Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1984, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1984, Blaðsíða 9
muhp.ham Rt- HUOAfniTMMi'í .va DV. FIMMTUDAGUR 22. MARS1984. Útlönd Útlönd „Leitt meö jafn hugsjónaríkan og hæfileikamikinn mann,” sagði Andreas Papandreou, forsætisráöherra Grikkja, nýlega í bresku sjónvarpsviðtali um flokksbróður hans, jafnaðarmanninn Arne Treholt, sem sést hér á mynd með Papandreou (t.v.) og grisku leikkonunni Melinu Mercouri. Peningar i stað hugsjóna Spenna, stjórnmál og peningar. — Astæðumar fyrir hinum ótrúlega njósnaferli Ame Treholts. Hingaö til hafa stjórnmálalegar ástæður verið taldar liggja að baki njósnum Treholts fyrir KGB. En þá ástæöu er ekki aö finna í tengslum hans við Iraka. Það eru það fyrst og fremst peningamir sem hafa lokkað og svo spennan af því að vera í hringiðu stjómmálanna. Treholt hefur skýrt frá því í yfir- heyrslum að hann hafi fengið um það bil 50 þúsund dollara í greiðslur frá Irökum. Peningamir em, eins og vera ber þegar stórnjósnarar eiga í hlut, varðveittir í svissneskum bönkum. Hann hefur sagt að frá KGB hafi hann aðeins þegið greiðslur upp í ferðakostnað. KGB undrandi? Samkvæmt öllum sólarmerkjum hef- ur hvorki Irak eða KGB vitað um að Arne Treholt var á snærum hins. Sennilega kom fréttin um Iraknjósnir Treholts jafnmikið á óvart í höfuð- stöðvum KGB í Moskvu sem hér í Noregi. Fólk sem þekkir til starfsemi sovésku leyniþjónustunnar segir að á þeim bæ leyfist ekki þeirra njósnurum að vinna fyrir aðrar leyniþjónustur. Allra síst toppmönnum eins og Treholt hefur verið. Það er rétt að benda á að stjómvöld í Irak hafa síðan 1970 reynt af fremsta megni að losna við þá kommúnista sem hafa verið í landinu. Annaðhvort sent þá af landi brott eða hreinlega drepið þá. Sambúð Iraks og Sovétríkjanna hefur farið mjög versnandi. — Síðustu 5 árin hefur Irak snúið sér meir að Vesturlöndum. Spennufíkn Rikissaksóknari segir í fréttatil- kynningu að ástæðan fyrir njósnum Treholts hafi hreinlega veriö sú að græða peninga. En því er ekki að neita aö löngunin eftir því að vera þar sem hlutimir gerast, inni í miðri hringiðu alþjóðlegra stjómmála, getur hafa valdið einhverju um. Þegar Ame Treholt tókst mjög vel n jósnimar fyrir KGB, allar götur síðan 1973, sá hann að hann gæti sem hægast bætt á sig verkefnum og grætt góðan skilding. — En þar með dofnar myndin af hugsjónamanninum Ame Treholt. Það vom ekki lengur hugsjónir sem ráku hann áfram heldur beinharðir dollarar. Jón Einar í Osló Margar leyniþjón- ustur hjálpuðu við að veiða Treholt Þaö hefur ekki verið auðvelt að veiöa Arne Treholt. Það voru leyniþjónustur fleiri vestrænna landa sem unnu saman að afhjúpuninni. En allan tím- ann var aðgerðunum stjómað frá höfuðstöðvum norsku leyni- þjónustunnar hér í miðborg Oslóar. Norðmenn hafa leyst þetta mál í samvinnu við meðal annars frönsku leyniþjónustuna, CIA í Bandaríkjunum og FBI. Aðeins nokkrum dögum áður en Arne Treholt var handtekinn á Fomebu komu menn frá frönsku leyni- þjónustunni skilaboðum áleiðis til Radhi Mohammad: „Búið spil með starfsemi þína hér í Frakklandi.” — Síðan hefur ekki spurst til þessa njósnaerindreka Iraks sem hefur haft aðsetur í París. Það er ekki undarlegt að Frakkar séu dregnir inn i þetta mál. Þeir hafa ætíð fylgst náið með framvindu mála fyrir botni Miðjarðarhafsins og þá ekki minnst með því sem gerist bak við tjöldin. Norska ríkisútvarpið skýrði frá því í fyrradag að leyniþjónusta Noregs hefði fengið hjálp frá ísraelsku leyni- þjónustunni Mossad til að bera kennsl á Radhi Mohammed en Norðmennimir höfðu ekki hugmynd um hver hann var þegar þeir sáu hann í fyrsta sinni. Heimildarmenn norska dagblaðsins telja vafasamt að ísraelska leym- þjónustan hafi verið dregin inn í þetta mál. Telja þeir að Frakkarnir hafi þekkt Radhi fyrir Norðmenn. Þegar Trehoit var í New York var það FBI sem tók að sér að fylgjast með Treholt. Það er hins vegar vafamál hvort gríska leyniþjónustan KYP hafi verið beöin um aðstoð í þessu máli. Jón Einar í Osló. FISKVERKENDUR ÚTGERÐARMENN Er hægt að tvöfalda verðmæti þess tak- markaða afla sem að landi kemur með nýjum framleiðsluaðferðum? Og hvað ef hægt væri að framkvæma slíka verðmætaaukningu á ótrúlega hag- kvæman hátt? Hafið þið athugað möguleikana með gámafrystingu? Væri hugsanlegt að hægt væri að fjár- magna fjárfestinguna með framleiðslu? Við höfum frystigámana, geymslugám- ana og flutningagámana. Hafið samband og ræðum þessar spurningar, það getur borgað sig. UPPGERÐIR GAMAR FYRIR KÆLI- og frystivörur LEIGA EÐA SALA FRYSTI-OG KÆLIGÁMAR hf. SKÚLAGÖTU 63RVK. S.25880 KYNNIÐ YKKUR VERÐ OG GREIÐSLUSKILMÁLA. SENDUM UM ALLT LAND. A. GUÐMUNDSSON Húsgagnaverksmiðja, Skemmuvegi 4, Kópavogi, Sími 73100 VIÐ FLYTJUM UM SET SKRIFSTOFUHÚSGÖGN og höfum opnað glæsi- lega sér- verslun með

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.