslig-
unni.
Það má geta þess að UEFA var tilbúið
að breyta leikdögum í Evrópukeppninni í
knattspyrnu til að félögin í V-Þýskalandi
gætufariöílengravetrarfrí. -SOS.
Barcelona vann
Spánarmelstaraniir í AthletieoBiibao unnu
sigur 1—0 yfir bikarmeisturum Barcelona 1
seinni leik liðanna i „Super Cup” á Spáni í
gærkvöidi. 50 þús. áhoríendur sáu Guarrot-
xcna skora sigurmarkið eitir 60 sck. Barce-
lona vann fvrri leikinn 3—1 og því samanlagt
3-2. ' -SOS.
þróttir
íþrótti
Iþrótti
Iþróttir
(þróttir