Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1984, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1984, Blaðsíða 12
12 DV. FIMMTUDAGUR 22. MARS1984. Utgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIOLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjórí: SVEINN R. EYJÖLFSSON. Framkvæmdastjóriogútgáfustjóri: HÖROUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aóstoöarritstjóri: HAUKUR HELGASON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjórn: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI 86611. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiösla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI 11. SÍMI 27022. Sími ritstjórnar: 86611. Setning, umbrot, mynda- og plötugerö: HILMIR HF., SÍÐUMÚLA 12. Prentun: Árvakur hf., Skeifunni 19. Áskriftarverð á mánuöi 250 kr. Verö í lausasölu 22 kr. Helgarblaö 25 kr. Nýr hlekkur átthagafjötra Fyrir Alþingi liggur stjórnarfrumvarp um breytingu á lausaskuldum bænda í föst lán. Þar sem þetta er stjórn- arfrumvarp, má reikna meö, að þaö verði senn að lögum. Enda eru báðir stjórnarflokkarnir hlynntir því, að sem mest sé af kúm og kindum í landinu. Þetta veröur þá í fimmta sinn á tveimur áratugum, að lausaskuldum er létt af landbúnaði. Reglan er orðin sú, að á fjögurra ára fresti kemst kinda- og kúabúskapur í þrot, þrátt fyrir árlega styrki, uppbætur og niðurgreiösl- ur upp á hálfan annan milljarð á núverandi verðlagi. Kaupfélagsstjórar verða kátir á fjögurra ára fresti. Þá losna þeir við reikningsskuldir bænda. I staðinn fá kaupfélagsstjórarnir skuldabréf, sem innlánsdeildir kaupfélaganna mega senda Seðlabankanum upp í bindi- skyldu eins og um reiðufé væri að ræða. Með þessum hætti fá sumir ungir menn og bændasynir þá flugu í höfuðið, að unnt sé aö hefja búskap með kýr og kindur hér norður við heimskautsbaug. Þeir byrja á lausaskuldum í kaupfélaginu og sökkva síðan í skulda- bréfahaug, sem reyrir þá fasta í viðjar búskapar. Margt fleira er gert hér á landi til að halda bændum við orfið og gabba nýja menn út í fenið. Raunar er 8,4% fjár- laga ríkisins varið til að stuðla að fjárfestingu og fram- leiðslu í hinum heföbundna landbúnaði kinda og kúa. Þetta er hálfur annar milljarður í ár. Sérstök búalög banna, að bændur selji jarðir sínar á markaðsvirði aðilum í þéttbýlinu, svo sem samtökum og fyrirtækjum, er vilja fá sumarbústaðaland. Er þar flagg- aö þeirri hugsjón, að ríkisbubbar úr Reykjavík skuli ekki eignast landið. I staöinn verða bændur að sæta því, að góðbændur í héraði meti verömæti jarða þeirra á hálfu markaðsvirði eða fjórðungi þess og að góöbændur í héraði hafi for- kaupsrétt að jörðunum á því tilbúna verði. Þetta er ein leiðin til að halda bændum við orfið. Komið hefur verið upp flóknu og hrikalega dýru verð- jöfnunarkerfi, svo að mjólk sé fremur framleidd við Lómagnúp en í Mosfellssveit. Þannig er mönnum talin trú um, að byggileg séu héruð, sem eru langt frá markaði þéttbýlisins. Þannig er þeim haldið við orfið. Hinn heföbundni landbúnaður kinda og kúa á ekki neitt skylt við atvinnuvegi. Hann er viðamikið kerfi, sem eink- um miðar að því að vernda veltu vinnslustöðva og sölufé- laga og helzt að auka hana, svo að reisa megi grautar- hallir í Borgamesi og mjólkurhallir í Árbæjarhverfi. Einnig miðar hinn hefðbundni landbúnaður kinda og kúa að því að efla í Reykjavík gengi manna, sem hafa at- vinnu af að stjóma landbúnaði í Búnaðarfélaginu, Stétt- arsambandinu, Framleiðsluráðinu og öllum hinum stofn- ununum, er þeir hafa reist í kringum sig. Á prenti mælir ekki þessu kerfi bót nokkur maður, sem ekki hefur beinlínis atvinnu af því að mæla því bót. Stundum eru þó dregnir á flot raunverulegir bændur til að vitna um, að þrældómur þeirra og átthagaf jötrar séu und- irstaða íslenzkrar menningar. Vinir bænda eru samt þeir, sem