Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1983, Side 40
40
DV. FIMMTUDAGUR1. DESEMBER1983.
Frans Ágúst Arason lést 23. nóvember
sl. Hann fæddist í Reykjavík 13. ágúst
1897, sonur hjónanna Ara B. Antons-
sonar og Magneu Bergmann. Frans
starfaöi lengst af sem háseti á bv.
Skallagrími RE. Eftir að Frans hætti
sjómennsku stundaði hann ýmist vinnu
í landi eöa til sjós. Frans var tvíkvænt-
ur, fyrri kona hans var Þórunn
Sigríður Stefánsdóttir en hún lést árið
1928. Þeim varö fjögurra barna auöiö.
Seinni kona Frans var Sveinbjörg
Guömundsdóttir. Utför hans verður
gerö frá Dómkirkjunni í dag kl. 15.
Jarðsett veröur í Gufuneskirkjugarði.
Gunnar Gunnarsson er látinn. Hann
fæddist á Akranesi 11. ágúst 1935. For-
eldrar hans voru hjónin Laufey Gunn-
laugsdóttir og Gunnar Sigurðsson.
Gunnar lagði snemma stund á
verslunarstörf. Hann rak um skeið
fiskbúö og fiskverkun á Akranesi
ásamt bróður sínum. Eftirlifandi kona
Gunnars er Svava Björnsdóttir. Þau
eignuðust þrjú börn. Utför Gunnars
veröur gerö frá Fossvogskirkju í dag
kl. 15.
Kristín Bjarnadóttir (áður Frakkastíg
12), sem lést á Elliheimilinu Grund 23.
nóvember, verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju föstudaginn 2. desember kl.
13.30.
Guðmundur Geir Jónsson skipstjóri,
, Nesbala 80, veröur jarðsunginn frá
Neskirkju föstudaginn 2. desember kl.
13.30.
Elínborg Elísdóttir lést að morgni
þriðjudagsins 29. nóvember í Hrafnistu
í Hafnarfirði.
Birgitta Sigríður Jónsdóttir frá
Blönduholti í Kjós, til heimilis að
Snorrabraut 42, lést 30. nóvember í
Landspítalanum.
Jón Gunnar Jónsson andaðist í sjúkra-
húsinu i Malmö í Svíþjóö 21. nóvember
1983.
Eliseus Sölvason frá Bíldudal andaöist
á heimili sínu Njálsgötu 34 þann 29.
nóvember.
Stefán Sigurðsson bifreiðasmiöur,
Sæviðarsundi 35 Reykjavík, lést á
heimili sínu 30. nóvember.
Friðborg Guðjónsdóttir, Stangarholti
22 Reykjavík, veröur jarðsungin frá
Háteigskirkju 2. desember. Athöfnin
hefstkl. 10.30.
Guðbjörg Guðjónsdóttir, Reynimel 46,
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðar-
kapellu föstudaginn 2. desember kl.
13.30.
Happdrætti
Blindravinafélag íslands,
Ingólfsstræti 16
Dregið hefur verið í merkjasöluhappdrætti
okkar. Vinningsnúmer eru þessi: 3850,8508,
13784, 13868,14090,24696 og 25352.
Fundir
Aðalfundur FÍRR
Frjálsíþróttaráðs Reykjavíkur veröur
haldinn að Hótel Esju mánudaginn 5. des-
ember 1983 kl. 21. Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Aðalfundur
Golfklúbbs Néss — Nesklúbbsins verður
haldinn sunnudaginn 4. des. 1983 aö Hótel
Sögu, Atthagasal, og hefst kl. 16.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Verðlaunaafhending.
Matarhlé.
Púttmót.
Það fyrirkomulag sem verið hefur 2 sl. ár
hefur gefist mjög vel og eru margir félagar
þegar farnir að æfa púttin sín, og státa af
hversu beinþauséu.
