Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1984, Side 36
36
DV. MÁNUDAGUR 6. FEBRUAR1984.
Nauðungaruppboð
sem auglýst hefur verið í Lbl. á bv. Aðalvík KE-95, þingl. eign Hrað-
frystihúss Keflavikur hf., fer fram við skipið sjálft í Kefla víkurhöfn að
kröfu Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hdl. fimmtudaginn 9. 2. 1984 kl.
10.30.
Bæjarfógetinn í Keflavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst hefur verið í Lbl. á fasteigninni Vesturgötu 4, efri hæð, í‘
Keflavík, þingl. eign Hafsteins Emilssonar, fer fram á eigninni sjálfri
að kröfu Vilhjálms Þórhallssonar hrl. fimmtudaginn 9.2.1984 kl. 10.15.
Bæjarfógetinn í Keflavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst hefur verið í Lbl. á fasteigninni Heiðargerði 6 í Vogum,
þingl. eign Hlöðvers Kristinssonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu
Þorvalds Lúðvikssonar hri., Jóns Þóroddssonar hdl. og Vilhjálms H.
Vilhjálmssonar hdl. f immtudaginn 9.2.1984 kl. 16.15.
Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst hefur verið í Lbl. á fasteigninni Meiðastöðum, austurbýli,
3. hæð, i Garði, þingl. eign Ásmundar Gunnarssonar, fer fram á eign-
inni sjálfri að kröfu Helga V. Jónssonar hrl., Jóns G. Briem hdl.,
Brands Brynjólfssonar hrl., Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hdl.,
Guðjóns Steingrimssonar hrl., Gerðahrepps og innheimtumanns ríkis-
sjóðs miðvikudaginn 8.2.1984 kl. 16.00.
__________________Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst hefur verið í Lbl. á fasteigninni Greniteigi 14 í Keflavík,
þingl. eign Magnúsar Kolbeinssonar, fer fram á eigninni sjálfri að
kröfu innheimtumanns ríkissjóðs miðvikudaginn 8.2.1984 kl. 14.45.
Bæjarfógetinn í Keflavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst hefur verið í Lbi. á fasteigninni Sólvallagötu 42, 3. hæð í
vesturenda, í Keflavík, þingl. eign Arnar Ingólfssonar, fer fram á eign-
inni sjálfri að kröfu innheimtumanns rikissjóðs miðvikudaginn 8. 2.
1984 kl. 14.00.
Bæjarfógetinn í Keflavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst hefur verið í Lbl. á fasteigninni Kirkjuvegi 35 í Keflavík,
þingl. eign Björns Ragnarssonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu
Tryggingastofnunar ríkisins og Veðdeildar Landsbanka íslands
miðvikudaginn 8.2.1984 kl. 10.45.
Bæjarfógetinn í Kefla vík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst hefur verið í Lbl. á fasteigninni Kirkjuvegi 11 í Keflavík,
þingl. eign Ölafs Georgssonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu
Ólafs Gústafssonar hdl., Veðdeildar Landsbanka íslands og Vilhjálms
H. Vilhjálmssonar hdl. miðvikudaginn 8.2.1984 kl. 10.15.
Bæjarfógetinn í Keflavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst hefur verið í Lbl. á fasteigninni Kirkjuteigi 15 í Keflavík,
þingl. eign Rúnars Guðjónssonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu
Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hdl., Hafsteins Sigurðssonar hrl. og
Vilhjálms Þórhallssonar hrl. miðvikudaginn 8.2.1984 kl. 10.00.
Bæjarfógetinn í Keflavík.
CAR RENTAL SERVICE - @ 75
FAST VERÐ - EKKERT KÍLÓMETRAGJALD
SÖLUSKATTUR INNIFALINN í VERÐI
^3
SMIÐJUVEGI 44 D - KÓPAVOGI • ICELAND
AÐALSÍMI: 75 400 & 78 660
KVÖLD OG HELGARSÍMI: 43 631 & 46 211
TELEX 2271 IÐN IS
Leitið upplýsinga.
Um helgina Um helgina
Fávitar leika lausum hala
Það er staöreynd að tónlistar-
þættir njóta ekki almennrar hylli í
sjónvarpi, en sem betur fer er þó
hægt að gera ýmislegt til þess að
örva áhugann og stækka áhorfenda-
hópinn.
