Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1984, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1984, Blaðsíða 38
38 DV. FIMMTUDAGUR 22. MARS1984. DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL VORUM MJOG TAUGA -7 Dansf lokkurinn Tke Mistakes varð Islandsmeistari unglinga í hópdansi með dansinn sinn, The Mistake OSTYRK Þess má geta aö þau tóku sig til kvöldiö eftir sigurinn og fóru út aö boröa á Pottinum og pönnunni. „Fengum okkur góöar steikur í tilefni sigursins.” -JGH m > Þau skipa „Mistökin”. Talið frá vinstri: Eydis Eyjólfsdóttir, Haukur Gíslason, Katrín Olafsdóttir og Guörún Þórhannesdóttir. Þau sýndu geysilegt öryggi í dansi sínum. Þrátt fyrir það áttu þau í mikilli keppni við Who do- dansflokkinn úr Mosfellssveit sem lenti í öðru sæti. DV-mynd: Einar Olason. Stefán tekur sporið í Tónabæ síðastliðið f östudagskvöld. Hann dansaði svokallað- an „Break-dans”, en það er dans sem mjög hefur rutt sér til rúms að undanfömu á meðal unglinga. „Emm fimm strákar saman i danshópi sem viö köllum Break- bræður.” DV-mynd: Einar Olason. „Eg hef haft áhuga á dansi lengi en staðreyndin er sú aö ég hef ekki lært dans fyrr en í vetur og þá aðeins í stutt- an tíma fyrir jól, ” sagði Stefán Baxter, 15 ára Reykvíkingur og Islandsmeist- ari unglinga í diskódansi, eftir aö hann tryggði sér titilinn í Tónabæ síöastliðið föstudagskvöld. Stefán er fæddur í Svíþjóð, en fluttist til Islands 2 ára. Hann stundar nám í æfingadeild Kennaraháskóla Islands. I keppninni í Tónabæ dansaði Stefán svokallaöan „break-dans” en sá dans byggist mjög á látbragöi dansarans. Fyrir um þremur vikum stofnaöi Stef- án, ásamt fjórum öðrum strákum, danshóp. Þeir kalla sig Break-bræöur. „Við sýndum niöri á torgi á föstudegi fyrir um hálfum mánuöi. Viö tókum okkur til og mættum niöur á torg og byrjuöum aö dansa.” — Hvernigtókuvegfarendurþví? „Ágætlega, aö því er virtist. Þaö myndaöist strax heljarinnar hringur í kringum okkur. Þarna voru bæði for- vitið fullorðið fólk og unglingar.” — Þiðhafiðfengiðklapp? „Já, já.þaðvartalsvertklappaö.” Stefán sagöi okkur aö „break-dans- inn” hefði hafið innreiö sína hér á landi fyrir um þremur mánuöum. Síðan heföi dansinn fariö um eins og eldur í sinu á meðal unglinga. „Eg spái því aö þessi dans veröi sá alvinsælasti hjá unglingum eftir svona þrjá til f jóra mánuði.” — Hvaöan er þessi dans? „Break-dansinn er götulist sem byrjaði í Bandaríkjunum. Fyrir rúmum tveimur árum þróaöist dans- inn inn á diskótekin.” — Hvaö um gömlu dansana? „Mig langar til að læra þá síðar meir. Einhvem timann hættir maður líka aö dansa diskó fyrst og fremst.” -JGH Viðar Ævarsson hlaut annaö sætið í einstaklingskeppninni. Hann sýndi mjög góð tilþrif. Við sjáum hér hvar hann spennir upp regnhlíf scm hann notaði í dansi sinum. Hann dansaði „break-dans”. Neistínn frá Garðabæ. Þrjár stúlkur sem dönsuðu „hefðbundinn” dans. Unglingar úr Garðabæ fjölmenntu i Tónabæ á úrsiitakvöldið enda tveir dansflokkar úr þcirra „höfuðstað”. Mættum niöri á torgi og dönsuðum rætt við Stefán Baxter, íslandsmeistara unglinga ídiskódansi „Viö erum mjög ánægö með sigur- inn. Attum ekki von á honum því viö vorum svo hræðilega taugaóstyrk. Héldum aö Who do úr Mosfellssveit myndu vinna.” Þetta sögöu þau fjórmenningar í dansflokknum The Mistakes eftir sigurinn í Islandsmeistarakeppni ungl- inga í diskódansi, hópdansi. Dansinn þeirra hét The Mistake. En þrátt fyrir öll „mistökin” þá geröu þau engin mistök og ekki var aö sjá aö þau væru taugaóstyrk á gólfinu. Þaö skemmtilega viö þessa dans- keppni er að unglingamir taka sig saman og mynda danshópa. Þau í The Mistakes voru í dansskólanum Dans- nýjung um tima í vetur. Þannig myndaöist hópurinn en áður þekktust þau ekki. Em reyndar úr mismun- andi borgarhverfum. „Þaö var fyrir um þremur vikum sem viö byrjuöum aö æfa sem hópur og höfum æft á hverjum degi fram að keppninni. Og þaö var ekki fyrr en á fimmtudaginn, þegar undanúrslitin voru, aö viö kláruðum aö semja dans- inn.” Búningar þeirra fjórmenninga em hannaðir af þeim sjálfum. Þaö er annars skemmtilegt aö sjá hve unglingamir em hugmyndaríkir í gerö dansbúninga. Margir búningamir ótrúlega frumlegir. — Ætliöiaöhaldahópinn? „Já, það er meiningin.” — Fengiðeinhvertilboö? „Nei.ekki ennþá.” Diskó- dans og skíða- íþróttin „Komiöi sælir, félagar og vinir góðir.” Já, DvÖIin minnir enn á gamla slagorðið nú þegar langt er iiðið á marsmánuð. Við óskum ykk- ur gleðilegs fimmtudags með von um að allir séu í finu skapi. Eins og nokkrum sinnum áður í vetur fjöllum við að þessu sbini um fjaUaíþrótt. Og dansinn, auðvitað. Ekki má gleyma honum. Semsé diskódans og skíöaíþróttina. Það er með nokkuð óvenjulegum hætti sem við tökum á skíðaíþrótt- inni. Næstu tvo mánuðina er reiknað með miklum fjölda skíöamanna í skíðalöndin i nágrenni Reykjavíkur. Bláfjöllin eru vinsæl og því birtum við kort af skíðasvæöinu þar. Islandsmeistarakeppni unglinga í diskódansi, frjáisri aöferð, fær svo athygU okkar. Þar hafa félagsmið- stöðvarnar i Reykjavik unnið gott starf með því að halda keppnina. Keppnin tókst með afbrigðum vel að þessu slnni. Þátttakendur margir og áhugi unglinga mikUl. Keppnin fór fram íTónabæ. Við skeUum punktinum hér með á fóninn. Texti: Jón G. Hauksson Myndir: Einar Óiason

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.