Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1984, Blaðsíða 4
4
DV. FIMMTUDAGUR 22. MARS1984.
NÚ ER FÓRNAÐ
í NESKAUPSTAÐ
— æsispennandi jafnteflisskák Guðmundar og Helga
A annaö hundraö manns fylgdist
með fyrstu umferö alþjóðlega skák-
mótsins í Neskaupstaö sem hófst á
mánudag. Þaö er tímaritiö Skák,
með Jóhann Þóri Jónsson ritstjœ-a í
broddi fylkingar, ásamt bæjarstjóm
Neskaupstaöar, sem stendur fyrir
mótinu og er þetta annað mótið i
röðinni. Hiö fyrra var alþjóölega
mótið í Grindavík fyrr í mánuöinum
sem mönnum er enn í fersku minni.
Flestir keppendur mótsins hafa
verið fremur iönir viö kolann aö und-
anförnu, enda skammt stórra
högga á milli í skáklífinu. Þó eru
engin þreytumerki á taflmennskunni
ef marka má fyrstu umferðir
mótsins. Spennuskákir hafa sett svip
sinn á mótiö og ekki hafa áhorfendur
horfið vonsviknir á braut. Reyndar
mátti strax í 1. umferð sjá hvert
stefndi er Benóný brunaði fram með
kantpeöi á móti „jafnteflisvélinni”
Schussler. Fyrst fór a-peð hans af
stað en er Schiissler fann kóngi sín-
um skjól á hinum vængnum blandaði
h-peðið sér í baráttuna. Hins vegar
var Schiissler fastur fyrir og Benóný
varð að lúta í lægra haldi.
Margeir vann Bandaríkja-
manninn McCambridge í vel tefldri
skák og Helgi vann Róbert Harðar-
son. Þá vann JóhannHjartarsonDan
Hansson en þann vinning mætti þó aö
ósekju stjömumerkja. Jóhann lenti í
þeirri ógæfu í miðtaflinu aö neyðast
til þess að þráleika en ekki líkaöi hon-
um það þó alls kostar. I staðinn gaf
hann drottningu sina og tókst þannig
gjörsamlega aö slá ryki í augu and-
stæðingsins. Fórnin stóðst ekki en
Jóhann vann samt örugglega.
Annars berast þær fréttir að austan
að Jóhann sé kvefaður og nú „dæla
þeirí hann vítamínum”.
I 2. umferð fékk Benóný aftur
sænskan andstæöing, alþjóðameist-
arann Tom Wedberg. Þeir tefldu
spænskan leik og beitti Benóný, sem
hafði svart, svipaðri leikaðferð og
gegn stórmeistaranum Balshov á
Reykjavíkurskákmótinu — peðin á
kóngsvængnum tóku á rás. Skákin
fór í bið í eftirlætisstöðu Benónýs —
tvöföldu riddaraendatafli. Þó þykir
Wedberg hafa undirtökin en óneitan-
lega er staöan, .benónýsk ”:
Svart: Benóný Benediktsson.
Hvítt: TomWedberg.
— Svartur lék biðleik.
— Biðskákin verður tefld áfram í
dag.
Ein var sú skák sem stal senunni í
2. umferð, skák Guðmundar og
Helga. Guðmundur tefldi djarft í
byrjuninni og fómaði manni strax í
9. leik. Hefur eflaust litið á þetta ein-
hvem veginn „á eldhúsborðinu” á
meöan Helgi sat að tafli í Grindavík.
Eftir 14. leiki hafði hann nefnilega
aðeins notað 15 mínútur en Helgi 1
klst. og 40 mínútur. Guömundur virt-
ist vera að ná yfirhöndinni en þá
fómaöi Helgi drottningunni og fékk
svo hættuleg færi að Guðmundur átti
ekki annars úrkosti en að þráleika.
Skák
lón L. Ámason
Hvítt: Guðmundur Sigurjónsson.
Svart: Helgi Úlafsson.
Sikileyjarvörn.
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3 e6 7. g4! ?
Þessi leikur felur í sér mannsfórn.
Helgi lék 7. — h6 gegn Guðmundi á
Búnaðarbankamótinu en afræður nú
aöþiggjafómina.
7. — e5 8. Rf5 g6 9. g5 gxf5 10. exf5!
11. gxf6d412. Bc4 Dc7.
Auðvitað ekki 12. — dxc3?? 13.
Bxf7+! Kxf7 14. Dxd8 og drottningin
er fallin . Nú kemst hvítur ekki hjá
mannstapi en í staðinn hefur hann
yfirburði í liöskipan.
13. Dd3 dxc3 14. 0-0—0 Rc615. Hhel
cxb2+16. Kbl Bb4! 17. c3( ?)
Vinnur tíma en hefur þær afdrifa-
ríku afleiðingar í för með sér að
skálínan frá f5-peðinu að hvíta
kónginum opnast og þar meö fær
svartur ýmis taktísk mótfæri. Eftir
17. He2 er ljóst að hvítur hefur frum-
kvæðið en staðan er náttúrlega
tvísýn.