vara þá við skuld- breytingum og búalögum og öðrum átthagafjötrum, sem falsvinir bænda hafa komið upp til að halda þeim í þræl- dómi vinnslustöðva, sölufélaga, kaupfélaga og fínna manna í Reykjavík. Fyrirhuguð skuldbreyting er nýr hlekkur í þessum átt- hagafjötrum. Jónas Kristjánsson. LÆRUMVtÐ EITTHVAÐ? Neyðin kennir naktri konu að spinna, segir máltækiö. Það er gömul saga og ný að þegar á bjátar reyna menn að bjarga sér sem best gengur, og telja þá ýmislegt ekki eftir sér sem þeir á velmektardögum komu ekki nærri. Þetta á bæði við einstaklinga og þjóðir. Oþarft er að vitna þar til hörmunga af völdum heimsstyrjalda eða stórfelldra náttúruhamfara, smærri atvik eru næg til vitnis. Eitt gleggsta og þýðingarmesta dæmið úr nýlegri sögu okkar er þegar Bretar ætluðu aö svelta okkur til hlýðni er við fórum fyrst að færa út fiskveiðiland- helgi okkar eftir síðari heims- styrjöldina og settu löndunarbann á ísfiskinn okkar. Þá efldum viö hrað- frystiiðnað okkar, sem hefur veriö ein af gildustu undirstööunum undir velferð okkar æ síðan. Lærum við eitthvað nú? Nú stöndum við frammi fyrir mestu erfiðleikum í efnahagsmálum okkar frá því við urðum sjálfstæð þjóð. Ekki stafar það af ofbeldi annarra þjóöa, ekki heldur vegna þess að vörur okkar séu óseljanleg- ar, heldur öðrum þræði vegna óhag- stæðra náttúruskilyrða, en þó fyrst og fremst vegna heimtufrekju okkar og græðgi á umliðnum árum og vegna þess að við höfum ekki verið menn til að nýta skynsamlega þær náttúruauölindir sem viö lögðum mikið á okkur að öðlast yfirráð yfir. Fyrst og fremst eru þaö auðlindir sjávarins sem við höfum gengiö miskunnarlaust í af lítilli fyrir- hyggju. Þar er langt í frá við þá eina að sakast sem sjóinn hafa sótt eöa haft beina atvinnu af sjávarafla, þjóðin hefur bókstaflega krafist þess að æ meira væri fært á land svo unnt væri að halda lífsgæðunum i há- marki. Við sjávarútveg og fiskiönaö hafa peningamál þjóðarinnar líka ÖH miöast. Þrátt fyrir fagurgala á há- tíðlegum stundum hefur lítið fariö fyrir aöstoö ríkisvalds við aðrar at- vinnugreinar að landbúnaði undan- skildum. Loforð hafa jafnvel veriö margsvikin, samanber fyrirheitin við iðnaðinn þegar Islendingar gengu í EFTA á sínum tíma. En nú hafa menn vaknað viö vond- an draum. Sjávarafli hefur brugðist og við blasir gífurlegur atvinnusam- dráttur, því það hefur verið vanrækt aö byggja upp aðrar atvinnugreinar. A stöðum þar sem það hefur þótt jaðra við guðlast að tala um aðrar atvinnugreinar en sjávarútveg hrópa menn nú á iðnað sér til hjálpar, rétt eins og unnt sé að koma honum á með dags fyrirvara. En því miður er langt frá því að svo sé. Samtímasaga greinir okkur frá ýmsum misheppnuðum dæmum er- lendis frá, þegar skyndilega hefur átt að iönvæða þjóðir og gjörbreyta lifsháttum þeirra. Líklega hafa slíkar tilraunir oftar mistekist en heppnast. Þar kemur vafalaust margt til en ætli að ein meginorsökin sé ekki sú að við iðnað gildir allt ann- ar hugsunarháttur en til dæmis í veiöimannaþjóðfélögum, eins og okkar þjóðfélag hefur fyrst og fremst verið, bæði 'í eiginlegri og óeiginlegri merkingu. Þar eru þaö jafnvægi og vandvirkni sem fyrst og fremst gera gæfumuninn en ekki göslaraháttur og sífelld von um stóra happdrættis- vinninga. Viðveröumekkiiðnvætt þjóöfélag á einu ári, til þess höfum við hvorki fjármagn né skapferli. En sú stóra spuming hlýtur aö gerast áleitin, hvort þeir erfiöleikar sem að okkur steðja nú í sjávarútvegi og vonandi eru tímabundnir, ná því að opna augu okkar, kenna okkur að spinna, verða til þess að við viðurkennum bæði í orði og verki aö það er ekkert vit í því að treysta endalaust á einn atvinnuveg. Tækifærin bíða alls staðar I raun og veru bíða tækifærin okkar alls staðar, ef við náum því að fá jafnvægi í fjármál okkar og önnur efnahagsmál. Vonandi tekst nú að ná hafi verið undir