Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1984, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1984, Blaðsíða 14
14 DV. FIMMTUDAGUR 22. MARS1984. UTGERÐARMENN HUMARBATA Oskum eftir humarbátum í viöskipti á komandi humarvertíö. Vinsamlegast leitiö upplýsinga hjá Gunnlaugi Ingvarssyni f ramk væmdast j óra. BÚLANDSTINDUR H.F. Djúpavogi, sími 97-8880. 'ANTAR /\ EfWtTALl / HVERFI STIGAHLÍÐ j Jf Verð aðeins 39.406,- l/TZSSge&MLo*** EKKI AÐEINS MUN ÓDÝRARI HELDUR BETRI Avenger IIILORAN C er bylting ílorantækjum fyrir fiskiskip. Tækið er ekki nema 12 cm á dýpt, 18 á breidd og 13 á hæð og vegur aðeins þrjú kíló, sér- stak/ega raka- og vatnsvarið en búið öllum þeim eiginleikum sem hingað til hafa einungis fundist í lorantækjum sem kosta margfalt meira og eru miklu fyrirferðarmeiri. Spennujafnarí.Avenger III vinnur á hvaða spennu sem er á milli 6,5 og 48 volta. Akkerísvakt. Þegar legið er við stjóra getur Avenger III séð um eftiríitið, ákveðið er hve mikið má reka og fari skipið út fyrir þann hring varar A venger III strax við. Á sama hátt má setja inn i minni þann hring sem telst veiðislóð, strax og komið er inn á hringinn lætur tækið vita um það með hljóðmerki. Sendistyrksmæling. Avenger III er sérbyggður fyrir islenskar aðstæður, með 142,5kHz noise-filter. Greinilegur aflestur. Avenger III sýnir markaða stefnu, raun- stefnu, hraða, fjaríægð ákvörðunarstaðar, stefnufrávik og segul- skekkju svo eitthvað sé nefnt. Aflestur er auðveldur jafnt i myrkrisem skærrisólarbirtu, allir takkar eru lýstir og auðlœsir. Avenger III frá II Morrow Inc. er bandarísk hönnun og fram- leiðsla sem stenst ströngustu kröfur. Hægt er að tengja tækið sjálfstýringu, hliðtengdum kortrita og staðsetningarsendi fyrir sjálfvirka tilkynningarskyldu þegar hún kemur. I, ~ 100 minnisdeildir. TVEGGJA ÁRA Menning Menning Munaðarfull list — um sýningu Gunnars Arnar Nú stendur yfir í Gallerí Vesturgötu 17 sýning á vatnslitamyndum og mono- týpum eftir Gunnar Orn Gunnarsson. Sýningin stendur f ram til 1.4. í Ijósi reynslunnar.... Þaö er ekki nema tæpt ár síðan Gunnar Öm hélt stóra einkasýningu í Listmunahúsinu. Á þeirri sýningu hafði listamaðurinn gert upp við fortíð- ina og tileinkað sér nýja myndskrift í anda nýja málverksins. Voru margir til að setja spurningarmerki viö þetta listræna rof Gunnars. En gerjunin heldur áfram, listamaðurinn málar, vinnur aftur og aftur úr möguleikum þessa nýja myndmáls sem hefur nú tekiö á sig mun persónulegri svip. Það er því ljóst að listamaöurinn hefur kunnað að endurmeta nýmálverkið í ljósi eigin reynslu: Viö greinum aftur gildi fyrri verka Gunnars en þó með nýju eöli: teikninguna og óvenjumikla næmni í útfærslunni. Miðað við verkin sem listamaðurinn sýndi í Listmunahúsinu á síðastliðnu ári, virðast myndirnar nú gerðar af dýpri hluttekningu listamannsins. Hann virðist nýta alla sína menntun og þekkingu og mála leikandi og næsta ósjálfrátt. Sérhver mynd virðist votta um fullnægingu listamannsins, sem hann fær út úr athöfninni að mála. Myndefniö er oftast ævintýrakennt og goösögulegt en inntakið er þó ávallt unaöurinn sem listamaðurinn upplifir í gegnum efnið, línuna, litinn og við það að sjá eigin myndsýn framkallast á örkinni. Gunnar Öm er einn af fáum málurum íslenskum sem viö getum lýst sem munaðarfullum listamanni. Lesið í gegnum listamenn Sýningin sem nú stendur yfir í Gallerí íslensk list við Vesturgötu er afar ánægjuleg og fróðleg í alla staði. Hún vottar um fullkomna endurnýjun í málverki listamannsins og það i jákvæðum skilningi. Greinilegt er að nýja málverkið hefur haft djúptæk áhrif á myndhugsun listamannsins og opnað nýjar víddir í myndverki hans. En þessi endumýjun hefur ekki átt sér stað átakalaust. Gunnar öm hefur greinilega lesið í gegnum marga lista- menn og