Púttmót maka verður á meðan fundur
stendur yfir, síðan verðlaunaafhending fyrir
innanfélagsmótin í sumar. Þessu golfári
ljúkum við með allsherjarpúttmóti fyrir alla.
Því er þaö áríðandi að félagar og makar
þeirra hafi með sér pútter og bolta.
Kvennadeild Barð-
strendingafélagsins
verður með fund í Safnaðarheimili
Bústaðakirkju þriðjudaginn 6. desember
klukkan 20.30. Jólakortin skrifuð.
Stjórnin.
Kvenfélag
Lágafellssóknar
Jólafundur kvenfélags Lágafellsóknar
(matarfundur) verður haldinn í Hlégarði
mánudaginn 5. desember kl. 19.30. Spilað
verður bingó. Félagskonur tilkynni þátttöku
sem fyrst til Margrétar í síma 66486 eða Hjör-
dísarísíma 66602.
Fundur til undirbúnings
stofnunar samtaka kennara og annars áhuga-
fólks um sögukennslu verður haldinn laugar-
daginn 3. desember í stofu 301 í Árnagarði og
hefst kl. 14. Boöað er til fundarins í framhaldi
af ráðstefnu um sögukennslu á ölium skóla-
stigum, sem haldin var 29. október. Allir, sem
áhuga hafa á málefninu, eru hvattir til að
sækja fundinn.
Undirbúningsnefnd.
Laugarneskirkja
Síðdegisstund með dagskrá og kaffiveitingum
verðurá morgun, föstudag, kl. 14.30.
Kvenfélag
Langholtssóknar
boðar til jólafundar þriðjudaginn 6. desember
kl. 20.30 í Safnaðarheimilinu. Venjuleg
fundarstörf. Dagskrá helguð nálægð jóla.
Heitt súkkulaöi og smákökur. Takið með
b'tinn jólapakka.
Stjórnin.
Kvenfélag
Háteigssóknar
heldur jólafund þriðjudaginn 6. desember kl.
20.30 í Sjómannaskólanum. Gestur fundarins
verður frú Sigríður Thorlacius. Söngur og
fleira.
Tilkynningar
Happdrætti Vals
Dregið var 18. nóvember sl. í ferðahappdrætti
körfuknattleiksdeildar. Vmningar komu á
eftirfarandi númer: 491 — 521 — 576 — 695 —
1135-1326 — 1801-1996.
Nánari upplýsingar eru í síma: 11134 og 74543.
Sími AA-samtakanna
Eigir þú við áfengisvandamál að stríða þá er
sími samtakanna 16373 milli kl. 17 og 20 dag-
lega.
Félag harmóníkuunnenda
verður meö skemmtun í Hreyfilshúsinu
Iföstudaginn 2. desember. Söngkona verður
íHjördís Geirsdóttir. Þá verður skemmtifund-
!ur sunnudaginn 4. desember í Fáksheimilinu.
Þar kemur meöal margra annarra skemmti-
ikrafta fram 20 manna hljómsveit FHU.
Hjálpræðisherinn
1. desember hátíð verður í kvöld kl. 20.30 í um-
sjá heimilissambandsins. Sr. Auður Eir talar,
Ingibjörg Jónsdóttir stjómar. Góðar
veitingar, happdrætti. Allir velkomnir.
Opið hús hjá Geðhjálp
Geðhjálp. Félagsmiðstöð Geðhjálpar, Báru-
götu 11. Rvík. Opið hús laugardaga og sunnu-
daga kl. 14—18. Þetta „opna hús” er ekki ein-
skorðað við félagsmenn Geðhjálpar heldur og
aðra er sinna vilja málefnum félagsins. Sími
25990.
Frá Katta-
vinafélaginu
Húsbyggjendur og aðrir þeir sem eiga sökkla-
timbur og vilja leggja Kattavinafélagmu lið.
Vinsamlega hringið í síma 14594. Siamslæða
er i óskilum hjá Kattavinafélaginu.
