Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1984, Qupperneq 1
Öldruö hjón í Smálöndum ofan við Reykjavík:
Við erum gjörsamlega varnarlaus þegar svona kemur fyrir, segir
Guðjón Teódórsson, þar sem hann og kona hans, Lydia Guðjónsdóttir,
standa í dyrum húss síns sem þau hafa ekki komist út úr í eina viku.
DV-mynd GVA.
LOKUÐINNI
í EINA VIKU
„Þaö er sifellt veriö aö tala um
ástandið úti á landi en svona getur
þaö nú veriö hér í Reykjavík”, segja
þau hjónin Guðjón Theódórsson og
Lydia Guðjónsdóttir, sem hafa veriö
innilokuö í eina viku í húsi sínu að
Hitaveitutorgi 1 í Smálöndum,
vegna fannfergis.
Mannhæöar hár skafl er fyrir
— vegna fannfergis
dyrum hússins og því gjörsamlega
ómögulegt aö komast út eöa inn.
Þau hjón, sem bæöi eru á sjötugs-
aldri hafa þó ekki þurft að líða neinn
skort þessa viku, sem þau hafa verið
innilokuð, ættingjar hafa komið meö
mat og aðrar nauösynjar, en heldur
er þeim farin aö leiöast vistin.
Og nú þarf Lydía aö komast til
læknis, en hún er sjúklingur, sem
verður að fara til læknis meö reglu-
legu millibili. Hvemig hún fer að er
ekki gott að segja, þau hjónin hafa
reynt að fá borgarstarfsmenn til aö
aðstoöa sig en þaö hefur ekki boriö
árangurenn.
Þau hjón muna ekki eftir jafn
miklum snjó þarna í Smálöndunum í
þau sex ár sem þau hafa búiö þar.
-SþS.
Sóttirá
vélsleðum
íÞórsmörk
Félagar í slysavamasveitinni Dag-
renningu á Hvolsvelli komu í nótt
innan úr Þórsmörk með sex menn sem
þar voru í vanda staddir.
Mennimir höföu farið inn í Þórsmörk
á þrem bílum og þegar ekkert haföi
heyrst í þeim í gærkvöldi fóru aðstand-
endur þeirra aö óttast um þá og höföu
samband viö SVFI. Voru menn úr
sveitinni á Hvolsvelli fengnir til aö
fara inn í Þórsmörk aö leita aö þeim og
héldu þeir af stað í gærkvöldi á sex vél-
sleöum.
Fundu þeir bílana og mennina um
miönætti skammt innan viö Stóm-
Mörk. Var ákveðið aö skilja bílana þar
eftir og vom mennirnir fluttir á sleðun-i'
um niður á Hvolsvöll.
-klp.
um Flug-
leiðabréf
— nokkur tilboð í 20%
eignarhlut ríkisins
Nokkur tilboö í 20% hlutabréfaeign
ríkisins í Flugleiðum hf. bárust fjár-
málaráðuneytinu fyrir síöustu mán-
aöamót. Nafnverð bréfa ríkisins er 7
milljónir króna.
Ekki liggja fyrir upplýsingar um
bjóöendur en samtök starfsmanna eru
á meöal þeirra. -HERB.
Snjókoma
— bjart annars staðar
Norðan strekkingur veröur um allt
land í dag og kvikasilfursúlan á hita-
mælum nær hvergi upp fyrir núll
gráðna. Snjókoma verður um aUt
noröanvert landið aö meðtöldum
noröanverðum Austfjörðum og Vest-
fjöröum. Annars staöar veröur bjart
veöur.
Hvaö færöina varöar er stórum
bílum og jeppum fært eftir suöur-
ströndinni frá Reykjavík austur að,
Höfn í Hornafirði en Almannaskarð
mun vera ófært.
Fært er frá Reykjavík í Borgames
en um færö annars staöar á landinu
var ekki gjörla vitað á skrifstofu vega-
mála í morgun. -SþS.
1.—.——~~ ■ Cininsgesamt8i«rfcefV(Bm(t7w©ÍQléníen<Jen 1 ■ aS4'jrJk,Mmn',«e,t.nr,le(Whe,m(o.^(tewte'er l(^Sí»Si8i“foppte 1 wieerwollte vts Srune.'t - trc *.IM,.|W(WT( ».t(j«) Í5
Nóaflóðið GlæsimarkÁs-
— SigíW geirsekkidæmt
hépsins — sjá íþróttir
— sjá bls.4 bls. 19-26
'
Listflug hrafnsins — sjá bls. 2 og39 Ölvaðirilla staddireftir Saugardagsböllisi - sjá bls. 5
Tímahrakog
spenningur
ískákinni
— sjá bls. 18