Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1984, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1984, Blaðsíða 10
rr LR0 f PffA.W <*(* ctt T n A rrr T'I'> /f* /rt'cr ^ rrr 10 DV. FIMMTUDAGUR 22. MARS1984. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Fyrsta kosninga- prófraun Kohl- stjómarinnar Samstarfsflokkamir í ríkisstjórn Helmuts Kohls kanslara Vestur- Þýskalands ganga nú undir sitt fyrsta kosningapróf, síöan þeir mynduðu stjóm. Þaö verða kosning- arnar til ríkisþings Baden-Wiirttem- berg núna á sunnudaginn. Aörar kosningar hafa ekki veriö haldnar í Vestur-Þýskalandi síöan haustiö 1983, þegar kosiö var til sambands- þingsins í Bonn, sem leiddi til þess aö sósíaldemókratar fóm frá en kristi- legir demókratar, kristilega sam- bandiö og frjálslyndir demókratar gengu saman í stjórnarsængina. Niðurstööur kosninganna í Baden- Wiirttemberg á sunnudaginn munu auövitaö engin áhrif hafa á skiptingu þingsæta í sambandsþinginu. En athyglin beinist að þeim þar sem þær veröa fyrsta vísbendingin fengin í almennum kosningum um fylgi flokkanna að fenginni þetta langri setu þeirraístjóm. Þessi vetur hefur veríö stjórn Kohls kanslara mjög erfiöur meö miklu pólitísku fjaörafoki. Þaö var hin umdeilda kjarnaeldflauga- áætlun NATO sem kom til fram- kvæmda í vetur þegar fyrstu eld- flaugamar í þeirri áætlun komu til Vestur-Þýskalands frá Bandaríkjun- um undir árslok þrátt fyrir mót- mælaaðgerðir kjarnorkuvopnaand- stæðinga. Þar til viðbótar vom tvö hneykslismál sem mikið vora á milli tannanna á f jölmiðlunum. Annaö var aö varnarmálaráðherrann þótti hlaupa á sig þegar hann vék úr starfi hjá yfirstjórn NATO-herja einum af virtari hershöfðingjum Þjóðverja á grundvelli handahófsfenginna upplýsinga um aö hann væri kynvillt- ur og hugsanlegt fórnarlamb fjár- kúgara svo aö öryggisleyndarmálum væri ekki óhætt í hans höndum. Hers- höfðinginn fékk leiðréttingu sinna mála en Kohl kanslari mátti hafa sig allan viö til að aftra því að málið leiddi til uppstokkunar í ríkisstjórn- inni og mannaskipta. Hitt hneyksliö lýtur aö meintri mútugreiöslu fyrir- tækjasamsteypu í kosningasjóði flokkanna sem ráðherrar frjáls- lyndra hafi endurgoldiö meö því að stuðla aö því aö samsteypan fengi stórkostlega skattaívilnun. Þaö mál er enn í rannsókn og þykir vanta töluvert á aö öll kurl séu komin þar tilgrafar. En þrátt fyrir þennan andbyr og fleira er ekki búist við því aö stjómarflokkamir bíði mikið fylgis- tap í Baden-Wurttemberg um helg- ina. Kristilegir demókratar sem lúta þar forystu Lothar Spaeth, forsætis- ráöherra Baden-Wurttembergríkis, njóta þar algers meirihluta í ríkis- þinginu eins og stendur. — Baden- Wurttemberg er þriöja stærsta ríkið í sambandsríkinu Vestur-Þýska- landi. Þaö liggur aö landamærum Frakklands, Sviss og Austurríkis og búa í þessum iandshluta um níu milljónir manna. Þar hefur þrifist hrnn margbreytilegasti iðnaöur og fyrir þá sök hafa efnahagsþrenging- ar síðustu ára haft minni áhrif á af- komu fólks. Þar er atvinnuleysi minnst í V-Þýskalandi, meðaltekjur hæstar á einstakling, framleiöni mest og skuldir