í gærkvöldi I gærkvöldi
Geimverur og gabb
Sjónvarpiö hefur síöustu vikur lát-
iö okkur sjá óspart heimsendisþætti
um vígbúnaöarkapphlaupið. Svo var
það í nokkra helgardaga og þar eftir
meö geðveikt fólk og vangefiö á heil-
anum. Sumir þessir þættir hafa veriö
góðir, svo sem myndin um geöklofa.
stúlkuna, þótt lygileg væri, aðrir
vondir og bara til hrellingar. Aldrei
veit maöur hvaö yfir dynur af
þessum „dellum” sjónvarpsins,
þegar maður kveikir. Margir menn
hafa trúaö á heimsendi frá upphafi
mannkyns, ragnarök. Margir eru
geöbilaöir eöa vangefnir. En of mikið
má af öllu gera og ættu forráöamenn
sjónvarps ekki aö demba of miklu af
slíku yfir heimilin í landinu, að
minnsta kosti ekki á nokkrum
dögum. Því var mér gleðiefni þegar
sjónvarpiö kom í gærkvöldi bara
meö hina gamalkunnu geöbilun um
fljúgandi diska og ofskynjanir, plús
gabb.
Sagt var aö Carter fyrrum Banda-
ríkjaforseti heföi haldið sig sjá fljúg-
andi diska. Aörir sjá rauöa fíla og
grænar rottur. Ekki er huggulegt aö
vita af forsetum viö kjarnorku-
hnappinn, sem sjá mikiö af því líku.
Á bamsárum sá ég í íslensku tíma-
riti mynd sem átti aö vera af geim-
veru, tekna í Bandaríkjunum,
minnir mig. Ekkert sá ég af því í
sjónvarpi í gærkvöld, þótt nokkúr ár
séu liöin, svo aö heldur fer frétta-
mönnum aftur. Þátturinn í gær haföi
þaö markmiö aö reyna aö útskýra
alla diskana á „jaröbundinn” hátt.
Þó skein í gegn að þetta voru trúar-
brögö öllum viðmælendum, and-
stæöingar kenninga um fljúgandi
diska höföu þau trúarbrögö aö allt
mæti „skýra” meö vígahnöttum,
gabbi og svo framvegis. Ekki er
hætta á aö trúarbrögðin um geim-
verur veröi af mönnum tekin næstu
aldir og sumir trúaöir munu setjast
við atómhnappana.
Fyrirtækin í landinu ætla aö halda
jól, hvort sem almenningur getur
þaö eöa ekki. Ég verð að hrósa
íslensku útgáfunni af Steina og Olla,
sem birtist í sjónvarpsauglýsingum,
líklega möguleiki á útflutningi tví-
stirnisins sem þá leikur.
Haukur Helgason.
Fyrirlestrar
Geðheilbrigðismál
GEÐHJÁLP, félag fólks sem þarf eða hefur
þurft aðstoð vegna geðrænna vandamála, að-
standenda þess og velunnara, gengst I vetur
fyrir fyrirlestrum um geðheilbrigðismál og
skyld efni. Fyrirlestramir verða haldnir á
geðdeild Landspítalans, I kennslustofu á 3.
hæð. Þeir verða allir á fimmtudögum og
hefjast kl. 20.00. Fyrirlestramir em bæði
fyrir félagsmenn svo og alla aðra sem áhuga
kynnu að hafa. Aðgangur er ókeypis. Fyrir-
spumir og umræður verða eftir fyrirlestrana.
Þann 1. desember 1983 heldur Anna Valde-
marsdóttir sálfræðingur, fyrirlestur: Kynn-
ing á námskeiðum í sjálfsstyrkingu.
