Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1984, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1984, Blaðsíða 36
36 DV. ‘FlMMfÚDÁGÚá'22. MÁRS1984. Atli Þorbergsson skipstjóri lést 15. mars sl. Hann var fæddur 4. október 1911 í Gerðum Garði, og voru foreldrar hans Þorbergur Guðmundsson og Ingi- björg Guömundsdóttir. Atli var tvígift- ur. Meö fyrri konu sinni, Kristínu Jóhannesdóttur, eignaðist hann tvær dætur. Þau slitu samvistum. Seinni kona Atla var Þórhildur B. Hallgríms- dóttir og eignuðust þau þrjá syni. Otför Atla verður gerð frá Fossvogskirkju föstudaginn 23. mars kl. 15. Guörún L. Sveinsdóttir, öldugötu 9, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 23. mars kl. 13.30. Atli Þorbergsson skipstjóri, Hrafnistu Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 23. mars kl. 15. Karólína Á. Jósefsdóttir, sem andaðist 14. þessa mánaðar, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 23. marskl. 13.30. Hilmar Helgason lést 13 mars sl. Hann var fæddur 14. febrúar 1941 í Reykja- vík. Foreldrar hans voru Helgi Gísla- son og Aðalbjörg Ásgeirsdóttir. Hilm- ar kvæntist ungur Katrínu Thoraren- sen og eignuðust þau þrjá syni. Hilmar og Katrín slitu samvistum. Hilmar var fyrsti formaöur SAA og einn aðal- hvatamaður að stofnun þess. Utför hans verður gerð frá Dómkirkjunni í dagkl. 13.30. Margrét Jónsdóttir, Víðivangi 20 Hafnarfiröi, verður jarðsungin í dag fimmtudaginn 22. mars frá Hafnar- f jarðarkirkju kl.13.30. Hólmfríður Ásgrimsdóttir, Kirkju- braut 21 Akranesi, verður jarðsungin frá Akraneskirkju laugardaginn 24. mars kl. 11.30. Lárus Hafsteinn Pjetursson lést á Landakotsspítala 18. mars. Jarðar- förin fer fram frá Hallgrímskirkju föstudaginn 23. mars kl. 11. Andlát NÝKOMIÐ Furu-sófasett Furu-borðstofuhúsgögn Hjónarúm í miklu úrvali Opið virka daga til kl. 19, opið föstu- daga til kl. 20, opið laugardaga til kl. 16. JIS Jón Loftsson hf. A A A A. A A ~Cv'~Y TTT 3 rj aucju . r.. luuuijj j-J JUUUl - lli II ill Hringbraut 12! Sími 10600 í gærkvöldi í gærkvöldi I gærkveldi áttu sér stað tímamót í sögu sjónvarpsins. Síöasta þættinum í Dallaspakkanum lauk. Hver verða viðbrögö Dallas neytenda? Neita þeir að borga afnotagjöldin eða stofna þeir til undirskriftasöfnunar sem er svo vinsælt nú til dags. I það minnsta er víst að margir eru nú spældir og sitja uppi með margar ósvaraðar spumingar um Dallas fólkið. Spumingar sem líklega verður aldrei svarað eða hvað? Svo eru aðrir sem telja þetta vera hin Tímamót mestu þjóðþrif að losna við þessa þætti. Nú verður loksins f undarfært á miðvikudögum. En hvað með þá sem auglýsa i sjónvarpinu. Hvar á nú aö koma fyrir öllum auglýsingunum sem sýndar vom á miðvikudags- kvöldum áður en Dallasþættirnir hófust. Eitt er víst að þessi tímamót valda mörgum hugarangri. Að minu mati er það skynsamlegt að hætta sýningum á þessari froðu frá Ameríku. Sjónvarpið í gær var nokkuö fróðleikssinnað. Seinast á dagskrá var gamall þáttur um gamla búskaparhætti til