Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1984, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1984, Blaðsíða 2
2 DV. FIMMTUDAGUR 22. MARS1984. Refsingin verdi ekki undirlT ára fangelsi — er krafa ríkissaksóknara gagnvart Grétari Sigurði Árnasyni sem ákærður er fyrir manndráp og stórf ellda líkamsárás Ríkissaksóknari, Þóröur Björns- son, kraföist þess í hæstarétti í gær aö refsing Grétars Sigurðar Árna- sonar, sem í undirrétti var dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir manndráp og stórfellda líkamsárás, veröi þyngd þannig aö hún veröi ekki undir 17 ára fangelsi. Gert var hlé á málflutningi klukkan 15.30 í gær. Þá haföi saksóknari lokið fyrri ræöu sinni en skipaður verj- andi, Jón Oddsson, var langt kominn í sinni. Málflutningur hófst að nýju klukkan tíu í morgun. Búist er viö aö honumljúkiídag. Dómssalur hæstaréttar þétt setinn Ahorfendabekkir í dómssal hæsta- réttar viö Lindargötu voru þétt setn- ir þegar málflutningur hófst klukkan 10 í gærmorgun. Þar voru einkum laganemar, lögreglunemar og blaöa- menn. Sakborningurinn, Grétar Sigurður, var hins vegar ekki við- staddur. Hann er ákæröur fyrir aö hafa, laust fyrir miönætti aöfaranótt þriöju- dagsins 17. ágúst 1982, vopnaður haglabyssu, veist aö tveimur frönskum stúlkum, systrunum Marie Luce Bahuaud, fæddri 20. júní 1953, og Yvetta Bahuaud, fæddri 19. maí 1961, í „sæluhúsi” á Skeiöarársandi og utan þess, en í „sæluhúsiö”, þar sem stúlkumar sváfu einar, haföi ákæröi ekið þeim á bifreið sinni fyrr um kvöldið. Hann er ákæröur fyrir aö berja Marie Luce inni í „sæluhúsinu” meö byssuskefti haglabyssunnar eöa öðru barefli nokkur högg í höfuðið svo aö hún hlaut af heilamar ásamt magnleysi í vinstri hlið líkamans, blæöingu á milli heilabasts og höfuð- kúpu og opiö innkýlt höfuðkúpubrot. Marie Luce þurfti aö gangast undir læknisaðgerðir vegna áverkanna bæöi hér á landi og í heimalandi sínu. Viö atlögu ákærða missti Marie Luce meövitund og í því ástandi skildi ákærði hana eftir í „sæluhúsinu” sem stendur utan þjóövegar um 14 kílómetra vestan þjónustumiö- stöövarí Skaftafelli. Högl komu í bakhluta stúlkunnar Grétar Siguröur er ákæröur fyrir að hafa aö einhverju leyti í átökum við stúlkumar inni í „sæluhúsinu”, en einkum eftir þau og þá utan „sæluhússins, hleypt úr haglabyss- unni skotum af nokkru færi sem hæföu Yvetta þannig að í aftan- veröan likama hennar, frá hvirfli og niöur á hægri rasskinn, gengu alls 39 högl og í aftanverðan háls, vinstra megin í hnakka og aftantil í hvirfli gengu 11 högl, auk þess sem eitt hagl gekk í gegnum vinstra gagnauga. Ennfremur að hafa meö valdbeit- ingu gagnvart stúlkunni og röngum upplýsingum til ökumanns tankflutn- ingabifreiöar, sem bar að skömmu síöar, aftraö því aö Yvetta kæmist með þeirri bifreið og gæti leitað hjálpar. Akæröi kom stúlkunni eftir þaö fyrir í lokuðu farangursrými bif- reiöar sinnar, Z-1540, Mercedes Benz-fólksbifreiö, og ók áleiöis austur. Viö athugun, sem ákæröi geröi þegar hann ók yfir Skeiöar- árbrú, taldi hann stúlkuna látna. Akæröi ók þó áfram og yfirgaf bif- reiðina, með líkinu í, utan þjóðvegar viö Neskvísl og bjó um sig í grjóturö þar skammt frá, neðarlega í hlíðum Hafrafells, vopnaður riffli og fyrr- greindri haglabyssu, hvort tveggja hlöönu skotum. Leitarflokkar fundu bifreiöina meö líki stúlkunnar aö morgni en ákæröa ekki fyrr en aö morgni miðvikudags 18. ágúst og var ákæröi þá handtekinn mótþróalaust. Eftir að ríkissaksóknari hafði les- iö ákæruskjalið hóf hann að rekja gögn málsins. Hann fór yfir fram- buröi