Tónleikar
Sellótónleikar í
Fríkirkjunni
Almanak
Hins islenska Þjóðvinafélags 1984.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs og Þjóðvina-
félagsins hefur gefið út Almanak hins
íslenska þjóövinaf élags 1984, en aðalhluti þess
er Almanak um árið 1984 sem dr. Þorsteinn
Sæmundsson, stjarnfræðingur hjá
Raunvísíndastofnun Háskólans, hefur
reiknað og búið til prentunar. Annað efni
Þjóövinafélagsalmanaksins þessu sinni er:
Árbók Islands 1982 eftir Heimi Þorleifsson
sagnfræðing og Nokkrar gamansögur er Jón
Thor Haraldsson cand. mag. hefur skráö.
Þetta er 110. árgangur Þjóðvinafélags-
almanaksins sem er 182 bls. að stærð, prentað
í Odda. Umsjónarmaður þess er dr. Finnbogi
Guðmundsson, landsbókavörður og forseti
Hins íslenska þjóðvinafélags. Forstöðumenn
þjóðvinafélagsins auk hans era: Bjami Vil-
hjálmsson þjóðskjalavörður, Einar Laxness
sagnfræðingur, Jóhannes Halldórsson
deildarstjóri og dr. Jónas Kristjánsson, for-
stöðumaður Stofnunar Áma Magnússonar.
Menningarsjóður.
Tapað -fundið
Naglabyssa hvarf frá
Lynghálsi 3
Aðfaranótt laugardagsins 19. nóvember hvarf
Hilti DX^50 naglabyssa úr nýbyggingunni að
Lynghálsi 3. Byssan var í stóram rauðum
plastkassa ásamt ca 200 skotum. Númeriðá
byssunni er 113544 og er hún merkt Nýsmíði
sf. Þeir sem einhverjar upplýsingar geta gef-
ið eru vinsamlegast beðnir að hringja i síma
77600. Einnig er maðurinn sem hringdi sl.:
miðvikudag vinsamlegast beðinn að hafa
samband.
Ferðalög
Ferðafélag
íslands
Dagsferð sunnudag 4. des. kl. 13. Gengið á
Vífilsfell (655 m). Ekið upp á Sandskeið og
gengiö frá Jósepsdal á Vífilsfell. Nauðsynlegt
að vera í góðum skóm og hlýjum klæðnaði.
Verðkr. 200,-
Farið frá Umferðarmiðstöðinni, austanmeg-
in.Farmiðarvið bíl.
Fimmtudaginn 1. desember kl. 20.30 verða
hljómleikar í Fríkirkjunni í Reykjavík.
Sr. Gunnar Björnsson og Halldór Haralds-
son flytja Einleikssvítu fyrir selló nr. 1 í G-dúr
eftir Jóhann Sebastian Bach og Sónötu op. 102
nr. 2 í D-dúr fyrir píanó og selló eftir Ludwig
van Beethoven.
Ágóða af tónleikunum verður varið til.
styrktar orgelsjóði Fríkirkjunnar í Reykja-
vík, en orgelið er hið eina síðrómantiska orgel
á landinu, byggt af Sauer-verkstæðinu í
Frankfurt-am-Oder árið 1926 sem þótti eitt
besta orgelverkstæði síns tima.
Söfnin
Borgarbókasafn
Reykjavíkur
Aðalsafn — útlánsdeild, Þingholtsstræti 29 a,
sími 27155. Opið mánud,—föstud. kl. 9—21.
Sept,—apríl er einnig opið á laugard. kl. 13—
16. Sögustundir fyrir 3—6 ára börn á þriðjud.
kl. 10.30-11.30.
Aðalsafn — lestrarsalur, Þingholtsstræti 27,
sími 27029. Opið mánud.—föstud. kl. 13—19.
Sept.—apríl er einnig opið á laugard. kl. 13—
• 19. Lokaði júli.
Sérútlán—afgreiðsla í Þingholtsstræti 29 a,
simi 27155. Bókakassar lánaöir skipum,
heilsuhælum og stofnunum.
