Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1984, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1984, Blaðsíða 6
V 6 Neytendur Neytendur Neytendur Í.RRF P.BAM SS FHTOAQUTMMT'íT VQ DV. FIMMTUDAGUR 22. MARS1984. Neytendur Fermingarveislurnar hef jast 1. apríl: Hvað kostar að halda þessar veislur? Nú fer senn að liða að fermingun- um. I Reykjavík verður fyrst fermt 1. apríl. Uti á landi er algengast að fermt sé á hvítasunnunni. Hún verð- ur hins vegar ekki fyrr en 10. júní í ár. En hvað sem því líður má búast viö að prestamir muni eiga annríkt á meðan þessar athafnir standa yfir. Ekki vitum við nákvæmlega hversu margir eru í þeim árgangi sem nú á að ganga til altaris, en ekki er ólík- legt að sá fjöldi sé á bilinu 4000— 4500. Mönnum hefur oft orðið tíðrætt um fermingarnar. Mörgum finnst að umstangiö kringum þær sé helst til mikið. Stórar gjafir og veglegar veislur em haldnar en sjálft guðsorð- ið og tilgangur fermingarinnar gleymist eöa er gefinn lítill gaumur. En fermingarveislur eru haldnar, stórar og smáar, og verða líklega haldnar í náustu framtíð. Þaö er nokkuð algengt að hafður sé kaldur eöa heitur matur fyrir veislugesti. Þessi matur er í flestum tilvikum pantaður frá aöilum sem bjóöa upp á mat sem sérstaklega er framleiddur fyrir fermingarveislur. Þaö eru fjöl- margir aðilar sem sjá um slíka þjón- ustu. Við höfðum samband við nokkra slíka og könnuöum hvaö slíkt kostar. Einnig könnuðum við hvers konar matur er í boði og hvaöa þjón- ustu aðra er boðið upp á fyrir utan sjálfan matinn. Þeir aðilar sem við höföum samband við eru ekki nema hluti af þeim sem bjóða upp á þessa þjónustu. Það yrði of langt mál að geta þeirra allra. Þeir aðilar sem getið er um hér á eftir voru valdir af handahófi. Þaö kom fram hjá þeim aö þegar væru farnar aö berast pantanir og á nokkrum stööum var að verða upp- Það eru ekki bara prestarnir sem eiga annríkt á meðan fermingarnar standa kaupmenn standa einnig í ströngu hvað viðkemur veisluhaldi og gjafaflóði. pantaö. Þeir sem eiga eftir að panta ættu því að fara að huga að þessum málum sem fyrst. Veitingamaðurinn, sími 86880 Þar er boðið upp á sérstakt ferm- ingarborð sem samanstendur af f jór- um kjötréttum og laxarönd. Allir réttirnir eru kaldir. Kjötréttirnir eru: Roastbeef meö remúlaði, sperglum og maískorni. Grill- steiktir kjúklingar með strákartöfl- um, rósakáli og gulrótum. Lamba- kóróna með blómkáli, hrásalati og rjómasósu. Lambakóróna er klofinn lambshryggur sem myndar einskon- ar kórónu og matreiddur á sérstakan hátt. Síðan er það laxarönd skreytt með rækjum, eggjum, aspasi og sentilisósa meö. Það sem borga þarf fyrir þennan mat er 390 kr. fyrir manninn og matreiðslumaður kemur á staðinn og útbýr veisluna. Hægt er að fá allan borðbúnað ef þörf er á því og þarf þá ekki að borga aukalega fyrir hann. Sérstaklega þarf að borga fyrir aksturinn heim með mat- yfir. Foreldrar, matreiðslumenn og inn. Þetta er hagkvæmasta tilboðiö sem Veitingamaðurinn býður upp á og sem sérstaklega er sniðið