Ein leið og nokkum veginn örugg
er sú að sýna sem allra minnstan
djass, því að sú tegund tónlistar
höfðar til afar fárra og eiginlega ekki
nema hinna rosknu manna.
önnur leiö og torsóttari er sú að
vanda ákaft til upptökunnar og
reyna að tjalda allri þeirri tónlistar-
þekkingu sem sjónvarpiö á völ á
hverju sinni.
Þaö er ekki langt um liðið síðan viö
sáum forkunnargóðan sjónvarpsþátt
með Vínarvölsum og það er hægt að
grafa heilann um hvers vegna sá
þáttur var svo miklu betri en sumir
aörir.
Líklega hefur það skoriö úr, aö
upptökustjórinn var vel heima í tón-
list og gjörþekkti lögin og hljóm-
sveitina sem flutti þau. Ævinlega var
hann til taks meö myndavélar sínar
þar sem á þurfti að halda — hann
fangaöi inn blásarastefin þegar það
átti við og eins var um önnur
hljóðfæri og ekki síst hljómsveitar-
stjórann sjálfan. Þetta var karl sem
kunni til verka.
Eg býst við því að eldheitum unn-
endum hljómlistarinnar þyki alltaf
slægur í tónlistarþáttum, þó svo aö
þeir séu miður laglega unnir, en við
hinir sem höfum gaman af tónlist án
þess aö kunna á henni mikil skil
njótum slíkra þátta því betur sem
þeir eru búnir til af meiri snilld og
kunnáttu.
Þátturinn í gærkvöldi með önnu
Guðnýju Guðmundsdóttur á píanói
og Sigurði I. Snorrasyni með klarin-
ettu var ekki nógu vandaöur og
margoft var eins og myndvinnslan
væri gjörsamlega úr tengslum við
sjálfan tónlistarflutninginn.
Sjónvarpsstöðvar í útlöndum ráða
til sín tónmenntaða dagskrárgerðar-
menn til þess að sjá um svona
upptökur en auðvitaö er ekki alltaf
kostur á slíkum munaði. Fyrsta
skrefið væri að ráða menn til
verksins sem kunna að lesa nótur og
aö því ætti lista- og skemmtideild að
vinna.
Fyrir fjórum árum eöa svo hlotn-
aðist mér sú ánægja aö horfa á rúss-
neska kvikmynd í sjónvarpinu sem
hét Fávitinn og var búin til eftir
skáldsögu Dostójevskís.
Þaö er um þessar rússnesku
myndir að segja, rétt eins og tónlist-
arþættina, að þær eiga hreint ekki
upp á pallborðið hjá mörgum
Islendingum. Ber þar ýmislegt til
sem ekki þarf að rifja upp á þessum
vettvangi.
Eg veit að það er slegist um mynd-
segulbandstækin á videóleigum
borgarinnar þegar von er á rúss-
neskri kvikmynd í sjónvarpinu og
mér skilst að legið hafi við styrjöld í
sumum borgarhverfum þegar leið á
vikuna og þaö kvisaöist að lista- og
skemmtideild ætlaði að endursýna
Fávitann.
Nú er heitið á myndinni engan veg-
inn réttnefni eins og kunnugt er, því
að Myshkin prins var alls ekki fáviti í
þess orðs fyllstu merkingu, heldur
fjarskalega göfugur maöur, þótt
hann væri kannski dáh'tið einfaldur á
köflum.
En hver er fávitinn sem enn leikur
lausum hala og fær að ráöskast
svona meö föstudagskvöld heillar
þjóðar að gamni sínu?
-Baldur Hermannsson.
Heba Geirsdóttir Jóhannesson lést 27.
janúar sl. Hún fæddist á Akureyri 20.
apríl 1901. Foreldrar hennar voru Geir
Sæmundsson og Sigríður Jónsdóttir.
Heba giftist dr. Alexander Jóhannes-
syni en hann lést árið 1965. Utför Hebu
verður gerð frá Fossvogskirkju í dag
kl. 15.
Hjörleifur Jónsson fv. bifreiðaeftirhts-
maður, andaðist í Borgarspítalanum
31. janúar. Utförin fer fram frá Foss-
vogskirkju í dag kl. 13.30.
Brynjólfur H. Þorstemsson vélstjóri,
Laugarnesvegi 72, verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 7.
febrúarkl. 13.30.
Andlát
Skákmeistaramót
Suðurnesja
Skákmeistaramót Suðumesja hefst í
Garðinum í kvöld, mánudaginn 6. febr.