Sólheimasafn, Sólheimum 27, simi 36814. Opið
mánud.—föstud. kl. 9—21. Sept.—apríl er
einnig opið á laugard. kl. 13—16. Sögustundir
fyrir 3—6 ára börn á miðvikud. kl. 11—12.
Bókin heim, Sólheimum 27, simi 83780. Heim-
sendingarþjónusta á prentuðum bókum fyrir
fatlaða og aldraða. Símatimi: mánudaga og
fimmtudaga kl. 10—12.
Hofsvallasafn, Hofsvallagötu 16, simi 27640.
Opið mánud.—föstud. kl. 16—19. Lokað í júlí.
Bústaðasafn, Bústaðakirkju, simi 36270. Opið
mánud.—föstud. kl. 9—21. Sept.—apríl er
einnig opið á laugard. kl. 13—16. Sögustundir
fyrir 3—6 ára börn á miðvikud. kl. 10—11.
Bókabílar. Bækistöð I Bústaðasafni, simi
36270. Viðkomustaðir víðsvegar um borgina.
Bókabilar ganga ekki í 1 1/2 mánuö að
sumrinu og er þaö auglýst sérstaklega.
Minningarspjöld
Siglingar
Akraborgin
siglir nú fjórar ferðir daglega á milli Akra-
ness og Reykjavíkur.
FráAk. FráRvík:
Kl. 08.30
Kl. 11.30
Kl. 14.30
Kl. 17.30
Kl. 10.00
Kl. 13.00'
Kl. 16.00
Kl. 19JW
Minningarkort
Foreldra- og styrktarfélags Tjaldaness-
hebnillsbis „Hjálparhöndbi” fást á eftirtöld-
umstöðum:
Ingu Lillý Bjarnad., sbni 35139,
Ásu Pálsdóttur, sími 15990,
Gyðu Pálsd., sbni 42165,
Guðrúnu Magnúsd., sbni 15204,
blómaverslunbmi Flóru, Hafnarstræti, sbni
24025,
blómabúðbmi Fjólu, Goðatúni 2, Garðabæ,
sími 44160.
Minningarkort
Óháða safnaðarins
verða til sölu í anddyri kirkjunnar nk. föstu-
dag kl. 13-15 og 16-17.
Leiðrétting
Á mánudaginn voru nokkrir Húsvík-
ingar spuröir í DV hvernig þeim litist á
nýju verslunina Kjarabót. Því miöur
víxluðust myndirnar af Helenu
Hannesdóttur og Friörikku Jónsdóttur
og eru þær beönar velvirðingar á mis-
tökunum.
Músíktilraunir
Tónabæjarog SATT:
Þriðja um-
ferð í kvöld
Þriöja Músíktilraun Tónabæjar og
SATT verður í kvöld og koma þá fram
eftirtaldar hljómsveitir: Butler, 69 á
salerninu, Tekk, Hvers vegna, Svefn-
purkur og Rök. Gestir kvöldsins eru
Frakkarnir og munu þeir kynna lög af
væntanlegri plötu sinni.
I annarri umferöinni, fyrir viku,
sigraði stúlknahljómsveitin Dúkku-
lísumar frá Egilsstööum. I ööru sæti
varö hljómsveitin Bylur. Báðar þessar
hljómsveitir komast í úrslitakeppnina
sem haldin verður á Kjarvalsstööum
aö kvöldi 9. desember næstkomandi.
Alls munu átta hljómsveitir koma
fram í úrslitakeppninni en heiöursgest-
ur á Kjarvalsstöðum verður hljóm-
sveitin Ego sem ekki hefur komiö opin-
berlega fram um alllangt skeiö.
Þetta er annað árið sem Tónabær og
SAIT — Samband alþýðutónskálda og
tónlistarmanna — gangast fyrir
Músíktilraunum.
-SþS
skipuleggja megrunarkúrinn, sem
ég verð að fara í því að ég kemst
ekki í f ötin mín.