fyrir fermingarveislur. Þá er að sjálf- sögðu hægt að panta aðrar tegundir af veislumat. Það er mögulegt að panta minna borð, heitan mat, pott- rétti og kabarettborð svo eitthvað sé nefnt. Matstofa Miðfells, sími 84939 Þar er í boði sérstakt fermingar- tilboð sem inniheldur sex rétti. Létt- steiktan nautahrygg með remúlaði, steiktum lauk og grænmeti. Reykt grísalæri með rauövínssósu, ananas og grænmeti. Grillsteiktan kjúkling meö kartöfluflögum og grænmeti. Laxarönd með rækjum, eggjum og sentilisósu. Fisk í hlaupi með tilheyr- andi meðlæti. Pottrétt með krydd- uöum hrísgrjónum, brauði og salati. Með þessu fylgir síðan eftirréttur. Matur fyrir hvern veislugest kostar 385 krónur. I því gjaldi er innifalið, auk matarins, heimkeyrsla og þá eru matarílátin sótt aftur veisluhaldara að kostnaðarlausu. Matreiðslu- maður kemur með matinn og fram- reiðir hann á staðnum. Ef þörf er á auka borðbúnaði er hægt að fá hann lánaðan. Múlakaffi, sími 37737 Þar er boðiö upp á kalt fermingar- borð sem inniheldur 7 kjötrétti og lax. Kjötréttimir eru hamborgar- hryggur, kjúklingar, roastbeef, nýr svínahryggur, lambalæri, lamba- hryggur og pottréttur. Laxinn er soð- inn og skreyttur meö majónsósu. Með kjötréttunum fylgir að sjálf- sögðu allt hugsanlegt meðlæti sem er of langt mál að f jalla um hér. Fyrir þetta kalda borð þarf síðan að greiða 400 krónur fyrir manninn. Þá er einnig mögulegt að panta einrétta fermingarborð. Nauta- stroganoff með steiktum kartöflum, hrísgrjónum, snittubrauði og hrá- salati kostar 220 krónur á mann. Lambapottréttur með tilheyrandi meðlæti kostar 200 krónur. Lamba- læri með bearnisesósu og tilheyrandi meölæti kostar 275 krónur. London- SKIPPER 411 - TRILLUMÆLAR. 2ja ára ábyrgð. Hagstætt verð og greiðsluskilmálar Friörik A. Jónsson h.f. Skiphoiti 7, Reykjavik, Simar 14135 — 14340. 1 BILALEIGUBÍLAR HÉRLENDIS OG ERLENDIS Akureyri: Borgarnes: Víðigerði V-Hún. Blönduós: Sauðárkrókur: Siglufjörður: Húsavík: Vopnafjörður: Egilsstaðir: Seyðisfjörður: 96-21715/23515 93-7618 : 95-1591 95-4136 95- 5175/5337 96- 71489 96- 41940/41229 97- 3145/3121 97-1550 97-2312/2204 Höfn Hornafirði: 97-8303 interRentl. RÓSASTILKA - PÖNTUNARLISTI UTI - INNI - fíobert — rauð Criterion — bleik Mimi Coertese — bleik Queen offíoses — rauð Peace — gulmeð b/eiku Queen Elizabeth — bleik Ena Harkness — dumbrauð Garnette — b/árauð fíumba — gulmeð rauðu Diorama — orange Diamond Jubilee — gul Ernest H. Morse — dökkrauð Dame de Coeur — dökkrauð Gold Crown — gul GROÐURHUS Monte Carlo — gul Mount Shasta — hvít Tropicana — orange Blue Girl — blá Dama Bianca — hvít Whisky — brúngu/ Europeana — rauð KLIFURRÚSIR Pau/'s Scarlet Climber — rauð Go/den Showers — gu/ F/ammentanz — rauð New Dawn — bleik RUNNARÓSIR fíosa fíugosa Hansa — bleik fíosa RubrifoHa — rauðblaðarós fíosa Gallica Scar/et Fire — rauð fíosa Lutea Persian Yellow — gu/ SENDUM UM LAND ALLT. ALLIR STILKAR ERU SÉRPAKKAÐIR MEÐ MYND. Sími22822 Mikiatorgi !

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.