17. — Ba318. Bf4 Dd7! 19. Bd5.
Um þennan leik hugsaði Guð-
mundur í klukkustund. Biskups-
fórnin 19. Bxf7+ Kxf7 (19. — Dxf720.
Hxe5+!) 20. Dc4+ Kxf6 virðist
ekki alveg fullnægjandi því aö
svartur fær meira en nóg fyrir
drottninguna.
19. — Dxd5! 20. Dxd5 Bxf5+ 21. Hd3
0—0!
Þannig nær svartur að bjarga sér.
Hvítur er lentur í óþægilegri leppun
og getur ekki losað sig. Ekki gekk 21.
— Hd8?? vegna 22. Hxe5+! og
vinnur en nú hótar svartur að setja
hrók á d-linuna.
22. Bh6 Hfd8 23. Hgl+
Hvítur á í erfiðleikum eftir 22.
Dg2+ Bg6 en nú yrði þessi biskup
auðvitaðdrepinn.
23. — Kh8 24. Bg7+ Kg8 25. Bh6+
Kh8 26. Bg7+ Kg8 27. Bh6+ Kh8
— Og jafntefli með þráskák. Magn-
þmngin baráttuskák!
-JLA
/gærkom til Keflavíkur japanska skipið Matsuhima Maru frá Tokýo en hór
lestarþað frysta loðnu og loðnuhrogn á Japansmarkað. Þetta skip er 124 m
langt og varð að fá mb. Baidur KB tii að aðstoða það upp að bryggju. Þrátt
fyrir háflóð voru ekki nema örfáir metrar upp i fjöru þegar skipin sneru
þvert fyrir höfnina. Ekki er vitað fyrr en iestun lýkurhve mikið skipið tekur
hér. DV-mynd Heiðar Baldursson /Keflavik.
Brýn þörf á hunda-
hreinsun íReykjavík
— segir Matthías Bjarnason heilbrigðisráðherra
Matthías Bjarnason heilbrígðis-
ráöherra segir að brýn þörf sé á að
taka upp hundahreinsun í Reykjavík
og að ekki verði til lengdar búiö við það
ófremdarástand sem ríkir í þessum
efnum í borginni. Ráðherra sagði þó að
mál er vörðuðu hundahald væru sveit-
arstjómarmál og væri honum því
óljúft að skipta sér af þessu máli í
Reykjavík eða annars staðar.
Tilefni þessara orða var fyrir-
spurn frá Kolbrúnu Jónsdóttur, þing-
manni Bandalags jafnaðarmanna, til
heilbrigðisráðherra um hvað hann
hygðist gera til vamar útbreiðslu
sullaveiki og hvort hann hygðist gera
úttekt á framkvæmd gildandi laga um
hundahreinsun.
Heilbrigðisráðherra sagðist ekki
telja ástæðu til sérstakra aögerða í
þessu máli umfram það sem gildandi
lög og reglur bjóða þótt hann vildi ekki
gera lítið úr hættunni. Sagðist hann
hins vegar telja að nútíma heilbrigðis-
þjónusta og heilbrigðiseftirlit væri það
öflugt að lítil hætta væri á útbreiðslu
sullaveikinnar. Sagði ráðherra aö
reglugerðinni um hundahald væri fylgt
í megindráttum þar sem hundahalds-
mál væm tekin föstum tökum en svo
væri á flestum stöðum á landinu. Þetta
ætti þó því miður ekki við um langf jöl-
mennasta byggðarlag landsins,
Reykjavík. Hundahald væri þar
bannað og ætti því ekki að vera þörf
fyrir hundahreinsun. Annað væri tví-
skinnungur. Staðreyndimar töluðu hins
vegar öðru máli og væri brýn þörf fyrir
hundahreinsun í borginni. Sagðist
ráðherra veröa að treysta borgaryfir-
völdum til þess að leysa þessi mál og
sagðist hann vænta þess að svo yrði
gert bráðlega.
-ÚEF.
Ný lög um vísitölu
Ný lög um útreikning vísitölu fram-
færslukostnaðar voru samþykkt á
Alþingi í gær og munu þau taka gildi í
dag.
Ríkisstjórnin lagði mikla áherslu á
að frumvarp þetta yrði að lögum ekki
síðar en 21. mars þannig aö hægt yrði
að reikna eftir því vísitölu framfærslu-
kostnaðar milli mánaöanna febrúar og
mars.Frumvarpiðvarafgreitt ígegn-
um neðri deild í gær við tvær umræður
með afbrigðum frá þingsköpum. Talið
er að visitala framfærslukostnaöar
muni hækka um 1% milli febrúar og
mars í stað þess aö hækka um 2% ef
notast yrði við eldri vísitöluútreikning.