kannaö ólíkar myndskriftir og myndmál. Þá sést það nú einkar vel að ormurinn í myndverkum lista- mannsins, sem var ríkjandi á síðustu sýningu, hefur veriö afgerandi mynd- rænt séð. I gegnum orminn gat lista- maöurinn fjarlægst hina hefðbundnu myndsýn sem myndlist hans byggðist á og gert sér grein fyrir því að málverkið meö stóru m-i, er ekki aöeins að finna í hinni venjubundnu skólasýn. Og að til væra möguleikar í hinum f jölmörgu og ólíku myndmálum sem liggja utan við okkar tíma og Menning Næturdrottningin. Myndlist GunnarB. Kvaran menningarsvæði. Ljóst er aö lista- maðurinn hefur skoðað og velt fyrir sér primitífri list og oft komist að niðurstööum sem minna á þær lausnir sem listamenn í byrjun aldarinnar komust niður á þegar list frá f jariæg- um menningarsvæðum hafði hrært upp í myndmálinu og listinni. Andleg upplyfting Þessi sýning er í senn safarík og and- leg upplyfting fyrir listunnendur sem sjá orðið allt of lítið af raunverulegri sköpun í sýningarsölum á Reykja- víkursvæðinu. GBK Fimmtíu og sjö skrif Jóhannesar Helga Jóhannes Helgi: Heyrt og sóð. Fimmtíu og sjö skrif. Arnartak, Reykjavík 1983, 227 bls. Fyrir síðustu jól vora gefnar út í bók fimmtíu og sjö stuttar greinar, sem Jóhannes Helgi rithöfundur hafði birt í blöðum á áranum 1975— 1983. Þetta eru fjörlegar greinar, en ómjúklegar mjög — höfundurinn vægir hvergi neinum, síst þeim ís- lensku menntamönnum, sem eiga sinn bólstað, gamian eða nýjan, íSví- þjóð. Jóhannes Helgi kann svo sannar- lega að fara meö málið. Hann segir um bókstafstrúarmenn: „Þeirmenn era til, sem eiga heima í fingurbjörg- um alla ævi sína og deyja sælir í þeirri trú, að þær séu öll veröldin. Þeir skríöa venjulega þarna inn á unga aldri, fara í baklás sem enginn dírkari fær unnið á, telja sig hafa höndlað í eitt skipti fyrir öll óbrigð- ula mælistiku á mannlífið og menn- ina, þótt allt í kringum þá standi í ljósum logum dæmin ftn, að það sem þeir ætli að mæla breytist frá degi til dags, og skekkjan verður því meiri sem lengra líður á ævina.” Hann er heimsborgari fremur en smáborgari, leggur þetta til, þegar hann örvæntir um Islendinga: „Kannski fylgir því sársaukaminnst röskun að flytja inn fólk skipulega — í þeim mæli árlega að innflutningur- inn yrði okkur ekki menningarlega banvænn. Við tileinkum okkur þá þaö nýtilega í fari útlendinganna — og í staöinn hlöðum við þá gjöfum þeirrar frjálshuga einstaklings- hyggju, sem ekki á sinn líka á byggðu bóli og fyrir hana og íslensk- una mega þeir sem koma úr þrengslunum og af hrognamála- svæðunum úti í heimi prísa sig sæla.” Hann er frjálslyndur íhaldsmaður, en umfram allt einstaklingshyggju- maður, ekki meö ósvipaðar skoðanir og Guðmundur Friðjónsson og Ind- riði G. Þorsteinsson. Hann skilur ekki, hvers vegna mönnum er meinað að drekka bjór, og ágæt grein er í bókinni um þá einkennilegu ástríðu manna eins og Halldórs á Kirkjubóli aö reyna aö neita öörum um það, sem þá langar sjálfa ekki í. Og hann krefst þess, aö menn beri ábyrgð á gerðum sínum, þannig að þeim sé refsað, brjóti þeir af sér, fremur en reynt sé að „lækna” þá að sænskum sið. Ég get ekki sagt annaö en ég sé sammála honum. Það er að vonum, aö slikum manni geöjist ekki að samlífsháttum í Svi- þjóö, þar sem „félagsleg meðferð” hefur tekiö við af refsingum, þar sem bamaverndarnefndir ráða yfir börnunum, en ekki foreldrar, þar sem reynt er að uppræta einstaklingseðlið, þar sem „félags- leg vitund” hefur komið í stað sam- visku einstaklingsins, þar sem ríkið hefur smám saman verið að breytast í barnfóstru, þar sem borgararnir eru að missa allt samband við sögu þjóðarinnar, þar sem skattalögregl- an ræðst inn á heimilin og nágrannar hafa gætur á eyðslu hver annars. Jóhannes Helgi segir um valdið:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.