sveita. Þessir þættir eru án efa mikilvægar heimildir um starfshætti bænda hér áður fyrr. Um leið og þeir eru heimild um bændur eru þeir einnig ágæt heimild um fomar starfsað- ferðir hjá sjónvarpinu. Mér dettur í hug hvort ekki væri hægt að nota þennan tíma á miðvikudögum til að endursýna þætti sem áhorfendur hafa óskað eftir að verði endur- sýndir. Araar Páll Hauksson. Guðjón Einarsson, Framnesvegi 63, andaðist 20. mars. Kveðjuathöfn um Halldóru J. Eyjólfs- dóttur frá Þykkvabæ verður í Foss- vogskirkju fimmtudaginn 22. mars kl. 15. Jarðsungið verður í heimagrafreit í Þykkvabæ í Landbroti laugardaginn 24.mars kl. 14. Guðmundur Guðmundsson, fyrrver- andi kaupmaður, Móabarði 24 Hafnar- firði, lést á gjörgæsludeild Landakots- spítala að morgni 21. mars. Margrét E. Þorsteinsdóttir, Skildinga- nesi 6, andaðist á Landakotsspítala 20. mars. Jóna Jóhannesdóttir frá Homi, Hlíðar- veg 32 Isafirði, verður jarðsungin frá Isafjarðarkirkju laugardaginn 24. mars kl. 14. Tónleikar Tónleikar í Safari í kvöld 1 kvöld verða tónleikar í Safari á vegum SATT og leika þar þrjár hljómsveitir. Djelly systur — Dúkkulísurnar og Dá. Tvær hinar fyrr- nefndu eru eingöngu skipaöar kvenfólki og eitthvað mun af þeim í þeirri þriðju. Verð að- göngumiða er 200 kr. og rennur ágóðinn til SATT. Fyrirlestrar Fyrirlestur hjá Geðhjálp Geðhjálp eru fimm ára gömul samtök sem hafa innan sinna vébanda fólk með geðræn vandamál, aöstandendur þeirra og aðra þá er teija sig málefni þeirra einhverjú varða. Fé- lagsskapurinn er öilum opinn. Starfsemi Geðhjálpar hefur verið mjög öfl- „Eg er sáttur við þessa niðurstööu og ég fagna sérstaklega þessari miklu þátttöku í atkvæðagreiðslunni,” sagði Kristján Thorlacius, formaður BSRB, eftir að ljóst var að félagsmenn höfðu samþykkt nýgerðan kjarasamning í allsherjaratkvæðagreiðslu. Talningu atkvæða lauk í gærkveldi. Alls bárust 9.591 atkvæði eða frá um 80% félagsmanna. Fylgjandi samningnum voru 5.336 eða 57,5% en andvígir voru 3.710 eða 40%. Auðir seðlar voru 210 og ógildir 21. Eftir voru skilin rúmlega 300 atkvæði til að telja með ef einhverjir atkvæðaseðlar myndu berast í pósti næstu daga en þau geta þó ekki breytt niðurstöðu at- kvæðagreiðslunnar. Kristján sagðist hafa orðið þess var á fundum að þaö væru aðstæðumar í þjóðfélaginu sem væru þess valdandi að fólk samþykkti þennan samning. Hann kvaðst því leggja mikla áherslu á að ríkisstjómin hætti þeim kjara- skerðingum sem verið hafa og aðrir en ug í vetur. I félagsmiðstöðinni er „opið hús” þrisvar í viku og er það mjög vel sótt. Mánað- arlegir fyrirlestrar um ýmsa þætti geöheil- brígðismála eru haldnir á geðdeiid Land- spítalans og sækja þá a.m.k. 100 manns í hvertsinn. Næsti fyrirlestur verður í dag, fimmtudag- inn 22. mars, kl. 20 á geðdeild Landspítalans, kennslustofu á m. hæö. Mun JónOttarRagn- arsson dósent þá halda fyrirlestur er ber nafnið „Næring og geðheilsa”. Fyrirspurnir og umræður verða að loknum fyrirlestrinum og er hann öllum opinn. I siðastliðnum