Búist er við að vísitöluútreikningi
verðilokiðeftirhelgi. -ÚEF.
I dag mælir Pagfari
I dag mælir Dagfari
I dag mælir Dagfari
Þegar virkjanir eru skipulagðar
hafa menn yfirleitt gert ráð fyrir að
vatnsföll og orkulindlr séu tll staðar.
Á þessu var að visu gerð undantekn-
ing þegar ráðlst var í Kröfluvlrkjun
en þar var sá háttur hafður á að
byggja orkuverið fyrst og Ielta að
orkugjafanum á eftir. Sú leit stendur
enn yfir.
önnur álika orkuvelta var á sin-
um tima i uppsiglingu og nefndist á
hönnunarstigi Bessastaðaárvirkjun
og var uppfinnlng einhverra austan-
manna sem töldu meira virði að fá
orkuver i kjördæmið heldur en hitt,
að finna út, að vatnsfall væri til
staðar. Eftir að núverandi iðnaðar-
ráðherra hafði lýst yfir því að vatns-
failið líktist meir rakvatni og sér-
fræðingar, sem unnið höfðu að
hönnuninni um nokkurra ára skeið,
brugðu sér austur var þó sem betur
fer horfið frá hugmynd um Bessa-
staðaárvlrkjun, enda sjálfgert þegar
áin fannst ekkl.
Þessu er hins vegar ekki tll að
dreifa norður i Húnaþingi. Þar
rennur Blanda lygn og breið og
óbelsiuð. Þessl sögufræga á hefur
löngum verlð aðdráttarafl fyrir
orkusölumenn, enda ekki margar
auðlindir svo upplagðar til vlrkjunar
hvort vatnsréttindin séu föl.
Eins og fyrr grelnlr hafa flestir
meðalgreindlr tslendingar staðið i
þeirri trú að erfitt sé að virkja ef
vatnsfall er ekki tU staðar, hvað þá
ef ekkl hefur verlð samið um afnot af
þessu sama vatnsfaUi. Þetta mun
vera misskUningur sem lands-
virkjunarmenn hafa nú upplýst að
skiptl ekki máU. Jóhannes Nordal,
sem allt veit mest og best, hvort
heldur um penlngamál eða virkjanir,
segir í blaði aUra landsmanna að
vatnsréttindin hafl engin áhrif á
vlrkjunlna. Ot af fyrir slg eru þetta
gleðUeg tíðindi því hlngað tU hafa
menn haidlð að Krafla væri viti tU
varnaðar sem kæmi í veg fyrir að
virkjaö væri án orkugjafa. Ef Nordal
er þeirrar skoðunar að Blönduvlrkj-
un þurfi ekkl á vatnsréttindum að
halda má aUt eins búast við því að
hvarvetna vakni upp áhugamenn um
virkjunarmál og upp rísl orkuver tU
sjávar og sveita án tUUts tU þess
hvort vatnsföU eða jarðhlti eru nær-
tæk eða réttbær tU afnota.
Úneitanlega efllr það mjög alla
virkjunarstefnu þegar loksins hefur
verið staðfest að vatnsréttindl séu
engan veginn nauðsynleg þegar
orkuvererureist. Dagfari.
Virkjað án vatns
sem Blanda. FuUtrúar helmamanna
á þingi og öðrum mannamótum tóku
upp skelegga baráttu fyrir virkjun
Blöndu og að lokum var sú ákvörðun
tekin að ganga tU samnlnga vlð
bændur í héraðl um framkvæmdir.
Reyndar kom i ljós að þar bjuggu
enn mörg nátttröll sem höfðu meiri
áhuga á varðveislu sauðkindarinnar
og moldarbarða upp á heiði en nú-
tima orkuveri sem félli Ula að lands-
lagi. Var öU sú barátta háð I nafni
náttúruvemdar enda nátttröU hluti
af þeirri náttúra sem friðuð er fyrlr
framförum hér á landi. Telja afdala-
bændur nyrðra að sauðkindin hafi
einkarétt á að standa fyrir náttúru-
sp jöUum og eyðlngu gróðurs og stóðu
vörð um Auðkúluheiðl í samræmi vlð
þá skoðun sina.
Um siðir lauk þó þessari varð-
veislubaráttu móhikananna á HöUu-
stöðum og nágrennl svo að
virkjunarmenn höfðu betur og þjóðln
fékk að vita að aUt væri klappaö og
klárt.
Iðnaðarráðherra hefur gefið
grænt ljós á virkjunarframkvæmdir
og vUl hraða þeim sem mest.
En einmitt þegar öUum skUst að
nú sé Blönduvirkjun ekkert að van-
búnaðl má lesa það i fréttum i fram-
hjáhlaupi að nú vUji bændur fara að sem sagt i ljós að virkjunarmönnum
semja um vatnsréttlndin. Kemur hefur láðst að taka með i reiknlnginn