helstu vitna, ákæröa og stúlk- unnar sem lifði af. Hann las upp úr öörum málskjölum, þar á meðal geö- rannsókn. Samkvæmt hernii er Grétar Sigurður talinn sakhæfur. „Eg byr ja mína sögu þegar Svein- bjöm Garðarsson bifreiðastjóri heldur austur þjóðveginn á Skeiöar- ársandi laust eftir miönætti, um klukkan 00:30 aðfaranótt 17. ágúst 1982. Hann ók tjöruflutningabifreið,” sagði ríkissaksóknari. Hann rakti síðan framburö bílstjórans. Vörubflstjóri blekktur Flutningabílstjórinn kom aö grænni Mercedes Benz-bifreiö, sem haföi verið stöövuö skáhallt á vegin- um um þaö bil þrjá kílómetra fyrir vestan Skeiðarárbrú. A þaki bifreið- arinnar, sem var í gangi var merki FIB og flögg. Við bifreiðina stóö maöur. Vitnið skrúfaöi niöur hliðarrúðu og spuröi manninn hvað gerst hefði. Rétt í því heyröi þaö angistar- og sársaukaóp i stúlku. Maöurinn sagöi viö vitnið aö hann heföi ekiö á stúlk- una, sem heföi veriö gangandi á veg- inum og væri hún viti sínu fjær og hrædd. I þessu kom stúlkan í ljós fyrir aftan bifreið mannsins. Hún skreiö frá vinstri vegjaðri og studdi sig viö höggvara bifreiðarinnar. Síöan færði hún sig yfir aö bifreiö vitnisins. Hún greip í frambretti bifreiðarinnar og spegilfestingu meö annarri hendi en í brún rúðunnar, sem vitnið hafði skrúfaö niður, meö hinni hendinni. Stóö stúlkan þannig í tröppum upp í bifreiöina. Hún sagöi: „Please, help me,hetrykillme.” Maöurinn hindraöi stúlkuna ekki viö þetta. Stúlkan var blóöug í andliti og á höndum. Maðurinn sagöi vitninu aö taka ekkí mark á stúlkunni. Hún væri viti sínu fjær og geðveik og réði hann ekkert viö hana. Maöurinn baö vitnið aö fara strax í þjónustumið- stööina í Skaftafelli og ná í hjálp. Vitnið kveðst hafa haft hraðan á og beðið manninn um aö taka stúikuna af bifreiðinni. Tók maöurinn í peysu stúlkunnar og togaði hana af bifreið- inni. Fannst vitninu þetta harkalega gert þar sem stúlkan var slösuö, en þó ef til vill nauösynlegt. Stúlkan hrópaði á hjálp er vitniö ók af stað og endurtók þau hróp nokkrum sinnum. Vitniö kveður það hafa ráðiö nokkru um geröir sínar að þaö hafði ekki af- skipti af stúlkunni á staðnum aö bif- reiö mannsins var meö FIB -merki á þaki og flöggum. Bfllinn merktur FÍB Saksóknari geröi þátt FIB í mál- inu að sérstöku umtalsefni. Sagði hann þaö ævintýralegt og alveg sér- deilis skrýtiö að maöur, sem tvívegis hefði veriö sviptur ökuleyfi ævilangt, áriö 1975 og 1978, skyldi á árinu 1982 vera oröinn eins konar vegaeftirlits- maöur meö merkj um FIB. „Og allir trúa því, lögreglan líka, að þessi maður sé meö fullt ökuleyfi. Hann stöövar annað fólk á vegum og áminnir þaö fyrir hraöan akstur og segir að réttast sé aö svipta þaö öku- leyfi.” Saksóknari hrósaði lögreglunni fyrir hvernig að rannsókn málsins heföi verið staðið, bæöi lögreglunni í Marie Luce, systlrin sem lifði af árásina. Myndin var tekin þegar hún kom til landsins til að bera vitni síðastliðið sumar. Austur-Skaftafellssýslu og Rann- sóknarlögreglu ríkisins. „I þessu máli liggur ekki játning fy rir. En rannsókn málsins er á þann veg aö óhætt er aö draga af henni sterkar ályktanir.” Saksóknari sagöi það staöreynd aö ákæröi tók systurnar upp í bifreið sína um klukkan 17 skammt frá Höfn í Homafirði og ók þeim aö „sæluhús- inu” á Skeiðarársandi. Af áritun í gestabók þar mætti ráða aö þær heföu haldið aö hann ynni meö lög- reglu. I gestabókinni stóö: „Þakkir til sheriff fyrir aö hafa flutt okkur til sæluhúss.” „Ákærði átti ekkert erindi í sæluhúsið" Saksóknari sagði fullvíst aö ákærði heföi komið aftur í sæluhúsiö