mánuði var haldið helgar- námskeið fyrir aðstandendur þeirra er eiga við geðræn vandamál að stríða. Var þar m.a. f jallað um viðbrögð við tilfinningalegu áfalli, fjölskyldutengsl, sjálfsvirðingu, heiðarleg tjáskipti og þær tilfinningar er fylgja því að eiga sjúkan ástvin og þau viðbrögð er af því leiða. Einnig er skoðað hvað hægt er að gera til að breyta ríkjandi ástandi og láta sér líða betur frá degi til dags. Næsta námskeið af þessu tagi verður haldið helgina 24. og 25. mars nk., frá kl. 10—18 báða dagana í félags- miðstöð Geðhjálpar að Bárugötu 11. Leið- beinandi er Sigríður Þorsteinsdóttir. Þátt- taka tilkynnist í síma 25990 föstudaginn 23. mars kl. 17.30—19. Frekari upplýsingar fást í símum 73734 og 53627 á kvöldin. Happdrætti Drætti í ferðahappdrætti Arsenalklúbbsins á íslandi hefur verið frestað um eina viku, eða til laugardagsins 24. mars 1984, og eru þeir kiúbbfélagar, sem eru ákveðnir að vera með, beðnir um að drífa sig með gíróseðlana á næsta pósthús. Tilkynningar Ályktun Fundur kennara í Hinu íslenska kennarafé- lagi við Fjölbrautaskólann á Akranesi hald- inn 15.03.1984 lýsir yfir eindregnum stuðningi við samþykkt baráttufundar kennara sem haldinn var í Sigtúni í Reykjavík 13.03.1984. launafólk tækju á sig hluta af byrðun- um. Sagðist hann þó ekki bjartsýnn í þessum efnum míðað við umræður á Alþingi um skattamál síðustu daga. „Ef ríkisstjómin breytir ekki um stefnu þá verður friöurinn á vinnu- markaðnum skammvinnari en gert hefur verið ráð fyrir af hálfu stjórn- valda,” sagði Kristján Thorlacius. „Það er ljóst að meirihluti opinberra starfsmanna innan BSRB hefur greitt atkvæði á annan hátt en ég og mínir félagar og því verðum við að hlíta,” sagði Valgeir Gestsson, formaður Kennarasamtakanna, sem var einn talsmanna þess að samningurinn yrði felldur. Valgeir benti þó á að samningurinn væri uppsegjanlegur 1. september og 1. janúar og menn myndu skoöa möguleika á uppsögn í ljósi þess hver kaupmátturinn yrði. „Það lítur ekki vel út að hækka nú skattana til að ná upp í kauphækkun- ina okkar,” sagði ValgeirGestsson. ÖEF Fundurinn leggur sérstaka áherslu á að samtök kennara verði sameinuð í ein heildar- samtök utan BSRB og BHM og haö hin nýju samtök sjálfstæðan samningsrétt. Alyktun þessi sendist stjóm HIK, málgagni HIK sem og öðrum helstu fjölmiðlum lands- ins. Auk þess verður hún send stjóm Kenn- arasambands Islands. Afmæli 80 ára er í dag, fimmtudaginn 22. mars, Simon Teitsson járnsmíðameist- ari, Þórólfsgötu 12 Borgarnesi. Hann dvelur nú ásamt eiginkonu sinni á Heilsuhælinu Hveragerði. 70 ára afmæli á í dag, fimmtudag 22. þ.m., frú Rakel Loftsdóttir frá Gröf í Miðdölum, Hátúni 12 hér í Vík. Hún tekur á móti gestum sínum eftir kl. 15 í dag á heimili dóttur sinnar í Asgarði 6 hér í bænum. Hvernig stendur á því að við eigum alltaf heilmikið eftir að gera þegar við erum búnar meö alla heimilispeningana? Félagsmenn BSRB samþykktu samninginn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.