þess opinbera minnstar. Hlutur Baden-Wurttem- bergs í heildarútflutningi V-Þýska- lands er sá stærsti, sem eitt ríki get- ur státaö af, enda á þriðji hver maö- ur þar atvinnu sína undir eftirspurn- inni á eriendum mörkuöum. Meö slíka einkunn að baki frá stjóm sinni á þessu ríki þurfa kristi- legir demókratar varla miklu aö kvíöa um helgina þegar gengiö verö- ur að kjörborðinu. Og enn síöur þeg- ar tekið er miö af því að jafnvel stjórnarandstaðan viðurkennir aö hinn 46 ára gamli Lothars Spaeth er einn vinsælasti stjómmálamaðurinn í Baden-Wúrttemberg svo aö enginn ber brigöur á persónufylgi hans. Spaeth er um leiö náinn vinur og ráögjafi Kohls kanslara sem aö undanförnu hefur veriö tíöur gestur í Baden-Wurttemberg og flutt þar margar kosningaræöur. Hefur hon- umveriðvel tekiö. Stjómarandstaöan í Baden- Wiirttemberg geröi sér helst vonir um að rýra mætti fylgi kristilegra demókrata með því aö ala á eld- flaugamálinu. Flestar bandarísku kjamaeldflaugamar sem komu til V- Þýskalands fyrr í vetur voru stað- settar í þessu ríki. A kosningafund- um þar sem Kohl flutti ræöur í Bietigheim, heimabæ Spaeths (skammt frá Stuttgart) og í Crails- heim, sem er skammt frá Nutlangen, þar sem fyrstu Pershing-2 eldflaug- unum var komiö fyrir, reyndu ungir andstæöingar kjarnorkuvopna aö vekja athygli á málstað sínum og höföu sig töluvert í frammi en án þess að hafa erindi sem erfiði eöa mikil áhrif á annaö fundarfólk. — Það var troöiö út úr dyrum í íþrótta- höllinni, þar sem fundurinn var hald- rnn, og mest var klappað fyrir Kohl kanslara þegar hann lauk lofsoröi á hlutdeild bandaríska varnarliösms í V-Þýskalandi og þýskra landvama í varöveislu friöar og frelsis. Síðan kjarnaeldflaugamar komu til V-Þýskalands undir lok síöasta árs hefur raunar veriö mikiö hljóöara um andstöðuna við eldflaugaáætlun NATO í álfunni allri og áberandi svo í V-Þýskalandi. — „Þaö er búiö og gert. Eldflaugamar eru komnar hingað og hvaö getum viö svo sem gert?”sagði einn ungur kjósandi í Baden-Wúrttemberg, þegar blaöa- menn þar tóku hann og fleiri ung- menni tali á kosningafundi Kohls og Spaeths. Raunar tók stjóm Kohls eld- flaugamáliö í arf eftir stjórn Helmuts Schmidts kanslara sósíal- demókrata, því að Schmidtstjórnin haföi haft forgöngu um aö sam- þykkja NATO-áætlunina (og þá studd af kristúegum demókrötum í þeirri stefnu) þótt sósíaldemókratar heföu síöar sinnaskipti í málinu og snerust gegn staösetningu eldflaug- anna í landinu. Spáöu sósíaldemó- kratar því aö ný ísöld mundi ganga í garö í sambúö austurs og vesturs þegar Pershingeldflaugarnar væru komnar til V-Þýskaiands. Á kosningafundum sínum í Baden- Wúrttemberg hefur Kohl hamraö mjög á því aö tengslin milli Vestur- og Austur-Þýskalands hafi þróast mikið til þess betra síðan hann tók Stjórnarandstaeöingum hefur ekki tekist að gera e/df/augamálið að kosningamáli iBaden- Wiirttemberg. He/mut Kohl kanslari á kosningafundi. Otto Lambsdorff fjármálaráðherra .... og flokksbróðir hans Manfred er miðdepill i hneykslismáli út at Wörner varnarmálaráðherra, sem Flick-mútunum.... er frá Baden-Wiirttemberg, hefur