Teflt verður í bamaskólanum og hefst
mótið klukkan átta. Þetta er í fyrsta
sinn sem mótið er haldiö í Garðinum.
Þar var stofnaö skákfélag nýlega en
Helgarskákmótið sem haldið var þar
varð kveikjan að stofnun skákfélags
Gerðahrepps, sem annast mótið.
Teflt verður í opnum flokki, eftir
Monrad-kerfi, sjö umferðir. Sigurveg-
arinn fær titilinn „Skákmeistari Suöur-
nesja” en einnig verða veitt verðlaun
fyrir öldunga og unghnga.
Skráning keppenda fer fram á móts-
staö og er öllum skákáhugamönnum á
Suðumesjum heimil þátttaka í mótinu.
ðLDUGATA
Misritun varð í frétt okkar síðast-
liðinn föstudag er við sögðum frá
heimilisfangi konunnar er lést aö
Njálsgötu 48 í síðustu viku. I stað
öldusels 48 átti að standa öldugata 48.
Hlutaðeigandi em beðnir velvirðingar
áþessu. -JGH.
Jófríður Kristin Þórðardóttir lést 31.
janúar sl. Hún fæddist 9. ágúst 1890.
Hún var gift Olafi Bergmann Erlings-
syni, en hann lést árið 1973. Þau
eignuðust þrjár dætur. Utför Jófríðar
verður gerð frá Hallgrímskirkju í dag
kl. 13.30.
Steinunn Reynisdóttir lést 29. janúar
sl. Hún fæddist aö Eyvík í Grímsnesi
11. febrúar 1954, dóttir hjónana Reynis
Tómassonar og Emmu Kolbeinsdótt-
ur. Steinunn lauk prófi frá Kvenna-
skólanum í Reykjavík vorið 1971. Hún
giftist Pétri Haukssyni og eignuðust
þau tvo syni. Steinunn og Pétur shtu
samvistum. Utför Steinunnar var gerð
frá Fossvogskirkju í morgun kl. 11.
Guðmunda Gisladóttir, Oldugötu 48
Hafnarfirði, lést 31. janúar.
Ölafur Þorsteinsson, fyrrverandi vél-
stjöri, andaðist 2. febrúar á Elli- og
hjúkrunarheimilinu Grund.
Einar Sigurðsson, Odda, Fáskrúðs-
firöi, lést í Landakotsspítala3. febrúar.
Sesselja Katrin Halldórsdóttir frá
Sauðholti, síöast til heimilis á Grettis-
götu 66, andaðist á Elli- og hjúkrunar-
heimilinu Grund fimmtudaginn 2.
febrúar.
Magnús Ármann stórkaupmaöur, Gils-
árstekk 8 Reykjavík, lést fimmtu-
daginn 2. febrúar.
Bragi Jóhannsson frá Akureyri, lést
19. janúar í Gautaborg. Jarðarförin
hefur farið fram.
Bryndís Elíasdóttir, Reynihvammi 34
Kópavogi, sem andaðist 27. janúar,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 7. febrúar kl. 15.00.
Steinunn Kristinsdóttir, Nönnufelli 3,
andaðist á gjörgæsludeild Landakots-
spítala 4. febrúar.
Tilkynningar
Skíðakennsla á Miklatúni
kl. 20—22 í kvöld. Sá sem fékk ranga skíða-
stafi á þriöjudagskvöldiö sl. er beðinn aö
mæta og taka rétta stafi.
Norrænn bibliufundur
I dag kl. 5 veröur haldinn norrænn biblíufundur í
Norræna húsinu viö Hringbraut í tilefni af þvi aö
liöin eru 400 ár frá útgáfu Guöbrandsbiblíu.
Á fundinum mæta framkvæmdastjórar nor-
rænu Bibliufélaganna og verður þar fjallaö um út-
gáfu og útbreiðslu bibliunnar á Norðurlöndum og
víðar.
Níræður er í dag, mánudaginn 6.
febrúar, Jón Hlíðberg, Leifsgötu 12.
Hann dvelst nú á Borgarspítalanum.
80 ára verður sunnudaginn 5.
febrúar Þórður Ingþórsson bifreiðar-
stjóri, Sólheimum 14 Reykjavík.
Þóröur tekur á móti vinum og vanda-
mönnum í Félagsheimili Langholts-
sóknar á afmælisdaginn milli kl. 16 og
19.