seinna um kvöldiö. I framburöi sínum hefði ákæröi staöhæft aö af þjóðveginum heföi hann séð mann fyrir utan sælu- húsið sem var í 300 metra fjarlægð. Sagöi saksóknari aö þessi fullyrðing fengi ekki staðist því að sérstök athugun heföi leitt í ljós aö slíkt væri útilokaö miöaö viö þær aöstæöur sem þarna voru, myrkur og dimmviöri. „Akærði átti ekkert erindi aö sæluhúsinu. Hann var aldrei beðinn um aö hafa eftirlit meö því. Hann var því óboöinn gestur. Ákærði hefur aldrei komiö meö nokkra frambæri- lega skýringu á því hvað hann var aö geraísæluhúsið.” Saksóknari sagði aö ákæröi hefði komið aö sæluhúsinu vopnaður tveimur byssum og skotum. „Þaö er staðreynd aö hann kom inn meö haglabyssu. Það er staöreynd að hann haföi hlaðið þessa haglabyssu á leiöinni inn í sæluhúsiö.” Hassákæra ímyndun eða ósannindi Saksóknari geröi því næst aö umtals- efni þá fullyrðingu ákæröa aö stúlkurnar heföu veriö aö reykja hass. „Þetta er annaðhvort ímyndun ákærða eöa vísvitandi ósannindi,” sagöi saksóknari. Hann sagöi aö mjög ítarleg athugun heföi verið gerö á þessu atriði. Sæluhúsiö sjálft hefði veriö gaumgæfilega athugaö svo og farangur stúlknanna. Ekkert hefði komið fram sem bent gæti til þess aö kannabisefni heföu verið á staönum. Viö krufningu hefði einnig veriö gerö sérstök könnun á þessu en ekki hefði veriö hægt aö sýna fram á að f ullyrö- ing ákærða heföi við rök að styðjast. Saksóknari sagði ennfremur þá fullyrðingu ákærða aö hann heföi snúið skefti haglabyssunnar að stúlkunum, þegar hann kom inn í sæluhúsiö, ákaflega ósennilega. Frá- sögn Marie Luce, um að hann heföi snúiö hlaupinu aö þeim, væri mun sennilegri. Vitnaöi saksóknari í rök- stuöningi sínum til þess álits sér- fróöra manna, sem prófaö heföu byssuna, að bakslag hennar væri það mikið þegar skotiö væri aö sá sem héldi á henni meö skeftið fram myndi mjög líklega missa takiö og afar ólík- legt væri aö hann slyppi viö að skaöa sig verulega á fingrum. Saksóknari rakti framburð Marie Luce og ákæröa um þaö sem gerðist í sæluhúsinu. „Það er upplýst aö ákærði sló Marie Luce. Þaö hefur hann viðurkennt. Hann lét sér ekki nægja eitt högg. Ekki tvö högg. Heldur þrjú högg. Og hann valdi höfuðið.” Hin systirin, Yvette, flúöi úr „sæluhúsinu”. „Ákæröi hóf leit að stúlkunni sem flúöi. Hann skildi hina eftir meðvitundarlausa eftir að hafa slegið hana þrjú högg í höfuðið. Hann hlaut að hafa gert sér grein fyrir aö stúlkan var bjargarlaus og ef til vill aö dauöa komin. Heyrði óp systur sinnar og tvo skothvelli Af hverju fór ákæröi að leita aö stúlkunni sem haföi komist á brott? Hann segir: „Eg ætlaði aö reyna aö sansa þetta til,” hvað sem það nú merkir. En hann hóf leit aö stúlkunni og hann fann hana. Hún var komin niöur á veg. Hann stöövar bifreiö sína, tekur upp skot, setur þaö í byss- una og skýtur af byssunni. Hann kveöst hafa skotið upp í loftið. En það geröi hann ekki. Skotið komístúlkuna.” I framburöi sínum segist Marie Luce hafa heyrt óp í systur sinni þegar hún kom til meövitundar, síðan skot, þá aftur óp og skot aftur og liðu nokkrar sekúndur á milli skothvellanna. Skömmu síðar heyröi hún bifreiö setta í gang og ekiö brott. Við vettvangsrannsókn fannst skothylki um 500 metra frá afleggjaranum í átt aö sæluhúsinu. Rannsókn á skothylkinu sýndi aö því haföi verið hleypt af byssu ákæröa. -KMU. öræfasveit 17. ágúst 1982. Á stærri myndinni sést græni Benzinn. Á innfelldu myndinni er sæluhúsið á Skeiðarársandi. ‘ DV-myndir: Einar Olason og Kristján Már Unnarsson. •>

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.