legið undir gagnrýni út af öðru hneykslismáli. viö stjóm. Hefur það meðal annars komið fram i því aö miklu fleiri Austur-Þjóðverjum hefur verið leyft að fara vestur yfir en nokkra sinni á jafnskömmum tíma áöur. Heimakjördæmi Manfreds Wöm- ers varnarmálaráöherra erí Baden- Wurttemberg en hann var undir mik- illi gagnrýni í vetur vegna hneykslis- ins út af brottvikningu Giinter Kiesslings hershöfðingja. Kohl kanslari aftók þó meö öllu aö láta Wömer víkja úr ríkisstjóminni og þótt öldur þess máls hafi um bil risiö hátt — og það jafnvel inni á sjálfu stjórnarheimilinu — hefur þær lægt aftur og moldviöriö er gengiö hjá. Hefur það ekkert veriö dregiö inn í kosningaumræöumar í Baden- Wurttemberg síöustu vikurnar. Hitt hneykslismálið snýr meir aö Ottó Lambsdorff fjármálaráðherra og flokksbróður Wömers hjá frjáls- lyndum demókrötum (sem eru litli bróðir í þriggja flokka sambands- stjórn Kohls). Það mál lýtur nú meö- ferö dómstólanna þar sem reynt er aö grafla upp hvort Flickfyrirtækja- samsteypan hafi fengið stórgróöa sinn af sölu hlutabréfa í Daimler- verksmiöjunum undanþeginn skatti vegna framlaga sinna í kosninga- sjóði flokkanna. Skattaívilnun var af fyrirtækinu tekin í vetur eftir aö hneykslismáliö komst í algleyming en fyrirtækiö leitast viö aö fá þeirri ákvörðun aftur breytt af dómstólum. Þaö liggur ljóst fyrir aö Flicksam- steypan lét fé af hendi rakna í kosn- ingasjóði fleiri stjómarflokka (í tíö Schmidts kanslara og sósíaldemó- krata), þar sem Lambsdorff var einnig fjármálaráöherra). Lambs- dorff hefur gengist viö því aö hafa komið greiöslum fyrirtækisins til kosningasjóðs frjálslyndra þannig fyrir (með því aö dreifa henni í fleiri staöi) aö ekki þyrfti að gera hana opinbera eins og lögskylt er þó viö stærri fjárframlög. Heldur Lambs- dorff því fram aö slík undanbrögð séu viötekinn háttur í öllum flokkum. Hugsanlegt þykir að Lambsdorff neyöist til aö segja af sér út af þessu máli þegar fram líða tímar og dóms- rannsókn hefur leitt eitthvað frekar í %ljós. Þetta mál er þó líklegra til þess aö hafa meiri áhrif á fylgi frjálslyndra demókrata fremur en kristilegra demókrata í Baden-Wurttemberg. Þar eiga kristilegir demókratar 68 fulltrúa í ríkisþinginu, sósíaldemó- kratar 40, frjálslyndir demókratar 10 og græningjar, samtök umhverfis- verndarsinna 6. I síðustu ríkisþingkosningum í Baden-Wúrttemberg 1980 fengu kristilegir demókratar 53% atkvæða og sósíaldemókratar 32,5% en frjáls- lyndir rúm 8%. Þá áttu sósíaldemó- kratar viö sérstakan mótbyr aö stríða og þótti ekki raunhæft að ætla annaö en aö þeir endurheimti eitt- hvaö af sínu fylgistapi þá í kosning- unum um helgina. Kristilegir demó- kratar eru þó sigurvissir og hefur Spaeth afþakkaö boö frjálslyndra um samstarf eftir kosningar ef kristilegir skyldu missa sinn hreina meirihluta. Enda hafa niðurstöður síöustu skoðanakannana bent til þess aö fylgi frjálslyndra hrynji af þeim um þessar mundir. Kristilegir demó- kratar gera sér vonir um aö eitthvað af því fylgi renni til þeirra. Umsjón: Guðmundur Pétursson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.