þá menn sem lagt hafa út í slík ævintýri hin síðari ár. Samt hafa margir þeirra þráast viö og haldið sínu striki. Þeir hafa getað skrimt af í kolvitlausu verð- bólg uþjóöfélagi, meö vöxtum og opinberum gjöldum sem hvergi þekkjast í samkeppnislöndum okkar, og þeir hafa því öðlast dýrmæta og dýrkeypta reynslu. I mörgum þess- um litlu fyrirtækjum hafa nýjungar litið dagsins ljós, nýjungar sem í stórum þjóðfélögum hefðu nægt til aö gera höfunda þeirra að iðnjöfrum. Hér hafa menn hins vegar orðið að bíta í það súra epli að geta hagnýtt þær til vinnu fyrir tvo til þrjá menn „Sjavarafli betar braglM H vtt blasir gffurlegur atvinnusamdráttur, því þab httar verM vaarakt að byggja app aðrar atvinnugreinar. ” og láta svo útlendinga stela þeim viö neflö á sér, hafi þeir reynt að kynna þær. Þetta gerist jafnt á litlum verk- stæðum og tilraunastofum há- skólans. Fjárskortur og skilnings- leysi þeirra sem fjármagni stýra, hafa valdið okkur skaða sem aldrei verður metinn til fjár. Ef við lærum okkar lexíu nú, þegar harönar í ári, getum við lagt grunninn að því að auðgast á íslensku hugviti og verk- þekkingu á komandi árum. Þá má ekki gleyma öllum þeim gífurlegu tækifærum sem felast í betri úrvinnslu þeirra matvæla sem viö annaðhvort flytjum út sem hrá- efni, eða nýtum alls ekki heldur fleygjum. Mér er það ljóst að viö verðum að halda áfram að fullnægja þýðingarmiklum mörkuðutn okkar fyrir þorsk í vestri og austri á svipaðan hátt og hingað til, en fleira ermaturenhann. A síðustu árum hefur orðið gífur- leg bylting í matargerð okkar Islendinga. I henni höfum við kynnst matarvenjum fjölmargra þjóöa og við ættum að geta skilið það nú að til þess að geta selt þessum þjóöum matvæli verðum við að útbúa þau þannig að þær vilji kaupa þau og neyta þeirra. Er þá ótalið allt það sem fleygt hefur verið en nú er ljóst að úr má skapa gífurleg verðmæti. En ekki er nóg að framleiða vöru, hana þarf líka að selja. Satt best að segja höfum viö Islendingar verið óskaplegir ratar á markaðssviðinu, þótt vissulega hafi á sumum sviöum vel til tekist. Við höfum ekki verið nægilega gagnrýnir á margt það sem við höfum boðið erlendis og við höfum ekki kunnaö þá miklu kúnst sem markaðssetning erlendis er. Hér tengjast verslun og fleiri þjónustugreinar iðnaðinum og það er engin ástæða til þess að ætla annaö en við getum náð langt á því sviði ef við leggjum okkur fram. Kannski er góð markaðssetning og sölumennska erlendis raunhæfasta byggðastefna sem um er hægt aö tala, þegar öllu er ábotninnhvolft! En eitt frumskilyrði þarf að uppfylla áður en svona draumórar geta orðið aö veruleika: Við þurfum aö gera okkar eigið þjóðféiag „normalt”aðnýju. MAGNÚS BJARNFREÐSSON okkar mesta bölvaldi, verðbólgunni, niður í viðráðanlegt horf, þótt nokkrir ógæfumenn reyni að hindra þær aðgerðir sem nauðsynlegar eru til þess. Vonandi tekst þeim ætlunar- verk sitt ekki svo vel að þjóðin þurfi að draga þá til ábyrgðar fyrir skemmdarverk þeirra. Stóriðja er í margra augum alls- herjarlausn á efnahagsvanda okkar. Því fer fjarri að ég amist við stór- iðju, einkum þeirri sem útlendingar eiga og bera ábyrgð á en gjalda okkur fast gjald fyrir, en ég held að það sé alrangt að veðja á hana eina. Þá erum við aö lenda í nýju fiski- ævintýri og getum staöið vamarlitlir uppi ef þýðingarmiklir, einhæfir markaðir bregðast. En við megum ekki gleyma því að margt smátt gerir eitt stórt — í iðnaði ekki síður en öta-u. Um allt land hafa á síðari árum risið upp iðnfyrir- tæki í hinum ýmsu greinum, bæði svokölluðum framleiðsluiðnaði og þjónustuiðnaði. Flest eru fyrirtæki þessi smá, enda langt í frá að mulið A „í raun og veru bíða tækifærin okkar alls ^ staðar ef við náum því að fá jafnvægi í f jármál okkar og önnur efnahagsmál.” Kjallari á fimmtudegi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.